Morgunblaðið - 14.09.2019, Síða 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019
✝ Kristín Þóris-dóttir fæddist
14. september 1947
á Freyjugötu 6 í
Reykjavík. Hún lést
á Landspítalanum í
Fossvogi 3. maí
2019.
Foreldrar henn-
ar eru Petrína K.
Björgvinsdóttir
húsfreyja, f. 18.12.
1925, og Þórir
Ólafsson, loftskeytamaður og
rafeindameistari, f. 2.10. 1922,
d. 15.6. 1995.
Systkini Kristínar eru: Kol-
brún Þórisdóttir lífeindafræð-
ingur, f. 11.6. 1952, sambýlis-
maður hennar er Hreinn Ó.
Sigtryggsson rafverktaki. Börn
Kolbrúnar eru Birna Aronsdótt-
ir, Þórir Aronsson og Kolbrún
Aronsdóttir. Ólafur Þórisson
guðfræðingur, f. 12.6. 1961.
Kristín giftist Skúla Birni
Árnasyni árið 1966. Þau skildu.
Synir þeirra eru: Þórir Ólafur
Skúlason tölvunarfræðingur, f.
7.3. 1966, maki Fanney Sigur-
geirsdóttir bókasafnsfræðingur,
f. 1.3. 1965. Börn þeirra eru: Atli
Þórisson, f. 28.2. 1991, sambýlis-
kona Rakel Þórhallsdóttir, Unn-
ur Þórisdóttir, f.
28.2. 1991, Borgar
Þórisson, f. 6.9.
1993, Vignir Þór-
isson, f. 11.3. 1999,
sambýliskona
Kristín Helgadótt-
ir. Árni Benedikt
Skúlason rafvirkja-
meistari, f. 8.9.
1967, eiginkona
Jeanette Nordberg,
þau skildu. Börn
Árna eru: Sigurður Magnús
Árnason, f. 1.9. 1989, maki Val-
gerður Jennýjardóttir. Móðir
Sigurðar er Guðrún Sigurð-
ardóttir, f. 1968. Petra Elísabeth
Nordberg, f. 24.11. 1997, Elín
Kristín Nordberg Árnadóttir
Rezai, f. 11.1. 2000, John Bene-
dikt Árnason, f. 13.11. 2015.
Kristín giftist Magnúsi Pét-
urssyni árið 1973. Þau skildu.
Árið 1989 giftist hún Krist-
jáni Inga Daðasyni. Þau skildu.
Kristín lauk verslunarprófi
frá Verzlunarskóla Íslands árið
1966.
Hún starfaði meðal annars
hjá Brunabótafélagi Íslands og
Godda.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Elsku Stína okkar. Okkur
langaði að senda inn kveðju í til-
efni afmælis þíns.
Ótal góðar minningar sitja eft-
ir í hugum okkar og hjörtum. Við
minnumst sérstaklega hversu
gaman var í sjötugsafmælinu
þínu sem var mjög skemmtileg
stund með þér og ástvinum þín-
um.
Megi þú hvíla í friði elsku
Stína okkar.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson)
Þín systir
Kolbrún (Kolla) og
móðursystir Birna.
Það er með söknuði sem við
kveðjum kæra æskuvinkonu
okkar, Kristínu Þórisdóttur, og
þökkum fyrir langa og ánægju-
lega samfylgd.
Eftir að flestar okkar höfðu
verið samferða í barna- og gagn-
fræðaskóla ákváðum við 14 ára
gamlar að stofna saumaklúbb
sem enn er virkur. Það var frá-
bær ákvörðun því með því að
hittast reglubundið, að jafnaði
mánaðarlega, höfum við haldið
vinskapnum í alla þessa áratugi,
okkur til mikillar ánægju.
Eftir skyldunám fór Stína,
ásamt nokkrum okkar hinna, í
Verslunarskóla Íslands og lauk
þar námi árið 1966. Hún giftist
skólabróður okkar, Skúla Birni
Árnasyni, og átti ung með hon-
um tvo drengi, Þóri og Árna,
sem hafa ásamt barnabörnunum
verið augasteinarnir hennar.
Hún hefur verið í miklum sam-
skiptum við börn og barnabörn
og verið þeim góð og það hefur
sannarlega verið endurgoldið.
Það hefur verið verðmætt að
geta fylgst með börnum hver
annarrar í gegnum tíðina og þau
verið sífelld uppspretta um-
ræðna í klúbbnum okkar enda
hópurinn orðinn stór, ekki síst
hópurinn hennar Stínu sem hún
var svo stolt af.
Við gerðum ýmislegt saman,
auk þess að halda saumaklúbba
með tilheyrandi bakstri og elda-
mennsku. Skemmtum okkur
saman á yngri árum og fórum til
útlanda í tilefni af stórafmælum
og var Stína þar hrókur alls
fagnaðar á meðan hún hafði
heilsu til. Það vakti mikla kátínu
hér áður fyrr þegar Stína hóf að
spá fyrir okkur. Oftar en ekki
hittu spádómarnir í mark og við
hvöttum hana óspart til að efla
spádómsgáfuna sem við töldum
hana ótvírætt hafa. Það er því
margs að minnast og margt að
þakka.
