Morgunblaðið - 14.09.2019, Side 47
því að skora glæsilegt sigurmark
beint úr aukaspyrnu þegar FH vann
seinni leikinn í Kaplakrika, 1:0.
Arnar með nýjan og
óuppsegjanlegan samning
Víkingar tilkynntu í gær að Arnar
Gunnlaugsson hefði gengið frá nýj-
um samningi við félagið til næstu
tveggja ára, óuppsegjanlegum af
beggja hálfu. Ljóst er að þessi tíma-
setning, daginn fyrir bikarúrslita-
leik, á að þjappa liðinu og stuðnings-
mönnum Víkings enn frekar saman
fyrir þennan mikilvægasta leik fé-
lagsins frá því það vann sinn síðasta
stóra titil sem Íslandsmeistari árið
1991.
Áhrif á Íslandsmótið
Það eru ekki bara Víkingar og
FH-ingar sem bíða spenntir eftir
úrslitum leiksins í dag. Þau munu
hafa talsverð áhrif á baráttuna á
lokaspretti Íslandsmótsins. Ef FH-
ingar verða bikarmeistarar bendir
allt til þess að liðið í fjórða sæti
deildarinnar komist í undankeppni
Evrópudeildarinnar næsta sumar.
Ef Víkingar verða bikarmeistarar
mun fjórða sætið hinsvegar ekki
gefa neitt og það myndi til dæmis
gera að mestu út um Evrópu-
drauma þeirra fimm liða sem nú eru
með 25 stig í fimmta til níunda sæt-
inu.
Sá sextugasti í boði í dag
Bikarúrslitaleikur Víkings og FH klukkan 17 Bæði mæta í leikinn á siglingu
Aðeins 5% líkur á að Kári verði með Úrslitin gætu haft áhrif á fleiri lið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ættfræði Víkingurinn Guðmundur Andri Tryggvason reynir að komast fram hjá FH-ingnum Birni Daníel Sverr-
issyni í Kaplakrika í sumar. Tryggvi Guðmundsson, faðir Guðmundar, varð bikarmeistari með FH árið 2007.
ÍÞRÓTTIR 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019
Evrópska liðið er með nauma for-
ystu gegn því bandaríska eftir
fyrsta dag í keppninni um Solheim-
bikarinn í golfi. Evrópa hefur fjór-
an og hálfan vinning og Bandaríkin
þrjá og hálfan. Á mótinu keppa
margir af bestu kvenkylfingum
heims, en leikið er á Gleneagles-
vellinum í Skotlandi.
Jessica og Nelly Korda urðu
fyrstu systurnar frá Bandaríkj-
unum til að spila saman á mótinu og
unnu þær 6/4-sigur á Caroline Mas-
son og Jodi Shadoff. Annar hring-
urinn fer fram í dag. sport@mbl.is
Evrópa með
naumt forskot
AFP
Pútt Englendingurinn Charley Hull
púttar fyrir evrópska liðið í gær.
Ólafur Jóhannesson verður líklega
ekki áfram þjálfari karlaliðs Vals í
knattspyrnu. Fótbolti.net greindi
frá í gær. Ólafur er á sínu fimmta
sumri með Val. Hann gerði liðið að
bikarmeisturum 2015 og 2016 og
Íslandsmeisturum 2017 og 2018.
Samningur Ólafs rennur út í
október og ætlar félagið ekki að
bjóða honum nýjan samning. Heim-
ir Guðjónsson, þjálfari HB í Fær-
eyjum og fyrrverandi þjálfari FH,
hefur verið orðaður við starfið hjá
Val. Ólafur þjálfaði FH áður en
Heimir tók við af honum árið 2007.
Ólafur á förum
frá Valsmönnum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meistari Ólafur Jóhannesson er
búinn að vinna fjóra titla með Val.
Ég man það eins og það hafi
gerst í gær þegar mínir menn úr
Árbænum urðu bikarmeistarar
árin 2001 og 2002. Leikurinn
2001 gegn KA var auðvitað að-
eins eftirminnilegri enda í fyrsta
sinn sem Fylkismenn unnu stór-
an titil. Sigurinn var líka eitt-
hvað svo extra sætur þar sem
jafnt var eftir venjulegan leik-
tíma og framlengdan leik, 2:2,
og því var gripið til víta-
spyrnukeppni þar sem Kjartan
Sturluson reyndist hetja Árbæ-
inga.
Ég var að sjálfsögðu í stúk-
unni á báðum þessum leikjum
og í minningunni finnst mér eins
og allur Árbærinn hafi verið
mættur þarna til þess að fagna
fyrsta bikarmeistaratitlinum í
sögu félagsins. Þegar ég skoða
skýrsluna frá árinu 2001 sé ég
að það voru 2.839 áhorfendur á
Laugardalsvelli þennan dag.
