Morgunblaðið - 14.09.2019, Side 37

Morgunblaðið - 14.09.2019, Side 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019 Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Bróðir okkar, DR. ING. HELGI SIGURÐUR BRIEM SÆMUNDSSON, lést mánudaginn 2. september. Hann verður jarðsunginn í Stuttgart 19. september klukkan 14. Elín Rannveig Briem Sigurlaug Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VIÐAR GARÐARSSON, Skíðaþjónustunni á Akureyri, er látinn. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 20. september klukkan 13.30. Sonja Garðarsson Jón Garðar Viðarsson Viðar Freyr Viðarsson Jaruek Intharat Signe Viðarsdóttir Heiðar Ingi Ágústsson Bryndís Viðarsdóttir Aðalsteinn Helgason Margrét Sonja Viðarsdóttir Árni Kristinn Skaftason afa- og langafabörn ÞÓRU INGVADÓTTUR leikskólakennara verður minnst í Akraneskirkju miðvikudaginn 18. september klukkan 13. Aðstandendur Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir, SVEINBJÖRN JÓNSSON, Eyjaholti 7, Garði, andaðist föstudaginn 6. september á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á styrktarsjóð fyrir börn hans: 0537-14-603039, kt. 250470-2669. Marcosa Medico Carter Don Medico Óskar N. Sveinbjarnarson Erna M. Sveinbjarnardóttir Erna M. Sveinbjarnardóttir Jón Sverrir Garðarsson Sigrún Eugenio Jónsdóttir, Ásta Björg Jónsdóttir og fjölskyldur þeirra Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF ELÍN DAVÍÐSDÓTTIR, lést miðvikudaginn 11. september. Útförin fer fram frá Neskirkju mánudaginn 23. september klukkan 15. Egill Skúli Ingibergsson Kristjana Skúladóttir Þórólfur Óskarsson Valgerður Skúladóttir Gunnar Helgi Sigurðsson Inga Margrét Skúladóttir Ólafur Björnsson Davíð Skúlason Fanney Hrafnkelsdóttir barnabörn og langömmubörn Elskuleg vin- kona mín, Inga Hannesar, hefði átt afmæli á morgun, 15. september. Hún lést eftir lang- vinn veikindi 8. júní sl. Inga var litrík og falleg persóna með stórt hjarta sem elskaði bæði menn og dýr, og þá sérstaklega strákana sína þrjá, Gylfa, Lilla litla og Dúdda. Þegar Inga var rétt um tví- tugt byrjaði sjúkdómur hennar fyrir alvöru að láta finna fyrir sér. Veikindin tóku smátt og smátt yfir og oft á tíðum var Inga mín hrikalega veik. Lá oft dögum saman inni á spítala, Kristrún Inga Hannesdóttir ✝ Kristrún IngaHannesdóttir fæddist 15. sept- ember 1971. Útför Ingu fór fram 24. júní 2019. stundum vart hug- að líf, en tókst allt- af á þrjóskunni að rífa sig á lappir og komast heim. Þar vildi hún vera, eðli- lega. Lúpusinn eða „helvítis lúbbi túbbi“ eins og hún sagði svo oft sjálf eyðilagði svo margt í lífi hennar og kom í veg fyrir það að Inga gæti lifað því lífi sem hún þráði. Hún elskaði að ferðast og náði því ásamt Gylfa sínum og Lilla litla að búa á Spáni í nokkra mánuði. Það fannst henni stórkostlegt þó svo að hún hafi verið fárveik mestan tímann. Hún lýsti því fyrir mér hversu yndislegt það hefði ver- ið að finna lyktina af appels- ínunum á trjánum í garðinum hennar og þvílík lífsgæði það hefðu verið að labba út í góða veðrið á morgnana og finna ilminn. Inga var ótrúleg