Stína var dugnaðarforkur en
hefur mjög lengi búið við heilsu-
leysi og höfum við oft dáðst að
æðruleysi hennar og gleði við
erfiðar aðstæður.
Að leiðarlokum sendum við
Þóri, Árna og fjölskyldum
þeirra innilegar samúðarkveðj-
ur.
Bergþóra, Björg,
Brynja, Ebba, Erna,
María og Sigríður.
Kristín Þórisdóttir HINSTA KVEÐJA
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Þín mamma og Ólafur
bróðir.
✝ SveinbjörnJónsson fædd-
ist í Reykjavík 28.
ágúst 1965. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suð-
urnesja 6. sept-
ember 2019.
Foreldrar hans
eru Erna Marsibil
Sveinbjarn-
ardóttir, f. 5.6.
1944, fv. skóla-
stjóri, og Jón Sverrir Garð-
arsson, f. 24.9. 1945, fv. mjólkur-
samlagsstjóri.
Systur Sveinbjarnar eru Sig-
rún Eugenio, f. 21.9. 1970, gift
Vitor Hugo Eugenio, f. 16.12.
1975, þeirra sonur er Kolbeinn
Þór Vitorsson, f. 1996, og Ásta
Björg, f. 14.8. 1971, gift Jóhanni
Ólafi Steingrímssyni, f. 29.11.
1963. Þeirra börn eru Jón Árni,
f. 1990, hans dóttir með Sigrúnu
Gróu Jónsóttur er Ásta Björg, f.
2014. Hannes Dagur, f. 1994,
Björn Kristinn, f. 2000, Hildur
fóru unglingar snemma að vinna
og innan við fermingu var hann
farinn að vinna í fiski á sumrin.
Hann fór í MH eftir grunnskóla
en skipti um og fór í Iðnskólann í
Reykjavík þar sem hann lærði
rafeindavirkjun og lauk því
námi. Eitt ár var hann við nám í
Odense Tekniske skole.
Á námsárunum fór hann oft-
ast vestur til að vinna bæði til
sjós og lands, var á sjónum meðal
annars með pabba sínum á Heiðu
BA 91. Sveinbjörn vann ýmis
störf og má þar nefna tæknideild
Securitas, Landsímann og smíði
á stýritöflum hjá Cell Autom-
ation í Danmörku. Eftir að hann
flutti á Suðurnes starfaði hann
um áratug sem flugörygg-
isvörður á Keflavíkurflugvelli.
Sveinbjörn var í Félagi ís-
lenskra radíóamatöra og sat í
stjórn félagsins um tíma. Hann
var áhugasamur radíóskáti.
Hann var tölvugrúskari og hafði
mikla ánægju af myndvinnslu í
tölvum og hefur bjargað verð-
mætum frá glatkistunni
Fyrir ári greindist Sveinbjörn
með krabbamein. Hann sýndi
æðruleysi í veikindum sínum og
barðist allt til loka.
Útför Sveinbjarnar hefur far-
ið fram í kyrrþey.
Sigrún, f. 2002, og
Dagný Dís, f. 2006.
Hinn 29. apríl árið
2000 gekk Svein-
björn að eiga Mar-
cosu Medico, f. 25.4.
1970 í Cebu á Fil-
ippseyjum. Foreldr-
ar hennar voru
Nikulasa Medico, f.
10.9. 1933, d. 26.10.
2016, og Lamberto
Filosopo, hann er
látinn. Börn Sveinbjarnar og
Marcosu eru Carter Don Medico,
f. 2.8. 1994, Óskar Nikulás, f.
10.8. 2001, og Erna Marsibil, f.
28.10. 2003.
Sveinbjörn ólst upp með for-
eldrum sínum, var með þeim á
námsárum föðurins í Danmörku
og víðar hérlendis. Árið 1973
flutti fjölskyldan til Patreks-
fjarðar, þangað átti faðir hans
ættir að rekja og fékk starf sem
mjólkursamlagsstjóri. Þar ólst
Sveinbjörn upp og lauk grunn-
skólaprófi. Eins og þá tíðkaðist
Þótt sólin nú skíni á grænni grundu,
er hjarta mitt þungt sem blý.
Því burt varst þú kölluð á örskammri
stundu,
í huganum hrannast upp sorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins göf-
uga og góða,
svo gestrisin, einlæg og hlý.
En örlög þín ráðin – mig setur
hljóða,
við hittumst ei framar á ný.
Megi algóður Guð þína sálu nú
geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár.
Þó komin sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
(SHL)
Þínar systur,
Sigrún og Ásta Björg.
Hann Sveinbjörn systurson-
ur minn er látinn, langt fyrir
aldur fram. Fjölskylda mín og
fjölskylda Ernu systur minnar
voru alla tíð mjög nánar og eins
vorum við mjög tengd foreldr-
um okkar, þ.e. Ástu ömmu og
Bjössa afa.
