Morgunblaðið - 14.09.2019, Blaðsíða 46
46 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019
ÚRSLITASTUND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Annað kvöld rennur upp eins konar
úrslitastund á Íslandsmóti kvenna í
knattspyrnu þegar Breiðablik og
Valur mætast á Kópavogsvellinum í
næstsíðustu umferð. Til að verða Ís-
landsmeistari þarf að standa sig vel í
gegnum 18 umferðir í Pepsi Max-
deildinni en deildin hefur þróast á
þann veg í sumar að leikurinn er
nánast úrslitaleikur um hvort liðið
verður meistari. Valur er með
tveggja stiga forskot og verður því
meistari með sigri. Vinni Breiðablik
er liðið með eins stigs forskot fyrir
síðustu umferðina.
Í lokaumferðinni á Valur heima-
leik við Keflavík og Breiðablik á þá
útileik við Fylki.
Morgunblaðið hafði samband við
Gunnar Magnús Jónsson, þjálfara
Keflavíkur, og fékk hann til að spá í
spilin fyrir leikinn mikilvæga. „Ég
myndi halda að liðin byrji leikinn
varfærnislega enda mikið undir auk
þess sem Valur væri í góðri stöðu
með því að gera jafntefli. Engu að
síður hallast ég að því að það verði
skoruð nokkur mörk í þessum leik
og kannski ekki færri en í fyrri leik
liðanna sem fór 2:2. Það eru það öfl-
ugir sóknarmenn í liðunum að ég
held að það sé pottþétt að þetta
verði ekki markalaus viðureign. Hjá
þessum liðum er eiginlega ekki hægt
að tala um veikleika en það má segja
að varnir liðanna séu síðri en fram-
línan hjá þessum liðum. Auk þess
hefur ekki reynt mjög mikið á varnir
liðanna vegna þess hvernig leikirnir
hafa spilast.“
Fyrri leikurinn snerist
Valur og Breiðablik hafa verið í
sérflokki í sumar. Segja má að það
hafi komið að einhverju leyti á óvart
því margir bjuggust sjálfsagt við því
að Þór/KA yrði einnig í toppbarátt-
unni af alvöru. Gunnar bendir á að
vegna þessa sé fyrri leikur liðanna í
sumar besti mælikvarðinn.
„Ég fór á leik liðanna á Hlíðar-
enda í sumar. Þá hélt maður um
tíma að Valsararnir myndi rúlla yfir
Blikana því þær voru mjög sterkar
framan af en svo snerist leikurinn al-
gerlega. Þessi lið hafa haft algera yf-
irburði í sumar og besti mælikvarð-
inn á hvort liðið er betra er þegar
þau mæta hvort öðru. Ef maður
horfir eingöngu á úrslit gegn öðrum
liðum þá ætti Valsliðið að vera tölu-
vert öflugra því þær hafa farið létt í
gegnum flesta leiki. Þetta eru mjög
jöfn lið og ef ég ætti að spá um úrslit
þá myndi ég segja jafntefli eins og í
fyrri leiknum.“ Sjálfur segir Gunnar
að úrslit leiksins gætu kallað fram
blendnar tilfinningar hjá honum.
Valsliðið sigurstranglegra
„Þessi leikur skiptir mig svolitlu
máli ef kraftaverk okkar Keflvíkinga
á að gerast. Í því ljósi vonar maður
að Valur vinni. Á hinn bóginn eru
góðir félagar mínir í þjálfarateymi
Breiðabliks,“ sagði Gunnar og hló en
Ólafur Pétursson er gamall vinur
hans og samherji úr Keflavík og
Þorsteinn Halldórsson skólabróðir
úr Íþróttakennaraskólanum á Laug-
arvatni. Keflavík þarf að vinna síð-
ustu tvo leiki sína til að eiga mögu-
leika á að halda sæti sínu í deildinni
en í lokaumferðinni heimsækir liðið
Val. Gunnar nefnir að lið Breiðabliks
og Vals eru skipuð leikmönnum sem
eru á ólíkum stað á sínum ferli.