Ári síðar lék Fylkir aftur til
úrslita gegn Fram þar sem
dramatíkin var minni. Fylkir
vann 3:1-sigur í venjulegum leik-
tíma en sigurinn var engu að
síður ekki tryggður fyrr en Theó-
dór Óskarsson innsiglaði hann
með marki á 81. mínútu. 3.376
áhorfendur mættu á leikinn.
Nú verð ég 35 ára gamall á
næsta ári en ég hef haldið með
mínu uppeldisfélagi frá því ég
man eftir mér. Þetta eru bestu
minningarnar mínar um mitt fé-
lag. Mæting á bikarúrslitaleikina
undanfarin ár hefur farið dvín-
andi. Í kringum 3.000-4.000
manns á meðan það mættu
tæplega 6.000 manns á bikarúr-
slitin 2015 þegar Valur lagði KR
2:0.
Mig langar til þess að nota
tækifærið og hvetja foreldra til
að mæta með börnin sín á úr-
slitaleik Víkings og FH í dag. Þið
gætuð verið að búa til dýrmætar
minningar með börnunum ykkar
sem gætu jafnvel varað að eilífu.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Andri Þór
Björnsson,
Bjarki Pétursson
og Rúnar Arn-
órsson komust
allir áfram á 2.
stig úrtökumót-
anna um keppn-
isrétt á Evrópu-
mótaröðinni í
golfi í gær. Leik-
ið var í Fleesen-
see í Þýskalandi. Þeir léku allir
fjóra hringi á samanlagt 281 höggi,
sjö höggum undir pari, og voru
jafnir í tólfta sæti.
Axel Bóasson, Ragnar Már Garð-
arsson og Aron Snær Júlíusson léku
einnig á mótinu, en þeir komust
ekki áfram. Axel lék á tveimur
höggum undir pari, Ragnar á
parinu og Aron á tveimur höggum
yfir pari og komst hann ekki í
gegnum niðurskurðinn eftir þrjá
hringi.
Alls eru þrjú stig á úrtökumótum
fyrir Evrópumótaröðina. Annað og
þriðja stigið fara fram í nóvember
og tryggja 25 efstu kylfingar þriðja
stigsins sér þátttökurétt á mótaröð-
inni, sem er sú sterkasta í álfunni.
Sæti á Áskorendamótaröðinni,
þeirri næststerkustu, er í boði fyrir
þá sem komast næst því að tryggja
sér sæti á Evrópumótaröðinni.
Þrír íslenskir
kylfingar
áfram á 2. stig
Bjarki
Pétursson
Víkingar leika sinn þriðja úrslitaleik í
bikarkeppninni, þann fyrsta í 48 ár og
þann fyrsta sem lið í efstu deild.
Þegar Víkingar léku fyrst til úrslita árið 1967 og
töpuðu 3:0 fyrir KR á Melavellinum höfðu þeir endað í
2.-3. sæti 2. deildar (sem þá var næstefsta deild). Þá
slógu þeir Skagamenn út í undanúrslitum og B-lið
Skagamanna í átta liða úrslitum.
Víkingar sigruðu Breiðablik 1:0 í úrslitaleik á Mela-
vellinum 9. nóvember 1971 með skallamarki Jóns
Ólafssonar eftir aukaspyrnu Guðgeirs Leifssonar. Þá
voru þeir nýkrýndir meistarar í 2. deild en Breiðablik
hafði endað í 7. og næstneðsta sæti 1. deildar. Leikið
var í flóðljósum í fyrsta skipti í bikarúrslitaleik.
Á leið sinni í úrslitin höfðu Víkingar unnið tvö önnur
lið úr 1. deild, Akureyringa, 3:0, og Skagamenn, 2:0.
Víkingar höfðu mikla yfirburði í 2. deildinni árið
1971, unnu 12 leiki af 14 og skoruðu 43 mörk gegn 5.
Þeir enduðu átta stigum á undan næsta liði, Ármanni,
en á þeim tíma voru gefin tvö stig fyrir sigur.
Víkingur er eina félagið í sögu íslenskrar knatt-
spyrnu sem hefur orðið bikarmeistari á tímabili þar
sem það lék ekki í efstu deild.
Víkingur
FH-ingar leika í sjötta sinn til úrslita í
bikarkeppni karla í dag en þeir hafa tví-
vegis orðið bikarmeistarar.
