Morgunblaðið - 14.09.2019, Síða 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Heimili &
hönnun
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 27. september
Skoðuð verða húsgögn og innréttingar,
skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið,
litir og lýsing ásamt mörgu öðru.
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagins 23. september.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Alþjóðlega leiklistarhátíðin Lókal
er þetta árið hátíð opinna vinnu-
ferla. Hátíðin hefst í dag.
„Lókal er í ár haldin í fyrsta
skipti með nýjum listrænum stjórn-
endum og við erum að breyta
áherslunum svolítið. Núna er þetta
hátíð verka í vinnslu en öll verkin á
hátíðinni eru ókláruð á einhvern
hátt. Sum verkin eru bara nokkrar
senur, í öðrum er verið að prófa
eitthvað í fyrsta skipti með áhorf-
endum eða gjörningafyrirlestrum
og svo verður á hátíðinni verk þar
sem áhorfendum er boðið inn í
rannsóknarferli,“ segir Eva Rún
Snorradóttir, sem fer ásamt Völu
Höskuldsdóttur með listræna
stjórn hátíðarinnar.
„Í rannsóknarferlinu og sköp-
unarferlinu öllu gerist oft eitthvað
magnað og óvænt sem erfitt er að
koma fyrir í lokaafurðinni.“
Burðarstykki hátíðarinnar í ár er
vinnustofan „Kveikjur“.
„Okkur langar að vera til staðar
fyrir jaðarinn, rækta hann og til-
raunamennsku því það eru fáir
hópar sem fá stóru styrkina og
okkur fannst vanta milliflöt fyrir
listafólk að fá minni upphæðir til
þess að geta einbeitt sér að ein-
hverju verkefni í smá tíma, með
minni áherslum á lokaafurð. Við
viljum líka sýna hvernig vinnuferlið
er afurð í sjálfu sér,“ segir Eva.
Nýbreytni í sviðslistum
„Við kölluðum sérstaklega eftir
umsóknum í vinnustofuna sem
væru ólíklegar til þess að fá stóru
styrkina. Þarna er listafólkið með
fræ sem það hefur hugsað um lengi
en er ekki visst um hvað geti orðið
af þeim.
Þetta er staður til að huga að
skúffuverkefnum, engin pressa á
útkomu eða meistaraverk. Við vilj-
um líka taka það inn að það er ekki
hægt að útskýra alltaf hvað þú ætl-
ar að gera í listinni. Hér er sérstakt
leyfi til þess að vita það ekki.“
Listamenn í „Kveikjum“ bera all-
ir með sér fræ sem ætlunin er að
vinna út frá. Andrea Vilhjálms-
dóttir ræktar sitt verk úr fræi út
frá barnafötum af henni sjálfri sem
lifað hafa einmanalegu lífi í
geymslu í 25 ár. Ragnar Ísleifur
Bragason kemur með fræ út frá
næturverði sem hlustar síend-
urtekið á lagið „Tímabil“ með
hljómsveitinni Í svörtum fötum.
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir
vinnur út frá fræi sem tengist að-
dráttarafli leikhússins séð frá þeim
sem vinna bak við leikhústjöldin.
Fræ Tatönju Dísar kemur úr því
óhöndlanlega og skrásetningu
drauma.
Eva segir hátíðina fyrst og
fremst til þess gerða að kynna
vandaða jaðarsviðslist.
„Við völdum það sem okkur
fannst vera spennandi í því ljósi,
nýbreytni í sviðslistum á Íslandi.“
Til þess að vinna góða lokaafurð
er nauðsynlegt að fá virka endur-
gjöf og á Lókal verður einmitt sér-
stakt örnámskeið í slíku.
„Við erum með námskeið í einu
hádeginu á hátíðinni sem kennir
fólki endurgjöf. Það verður samt
engin skylda að segja eitthvað.
Vegna þess að við sjáum oftast ein-
ungis lokaafurð er ekkert sér-
staklega mikil þörf fyrir endurgjöf
svo við kunnum ekki alveg að tala
saman um list hvert annars.
Það er ókeypis inn á alla við-
burðina en það væri mjög gaman ef
fólk gæti gefið af sér með upp-
byggilegri gagnrýni á verkin. En
við munum ekki ganga á eftir því,
það verður engin pressa á neinn,“
segir Eva.
Auk „Kveikja“ er á dagskrá
Lókal vinnuferlið „Saga biðraða frá
fullveldi til framtíðar“ sem sviðs-
listakonurnar í Díó standa að. Þar
er saga íslenskra biðraða rann-
sökuð. Janus Bragi Jakobsson og
Loji Höskuldsson færa gestum
gjörningafyrirlesturinn „Íslenskt
snitsel“. Árni Vilhjálmsson og
Björg Elín Sveinbjarnardóttir
munu flytja tónlistaratriði og síðast
en ekki síst verður Íris Stefanía
Skúladóttir með opið rannsóknar-
ferli þar sem hún býður gestum
Lókal í saumaklúbb.
Kynlíf elstu kynslóðarinnar
„Verkefnið hennar Írisar snýst
um að rannsaka kynlíf og kyn-
hegðun elstu kynslóðar samfélags
okkar og þetta er hún að vinna í
samstarfi við útvarpsleikhúsið.
Íris mun bjóða okkur að koma í
saumaklúbb eldri kvenna þar sem á
dagskrá er að ræða þessi mál.
Þetta er akkúrat gott dæmi um
það sem gerist í vinnuferlinu en er
bara eitthvað sem listafólkið og
þátttakendurnir gleyma seint en
skilar sér oft ekki í lokaafurðina
nema að mjög litlu leyti,“ segir
Eva.