„Miðað við það sem ég hef séð er
Valsliðið sterkara og mér finnst liðið
sigurstranlegra en á móti kemur að
heimavöllurinn getur skipt máli fyr-
ir Breiðablik. Í Valsliðinu er gríðar-
leg reynsla. Þegar við spiluðum við
þær voru tíu leikmenn í byrjunarlið-
inu sem spilað höfðu A-landsleiki og
sú ellefta kom inn á. Í Breiðabliki
eru einnig margar sem eiga A-
landsleiki en líklega ekki alveg eins
margar. Leikmenn Breiðabliks eru
jafnframt yngri og frískari í ein-
hverjum tilfellum,“ sagði Gunnar.
Mörk verða
skoruð í leikn-
um mikilvæga
Valskonur geta orðið meistarar
gegn núverandi Íslandsmeisturum
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
2:2 Agla María Albertsdóttir og Elísa Viðarsdóttir í fyrri leik liðanna.
Örlög Grindvíkinga í fallbaráttu úr-
valsdeildar karla í fótbolta gætu
ráðist á morgun en þá fara fram
tveir fyrstu leikir 20. umferðar.
Grindvíkingar sækja Skagamenn
heim og KA fær HK í heimsókn. Öll
liðin eru í fallhættu en HK og ÍA
eru með 25 stig, eins og Valur, Vík-
ingur og Fylkir, KA er með 24 stig
en Grindavík er með 18 stig í næst-
neðsta sæti. Tapi Grindvíkingar á
Akranesi eru þeir fallnir ef KA tap-
ar ekki fyrir HK. Þá gætu ÍA, HK
og KA öll eygt von um Evrópusæti
ef þau vinna sína leiki. vs@mbl.is
Ráðast örlög
Grindvíkinga?
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Fallbarátta KA og Grindavík eru í
10. og 11. sæti fyrir leikina.
Bæði Fjölnir og Grótta geta tryggt
sér sæti í úrvalsdeild karla í fót-
bolta í dag en allir leikir 21. og
næstsíðustu umferðar fara fram kl.
14. Fjölnir með 41 stig, Grótta með
37 og Leiknir R. með 36 berjast um
tvö úrvalsdeildarsæti en Þór með
33 á langsótta möguleika. Fjölnir
og Leiknir mætast en Grótta heim-
sækir botnlið Njarðvíkur. Ef Fjöln-
ir og Grótta vinna leikina eru bæði
liðin komin upp. Fjölni nægir líka
jafntefli en Leiknir þarf stig í Graf-
arvogi til að eiga örugglega mögu-
leika fyrir síðustu umferðina.
Fara Fjölnir og
Grótta upp í dag?
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Á uppleið Fjölnir og Grótta standa
vel að vígi í 1. deildinni.
Inkasso-deild kvenna
FH – Augnablik........................................ 2:2
Rannveig Bjarnadóttir 7., Birta Georgs-
dóttir 90. – Vigdís Lilja Kristjánsdóttir 42.,
Ásta Árnadóttir 79.
Grindavík – Haukar ................................ 0:2
Sierra Lelii 19., 76.
Fjölnir – Þróttur R. ................................. 3:1
Aníta Björk Bóasdóttir 9., Sara Montoro
42., Silja Fanney Angantýsdóttir 80. – Mar-
grét Sveinsdóttir 67.
ÍA – Afturelding ...................................... 2:0
Sigrún Eva Sigurðardóttir 5., Védís Agla
Reynisdóttir 82.
ÍR – Tindastóll ......................................... 0:4
Murielle Tiernan 40., 51., Vigdís Edda
Friðriksdóttir 44., María Dögg Jóhannes-
dóttir 90.
Staðan fyrir lokaumferðina:
Þróttur R. 17 14 0 3 65:13 42
FH 17 11 3 3 47:24 36
Tindastóll 17 11 1 5 44:33 34
Haukar 17 11 0 6 32:19 33
Afturelding 17 6 3 8 27:24 21
ÍA 17 5 4 8 18:26 19
Augnablik 17 5 4 8 16:26 19
Fjölnir 17 5 4 8 21:34 19
Grindavík 17 3 6 8 19:31 15
ÍR 17 1 1 15 4:63 4
Þróttur R. leikur í úrvalsdeild 2020. ÍR
og Grindavík eru fallin í 2. deild. Völsungur
og Grótta hafa unnið sér sæti í 1. deild.