á margan hátt, listræn og skörp og vissi hvernig hlutirnir áttu að vera og hikaði ekki við að halda sínu striki þrátt fyrir ráðleggingar um annað. Skólafélagar úr ’87 árgang- inum úr Gagganum skiptu hana miklu máli og það kom glöggt í ljós þegar hún stofnaði Face- book-grúppu um hópinn. Þann vettvang notaði hún m.a. til að fá fréttir af okkur og í leiðinni að upplýsa okkur um líðan sína og ástandið hverju sinni. Fyrir það verðum við henni alltaf þakklát. Heimsóknir mínar til Ingu voru mér mikilvægar. Við lágum oft saman uppi í sófa og rifjuðum upp gamla tíma. Ég og Inga, eða Bringan eins og hún kallaði sig, bjuggum hlið við hlið í Suðurbyggðinni og Bryndís skólasystir okkar niðri á horni. Við þrjár kölluðum okkur B- in þrjú. Nú höldum við Bryndís áfram og minnumst elskulegrar æskuvinkonu. Við Inga óttuðumst dauðann og spáðum mikið í það hvað tæki við. Okkur langaði báðar að trúa því að allt væri ynd- islegt fyrir handan og vorum sammála um að reynsla Ingu af lífinu sem hafði oft á tíðum ver- ið hörð hlyti að hafa verið til einhvers og þegar hennar tími kæmi fengi hún að upplifa drauma sína. Við ræddum oft framtíðina og allt það sem við ætluðum að gera þegar Inga væri orðin hressari. Líklega vissum við báðar að sá tími kæmi ekki, en það er gott að láta sig dreyma. Gleyma sér og ímynda sér sjálfan sig í því lífi sem maður þráir. Hrós og hvatning var Ingu eðlislæg og hún sparaði slíkt ekki til þeirra sem henni fannst eiga það skil- ið. Hún hafði tilfinningu fyrir litlu hlutunum. Hlutum sem flestum finnast sjálfsagðir. Inga sagði í hvert sinn þegar við kvöddumst: „Birna, ég elska þig og takk fyrir að vera þú.“ Nú kveð ég Ingu mína með sama hætti og segi: Elsku Inga mín, til hamingju með afmælið þitt, fallega vinkona mín. Ég elska þig, takk fyrir að vera þú og ég sakna þín. Við sjáumst síðar. Birna Ágústsdóttir. ✝ Ástbjartur Sæ-mundsson fæddist í Bald- urshaga á Stokks- eyri 7.2. 1926. Hann lést á Dval- arheimilinu Höfða á Akranesi 9.8. 2019. Foreldrar hans voru Sæmundur Benediktsson, f. 6.12. 1879, d. 5.9. 1955, og Ástríður Helgadóttir, f. 28.8. 1883, d. 30.12. 1970. Systkini Ástbjarts eru Benedikt Elías, f. 7.10. 1907, d. 3.10. 2005, Guðrún, f. 19.2. 1909, d. 24.4. 1993, Anna, f. 21.2. 1909, d. 26.3. 1998, Ástmundur, f. 23.10. 1910, d. 28.7. 1985, Þor- valdur, f. 20.10. 1918, d. 12.7. 2007, og Helgi, f. 17.7. 1920, d. 18.2. 2004. Tvö systkini Ást- bjarts, Þorgerður og Ágúst, dóu í frumbernsku. Hjalti, f. 8.12. 1967, kvæntur Bryndísi Emilsdóttur, f. 14.6. 1962, og eiga þau þrjú börn, Emil, Hjalta Má og Ingibjörgu. Langafabörnin eru orðin 11 talsins. Ástbjartur ólst upp á Stokks- eyri til níu ára aldurs en þá flutti fjölskyldan til Vestmanna- eyja þar sem hann ólst upp. Eft- ir giftingu bjuggu þau Ást- bjartur fyrstu fjögur árin í Vestmannaeyjum en fluttu svo til Reykjavíkur. Þau bjuggu lengst af á Álfhólsvegi í Kópa- vogi, eða í um 40 ár. Ástbjartur stundaði nám við Gagnfræðaskólann í Vest- mannaeyjum og lauk prófi frá Samvinnuskólanum í Reykjavík. Ástbjartur kom víða við á starfsferli sínum. Hann vann hjá Verðlagseftirlitinu, Innflutningsskrifstofunni, var framkvæmdastjóri Alþýðublaðs- ins í nokkur skipti, verslunar- stjóri Bókhlöðunnar, rak fisk- búð ásamt mági sínum og að endingu vann hann sem aðal- gjaldkeri Vegagerðarinnar í áratugi. Útför Ástbjarts fór fram í kyrrþey. Ástbjartur kvæntist Magneu Rósbjörgu Péturs- dóttur, f. 25.11. 