Eins og áður segir er frítt inn á
hátíðina og stendur hún yfir frá 14.
til 22. september. Nánari upplýs-
ingar er að finna á Facebook-síðu
Lókal og á lokal.is.
„Við hvetjum auðvitað allt sviðs-
listafólk og listafólk almennt til
þess að mæta en svo er þetta hugs-
að fyrir áhugafólk um leikhús og
dægurmál og menningu. Viðburð-
irnir taka á sögu og sjálfsmynd
Íslendinga með mismunandi hætti.
Við erum að vonast til þess að fá
líka inn fólk sem fer sjaldan eða lít-
ið í leikhús vegna þess að þetta er
öðruvísi leikhúsupplifun,“ segir
Eva.
Morgunblaðið/Eggert
Stjórnendur Eva Rún (t.v.) og Vala (t.h.) eru listrænir stjórnendur Lókal.
Þær stýra nú hátíðinni í fyrsta skipti og hafa breytt áherslum hennar.
Fanga það sem gerist í ferlinu
Leiklistarhátíðin Lókal hefst í dag Áherslan á verk í vinnslu Ýmislegt
magnað og óvænt gerist í sköpunarferlinu Vinnuferlið er afurð í sjálfu sér
Birgitta Spur, ekkja myndhöggv-
arans Sigurjóns Ólafssonar, opnar í
dag yfirgripsmikla yfirlitssýningu á
verkum listamannsins í Listasafninu
í Tønder í Danmörku. Sýningunni,
sem nefnist Mangfoldige former eða
Fjölbreytt form, er ætlað að gefa
yfirlit yfir langan og fjölbreyttan
feril listamannsins sem vann í ýms-
um stílum og ólíkum formum.
„Sigurjón hefur árum saman ver-
ið sniðgenginn listamaður í dönsku
samhengi. Þessu vill Listasafnið í
Tønder ráða bót á með sýningunni
og útgáfu bókar samhliða,“ segir í
tilkynningu frá Listasafninu í Tøn-
der. Þar kemur fram að safnið líti á
það sem ábyrgð sína að beina kast-
ljósinu að mikilvægri norrænni list.
„Sigurjón var norrænn listamaður
sem deildi lífi sínu milli Íslands og
Danmerkur. Verk hans eru greini-
lega innblásin af listaumhverfinu og
þeirri listrænu þróun sem átti sér
stað í báðum löndum,“ segir í til-
kynningu og rifjað upp að þrátt fyrir
að Sigurjón hafi verið áberandi í
dönsku listalífi hafi hann fallið í
gleymskunnar dá í Danmörku þegar
hann flutti alfarið heim til Íslands
eftir seinna stríð.
„Með sýningunni er ætlunin að
endurheimta réttmætan sess Sigur-
jóns í dönsku listasögunni,“ segir í
tilkynningu og bent á að Sigurjón
hafi átt mikilvægan sess í íslensku
listasögunni enda „leiddu hæfileikar
hans til þess að hann var beðinn að
þjóna þjóð, sem nýverið hafði endur-
heimt sjálfstæði sitt, og skapa fjölda
opinberra verka“. Bent er á að
stofnun Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar í árslok 1984 sem opnað var
almenningi 1988 hafi átt mikilvægan
þátt í að halda orðspori listamanns-
ins á lofti í íslenskri listasögu. Sýn-
ingin stendur til 1. mars 2020.
„Endurheimta rétt-
mætan sess Sigurjóns“
Yfirlitssýning á verkum Sigurjóns
Ólafssonar opnuð í Danmörku í dag
Ljósmynd/Skarphéðinn Haraldsson
Myndhöggvari Sigurjón Ólafsson í
Laugarnesi við Faðmlög frá 1949.
Hafrún nefnist sýning sem opnuð
verður í Verksmiðjunni á Hjalteyri í
dag. Þar sýna Sonia Levy og Karen
Kramer, en sýningarstjóri er Gústav
Geir Bollason. Í tilkynningu frá skipu-
leggjendum kemur fram að Levy og
Kramer, sem starfa í London, deili
áhuga sínum á sjávarlífverum, um-
hverfisbreytingum af mannavöldum
og flækjuhegðun lífkerfa. Titill sýn-
ingarinnar er gælunafn sem notað er
um elstu þekktu skelfisktegund af
ættinni Arctida islandica, eða kúfisk.
Sýningin stendur til 13. október.
Skel Meðal þess sem sjá má á Hjalteyri.
Hafrún opnuð á
Hjalteyri í dag
Ný málverk nefnist sýning sem Pét-
ur Gautur opnar í Gallerí Fold í dag.
„Pétur Gautur er vel þekktur fyr-
ir tímalausar uppstillingar sínar og
ferskt litaval í málverki. Pétur Gaut-
ur aðhyllist einfaldleikann, notar fáa
liti en vel valda og oft bara einn
pensil. Uppstillingin er klassískt við-
fangsefni í listasögunni sem býður
þó alltaf upp á nýja nálgun sem Pét-
ur Gautur hefur í gegnum tíðina
kannað og leikið sér með. Enn eitt
tilbrigðið má sjá á þessari sýningu
sem hann kallar Ný málverk. Við-
fangsefni sýningarinnar eru upp-
stillingar og blóm í villtum dansi og
litadýrð,“ segir í tilkynningu. Sýn-
ingin stendur til 28. september.
Blóm Verk eftir Pétur Gaut.
Pétur Gautur með
Ný málverk í Fold