Pólland
Jagiellonia – Legia Varsjá ..................... 0:0
Böðvar Böðvarsson var ekki í leik-
mannahópi Jagiellonia.
Þýskaland
Fortuna Düsseldorf – Wolfsburg ........... 1:1
B-deild:
Karlsruher – Sandhausen ...................... 1:0
Rúrik Gíslason lék allan leikinn með
Sandhausen.
Ítalía
B-deild:
Pordenone – Spezia................................. 1:0
Sveinn Aron Guðjohnsen var allan tím-
ann á bekknum hjá Spezia.
Frakkland
B-deild:
Niort – Grenoble...................................... 0:1
Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í
leikmannahópi Grenoble.
Holland
B-deild:
Excelsior – Almere City.......................... 4:2
Elías Már Ómarsson var allan tímann á
bekknum hjá Excelsior.
Katar
Umm-Salal – Al-Arabi............................. 1:5
Aron Einar Gunnarsson lék fyrstu 68
mínúturnar og skoraði annað mark Al-
Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið.
Danmörk
SönderjyskE – Horsens .......................... 0:0
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leik-
inn með SönderjyskE. Ísak Óli Ólafsson
var allan tímann á bekknum.
Svíþjóð
Linköping – Eskilstuna........................... 0:1
Anna Rakel Pétursdóttir lék fyrstu 84
mínúturnar með Linköping.
Spánn
Mallorca – Athletic Bilbao....................... 0:0
England
B-deild:
Derby – Cardiff ........................................ 1:1
KNATTSPYRNA
HM karla í Kína
Undanúrslit:
Spánn – Ástralía......................... (2frl.) 95:88
Argentína – Frakkland ........................ 80:66
Spánn og Argentína leika til úrslita á
morgun og Ástralía leikur við Frakkland
um bronsverðlaunin.
KÖRFUBOLTI
HANDBOLTI
Grill 66 deild kvenna
FH – Fram U........................................ 22:30
Grótta – Stjarnan U ............................. 26:22
Fjölnir – Fylkir..................................... 19:24
Þýskaland
B-deild:
Aue – Bietigheim................................. 26:31
Hannes Jón Jónsson þjálfar Bietigheim.
N-Lübbecke – Krefeld ........................ 24:19
Arnar Gunnarsson þjálfar Krefeld.
Frakkland
B-deild:
Nice – Cesson-Rennes......................... 19:27
Geir Guðmundsson skoraði ekki fyrir
Cesson-Rennes.
Danmörk
Lemvig – Bjerringbro/Silkeborg...... 35:31
Þráinn Orri Jónsson skoraði ekki fyrir
Bjerringbro/Silkeborg.
FH missti af þriðja tækifærinu í sum-
ar til að tryggja sér sæti í úrvalsdeild
kvenna í knattspyrnu er liðið gerði
jafntefli við Augnablik á heimavelli,
2:2, í 17. og næstsíðustu umferð In-
kasso-deildarinnar í gær. Augnablik
gulltryggði sætið sitt í deildinni að
ári. Tindastóll, sem vann 4:0-sigur á
botnliði ÍR á útivelli, getur enn náð
öðru sætinu af FH í lokaumferðinni
en aðeins tvö stig skilja liðin að.
Lokaumferðin fer fram næsta föstu-
dag. FH mætir Aftureldingu á útivelli
og Tindastóll leikur við ÍA á heima-
velli.
Grindavík er fallin annað tímabilið
í röð eftir 0:2-tap fyrir Haukum á
heimavelli. Þrátt fyrir sigurinn eru
Haukar nánast úr leik í baráttunni
um að fara upp. Fjölnir vann 3:1-
sigur á Þrótti og gulltryggði sætið
sitt í deildinni að ári í leiðinni. Þrótt-
ur hefur þegar tryggt sér efsta sætið.
Morgunblaðið/Eggert
Ákveðnar FH-ingurinn Valgerður Ósk Valsdóttir og Björk Bjarmadóttir úr Augnabliki eigast við í gær.
Úrslitin ráð-
ast í loka-
umferðinni