1929, d. 21.9. 2010, á gamlársdag 1948. Þeirra börn eru: 1) Pétur, f. 29.6. 1949, kvæntur Hrafnhildi Hjartardóttur, f. 16.1. 1949, og eiga þau tvö börn, Hjört og Magneu Ástu. 2) Ástríður Sæunn, f. 8.4. 1951, gift Jóni Þór Hallssyni, f. 22.8. 1951, og eiga þau þrjá syni, Rúnar Magna, Bjarka Þór og Hall Heiðar. 3) Bjarni Valur, f. 17.6. 1954, kvæntur Nongnart Lue-U-Kosakul, f. 10.6. 1965, og eiga þau tvær dætur, Nisarat Sengthong og Magneu Rós. 4) Gylfi, f. 14.8. 1963, kvæntur Hafdísi Helgu Ólafsdóttur, f. 27.6. 1966, og eiga þau tvö börn, Helenu og Benedikt. 5) Þegar ég nú kveð elskulegan tengdaföður minn, Ástbjart Sæmundsson, hinstu kveðju verður mér hugsað til þess að líf okkar allra er kaflaskipt og miklu skiptir að njóta og lifa á meðan heilsan leyfir. Hann var eini Ástbjarturinn í öllum heiminum eins og sonur minn orðaði það svo fallega í ritgerð fyrir mörgum árum er hann skrifaði um ömmu sína og afa og hvað það væri gaman og gott að vera hjá þeim. Ástbjart- ur var eini Íslendingurinn sem bar þetta nafn. Hann stóð á sjötugu þegar ég kom inn í fjölskyldu hans, hlýr og eldskarpur húmoristi. Við áttum strax skap saman og hlógum oft og ræddum málin við eldhúsborðið á Álfhólsveg- inum. Ástbjartur hafði sterkar skoðanir og hafði gaman af því að ræða málefni líðandi stundar og pólitíkina og skemmtilegast var þegar við vorum ekki sam- mála. Hann sagði margar sögur frá uppvaxtarárunum og var ótrúlega fróður og víðlesinn. Ástbjartur og Maggý voru börnum okkar Gylfa ómetanleg í uppeldi þeirra og bera þau elsku þeirra, visku og hlýju gott vitni. Mikil kaflaskil urðu í lífi elsku tengdapabba þegar amma Maggý féll frá árið 2010. Hann varð aldrei samur og saknaði Rósarinnar sinnar og þeirra einstaka sambands og samveru. Hann dvaldi síðustu æviár sín á Dvalarheimilinu Höfða á Akra- nesi umvafinn hlýju ástvina og starfsfólks. Hans verður sárt saknað en minningin um ein- stakan og góðan mann lifir. Síðasta sumarrósin sölnaði í frostinu í nótt blöðin til foldar féllu og feyktust með vindum skjótt. Hverfult er blómið blíða og blikið sem fegurst skín. Rósin mín, rósin mín rjóða í rökkrinu hvarfstu mér sýn. Öllu er skapað að skilja er skín á himinsins ljós, jafnt eikin hin forna fellur sem fegursta heimsins rós. (Þorvaldur Sæmundsson) Hafdís. Við systkinin minnumst elsku afa með hlýju. Afi var fyndinn, góður og hjálpsamur maður og vildi allt fyrir okkur gera. Það var alltaf gaman að fara í pössun til ömmu og afa á Álfhólsveginn og fá að gista hjá þeim. Við fórum oft með afa í göngutúra sem yfirleitt enduðu í bakaríi þar sem við fengum að velja hvað sem var. Hann kenndi okkur svo margt sem við kunnum vel að meta núna þegar við erum orð- in eldri, eins og að drekka kaffi, borða hræring og taka lýsi á morgnana. Við eigum margar minningar úr berjamó og frá ferðalögum um landið með ömmu og afa og gat afi alltaf frætt okkur um landið og náttúruna. Fyrir nokkru þegar við heimsóttum hann sýndi hann okkur mynd af ömmu og sagði: „Sjáiði, þetta er konan mín. Finnst ykkur hún ekki falleg?