Börnin mín, Ásbjörn, Árni og
Margrét, hafa því alltaf litið á
Sveinbjörn nánast sem bróður
sinn og mér hefur fundist ég
eiga mikið í honum. Hann
fæddist tveimur mánuðum á
eftir elsta syni mínum og ég
passaði Sveinbjörn oft á fyrstu
mánuðunum.
Við fluttum út á land, mín
fjölskylda á Akranes, fjölskylda
systur minnar á ýmsa staði;
Borgarnes, Blönduós, Ólafs-
fjörð og síðast á Patreksfjörð
þar sem þau bjuggu lengi. Allt-
af voru öll frí notuð til heim-
sókna og oft dvöldu börnin vik-
um saman hjá skyldfólkinu. Afi
og amma áttu lítinn bústað í
Fljótshlíðinni, þaðan sem við
erum ættuð, og þar var oft
dvalið. Margar myndir eru til
frá þessum góðu tímum.
Síðar flutti ég til Danmerkur
í nokkur ár og var þá Svein-
björn kominn á unglingsár.
Hann kom auðvitað strax í
heimsókn þótt um lengri veg
væri að fara. Svona héldum við
alla tíð góðum tengslum, sama
hversu langar vegalengdir voru
á milli okkar. Að sjálfsögðu
vorum við alltaf mætt þegar
um var að ræða brúðkaup,
skírnir eða afmæli. Á síðari ár-
um kom Sveinbjörn stundum í
sumarbústað fjölskyldunnar í
Fljótshlíð og hengdi upp alls
konar línur í trén til að geta
verið í samskiptum við radíó-
amatör-vini sína hvar sem var í
heiminum.
Sveinbjörn var brosmildur
og fallegur drengur. Hann gat
verið stríðinn á góðlátlegan
hátt og alltaf var stutt í spaug-
ið og kímnina. Sá eiginleiki
hélst út ævina og gerði erfið
veikindi hans mun bærilegri,
alla vega fyrir okkur sem
fylgdumst hjálparvana með
honum.
Mér er minnisstætt fallegt
brúðkaup þegar Sveinbjörn og
Cosa giftu sig. Eins hef ég
fylgst með börnum þeirra;
Don, Óskari og Ernu stækka
og dafna.
Missir þeirra er mikill og
erfitt að þurfa að kveðja pabba
sinn svo ung að aldri. Ég sendi
innilegar samúðarkveðjur til
Cosu og barnanna og óska
þeim Guðs blessunar. Einnig
er erfitt fyrir Ernu systur
mína og Jón mág að horfa á
eftir einkasyninum og systurn-
ar Sigrúnu og Ástu Björgu að
missa bróður sinn. Guð styrki
ykkur öll.
Sigurlín.
Sveinbjörn
Jónsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HÖSKULDUR AÐALSTEINN
SIGURGEIRSSON
forstjóri,
Húsavík,
lést á dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík
mánudaginn 2. september.
Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju mánudaginn 16. september
klukkan 14.
Hólmfríður Jóna Hannesdóttir
Hannes Höskuldsson Elfa Signý Jónsdóttir
Páll Aðalsteinn Höskuldsson Jóhanna Björg Hansen
Anna Helga Höskuldsdóttir Halldór Páll Gíslason
Sigurgeir Höskuldsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRN JENSSON,
Kirkjusandi 1,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 30. ágúst.
Útförin fer fram í Háteigskirkju mánudaginn
16. september klukkan 15.
Elín Óladóttir
Guðrún S. Björnsdóttir Trausti Sigurðsson
Arndís Björnsdóttir Sigurður Einarsson
Jens Gunnar Björnsson Kwan Björnsson
afabörn og langafabörn
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elsku móður
okkar, tengdamóður, systur, ömmu og
langömmu,
INGU HREFNU
SVEINBJARNARDÓTTUR
frá Seyðisfirði.
Árdís Björg Ísleifsdóttir
Sveinbjörn Orri Jóhannsson Hanna Þórey Níelsdóttir
Óttarr Magni Jóhannsson
Heiðbjört Dröfn Jóhannsd. Gísli Jónsson
Helena Mjöll Jóhannsdóttir Hans Unnþór Ólason
Jóhann B. Sveinbjörnsson
Ástrún Lilja Sveinbjarnard.
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, afi og langafi,
KRISTJÁN EINAR ÓLAFSSON
frá Borgarnesi,
andaðist laugardaginn 31. ágúst á Grund.
Útförin hefur farið fram.
Hjartans þakkir til starfsfólks Grundar fyrir
sérstaka umhyggju og hlýju.
Ólöf Kristjánsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir
afa- og langafabörn
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar,
THEODÓRU ÁSDÍSAR SMITH
Óskar Smith Grímsson
María Pétursdóttir
Anna Guðrún Pétursdóttir
Trausti Pétursson
Frændi okkar,
BJÖRN FINNSSON,
Dalbraut 20,
lést á hjartadeild Landspítalans við
Hringbraut mánudaginn 22. júlí.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Innilegar þakkir fær starfsfólk hjartadeildar
13E fyrir góða umönnun.
Aðstandendur