FH lék fyrsta úrslitaleik sinn árið 1972, þremur árum
áður en liðið lék fyrst í efstu deild. FH tapaði þá 2:0 fyrir
Eyjamönnum í síðasta úrslitaleiknum sem leikinn var á
Melavellinum. FH var þá taplaust í 2. deild (næstefstu
deild) en komst ekki upp. Ósigurinn gegn ÍBV var því
eini tapleikur tímabilsins hjá Hafnarfjarðarliðinu í deild
og bikar.
FH komst ekki úrslit aftur fyrr en 2003 þegar liðið
tapaði 1:0 fyrir Skagamönnum í úrslitaleiknum.
FH varð bikarmeistari í fyrsta sinn 2007 með því að
vinna Fjölni 2:1 í framlengdum úrslitaleik þar sem Matt-
hías Guðmundsson skoraði bæði mörkin, bæði eftir
sendingar Tryggva Guðmundssonar.
FH vann bikarinn í annað sinn 2010 með 4:0 sigri á
KR í úrslitaleik. Matthías Vilhjálmsson skoraði úr tveim-
ur vítaspyrnum í fyrri hálfleik og þeir Atli Viðar Björns-
son og Atli Guðnason bættu við mörkum í síðari hálf-
leik. Það er stærsti sigur í bikarúrslitaleik karla frá 1987.
FH tapaði fyrir Eyjamönnum, 1:0, í úrslitaleik bikar-
keppninnar árið 2017.
FH
BIKARÚRSLIT
Jóhann Ingi Hafþórsson
Víðir Sigurðsson
Sextugasti bikarmeistaratitillinn í
knattspyrnu karla er í boði á Laug-
ardalsvellinum í dag þegar FH-
ingar freista þess að vinna bikarinn
í þriðja skipti og Víkingar í annað
sinn. Flautað verður til leiks á þjóð-
arleikvanginum klukkan 17 en hann
hefur verið vettvangur úrslitaleikj-
anna frá árinu 1973.
Fyrstu þrettán ár keppninnar, frá
1960 til 1972, fóru úrslitaleikirnir
fram á Melavellinum og voru þá
jafnan leiknir í vetrarbyrjun, í októ-
ber eða nóvember, og eitt árið dróst
úrslitaleikur meira að segja fram í
desember.
Kári væntanlega ekki með
Kári Árnason verður að líklegast
ekki með Víkingi í leiknum vegna
meiðsla sem hann varð fyrir í lands-
leiknum við Albaníu síðasta þriðju-
dag. Er það áfall fyrir Víkinga, enda
Kári einn reynslumesti og besti leik-
maður liðsins. „Það eru 95% líkur á
að hann verði ekki með,“ sagði Arn-
ar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, í
samtali við Morgunblaðið. Kári hef-
ur spilað á miðjunni í síðustu leikj-
um. Viktor Örlygur Andrason hefur
verið á bekknum að undanförnu og
tekur hann væntanlega sæti Kára í
byrjunarliðinu. Þá verður Dofri
Snorrason ekki með vegna meiðsla.
Miklar líkur eru á því að Logi Tóm-
asson taki stöðu Dofra.
Hjörtur Logi Valgarðsson, Cedric
D’Ulivo, Atli Guðnason og Morten
Beck Guldsmed hafa allir verið að
glíma við smávægileg meiðsli í að-
draganda leiksins. Þeir verða lík-
lega búnir að jafna sig í tæka tíð.
Sjálfstraust í báðum liðum
Bæði lið ættu að mæta til leiks
með sjálfstraustið í lagi. FH hefur
unnið fimm af síðustu sex leikjum
sínum og skorað fjórtán mörk. Mor-
ten Beck Guldsmed skoraði þrennu
gegn Stjörnunni í síðustu umferð í
Pepsi Max-deildinni. Hann og Ste-
ven Lennon mynda stórhættulegt
sóknarpar.
Víkingur hefur unnið fjóra af síð-
ustu fimm leikjum sínum og aðeins
fengið fjögur mörk á sig. Varnar-
leikurinn hefur gengið betur eftir að
Kári Árnason færði sig á miðjuna og
verður áhugavert að sjá hvernig lið-
ið spjarar sig á stóra sviðinu án
hans.
Þó að bæði liðin geti spilað líf-
legan sóknarfótbolta og Víkingar
hafi þótt sérstaklega frískir í ár
voru ekki mörg mörk skoruð þegar
liðin mættust á Íslandsmótinu í
sumar. Þau skildu jöfn, 1:1, á Eim-
skipsvelli Þróttar í vor þar sem
Halldór Orri Björnsson jafnaði fyrir
tíu FH-inga, sem höfðu misst Brand
Olsen af velli með rautt spjald.
Brandur svaraði síðan fyrir það með