“ Þetta var mjög lýsandi fyrir afa. Það er erfitt að hugsa til þess að hann sé ekki lengur hjá okkur og sem mína hinstu kveðju orti ég ljóð til hans. Horfinn þessum heimi frá í hinsta sinn var kvaddur afi minn Ástbjartur Höfða á umvafinn ást og lífdaga saddur. Þú gladdir mig með lífi þínu, sárt mun ég sakna þín, minning þín lifir í hjarta mínu, sú huggun aldrei dvín. Er sumarlandið færð að sjá þar sól mun ávallt skína og aftur verður ömmu hjá þá berðu kveðju mína. (Helena Gylfadóttir) Hvíldu í friði elsku afi. Helena og Benedikt. „Besta barnið í Baldurs- haga“, eins og afi átti það til að kalla sig í leik með okkur barnabörnunum, er nú farið yf- ir móðuna miklu til ömmu Mag- gýjar sem hann saknaði svo sárt eftir að hún féll frá fyrir tæpum áratug. Þakklæti er ofarlega í huga á þessari stundu – þakklæti fyrir allar góðu stundirnar með ömmu og afa á mínum uppvaxt- arárum og fram á fullorðinsár. Afi var mikið náttúrubarn og undi sér hvergi betur en úti undir beru lofti. Áhugi afa á fuglalífi og því sem fyrir augu bar í náttúrunni var þannig að erfitt var að hrífast ekki með. Minnisstæðar eru veiðiferðirn- ar í Elliðavatn, sjóferðir á tré- bát afa, „Skelinni“, á góðviðris- dögum frá Óttarsstöðum í Straumsvík, útilegur á Snæ- fellsnesi, ógleymanlegir veiði- túrar í Brúará og svo mætti lengi telja. Oft var setið við eldhúsborð- ið á Álfhólsveginum og farið yf- ir málefni líðandi stundar. Oft- ar en ekki leiddust umræðurnar út í æskuárin í Vestmannaeyjum, en þau voru afa sérstaklega hugleikin og var hann óþreytandi við að segja sögur af kynlegum kvist- um sem bjuggu í Eyjum á þess- um tíma og ýmsum atburðum sem hann upplifði á sínum upp- vaxtarárum. Afi sýndi því ávallt mikinn áhuga sem fólkið hans var að sýsla hverju sinni; bæði í tengslum við skólagöngu og vinnu. Oftar en ekki hófust samtöl okkar á setningunni: „Hvernig gengur í bankanum?“ sem svo leiddi til umræðu um helstu þjóðmálin og svo auðvitað Vest- mannaeyjar. Elsku afi Ástbjartur, hvíl í friði. Rúnar Magni Jónsson. Þá eru öll systkinin frá Bald- urshaga sameinuð á ný núna þegar það yngsta og besta (þín orð sem ég efast ekki um) hef- ur lagt upp í ferðina löngu. Ég er nokkuð viss um að hinum megin hefur þín beðið löng röð af hlýjum og kunnuglegum föðmum og þar hefur amma Maggý staðið fremst, það hafa verið ánægjulegir endurfundir. Núna verðið þið ekki aðskilin aftur. Það var alltaf jafn notalegt að heimsækja ykkur ömmu á Álfhólsveginn, þar var rætt um allt á milli himins og jarðar og þú kunnir alltaf skemmtilegar sögur frá þínum yngri árum í Vestmannaeyjum og á Stokks- eyri. Elsku afi, ég bið að heilsa ömmu Maggý. Takk fyrir allt, við sjáumst síðar. Þinn Hallur Heiðar. Ástbjartur Sæmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.