Morgunblaðið - 14.09.2019, Síða 53

Morgunblaðið - 14.09.2019, Síða 53
MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019 Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Ljósmyndasýning fimm norrænna ljósmyndara, eins frá hverju landi, verður opnuð í Ljós- myndasafni Reykjavíkur kl. 15 í dag. Sýningin hefur áður verið sett upp í Fotografisk Center í Kaupmannahöfn og Hasselblad Center í Gauta- borg. Ljósmyndararnir eru allir að fást við það sem er efst á baugi í samtím- anum, hver með sínum hætti. „Í gegnum tíðina hefur oft verið kannað hvað sé sam- eiginlegt í norrænni ljós- myndun. Nú einblínum við fremur á það hver staðan er núna, hvaða áhrif eru að koma inn í norræna ljós- myndun og hvernig hún fer út fyrir sín landamæri. Það er mjög mismunandi hvern- ig þetta birtist í verkum ljósmyndaranna,“ segir Jóhanna Guðrún Árnadóttir, sýningarstjóri sýningarinnar sem ber heitið Stefnumót – Nor- ræn ljósmyndun út yfir landamæri. Titillinn vís- ar í stefnumót listrænnar tjáningar ljósmynd- aranna, stefnumót mannlegra samskipta, norræns menningarheims og annarra menning- arheima, og stefnumót þess persónulega og þess opinbera. Bára Kristins fyrir Ísland Á sýningunni er kastljósinu beint að innflytj- endamálum, breytingum á landslagi og borgum sem og staðbundnum afleiðingum alþjóðavæð- ingar. „Bára Kristinsdóttir sem kemur frá okkur sýnir verk sem hún hefur sýnt áður. Það eru ljósmyndir af verkstæði í Garðabæ. Við veljum þetta verk Báru inn á sýninguna vegna þess að það er dæmi um staðbundna framleiðslu sem líður undir lok vegna þess að hún getur ekki keppt við kínverska framleiðslu,“ segir Jó- hanna. „Finnski ljósmyndarinn Miia Autio sýnir verk sem eru helst út frá flóttamannavandanum. Hún er með portrett af flóttafólki frá Rúanda sem hefur sest að í Evrópu og í bakgrunni portrettmyndanna er myndefni af heimalandi þess. Með þessu er Miia að velta fyrir sér sam- bandi milli heimalands, landslags, og sjálfs- myndar.“ Norski ljósmyndarinn Sandra Muj- inga er að sögn Jóhönnu mjög þekkt í listaheiminum. „Hún er orðin hálfgerð súper- stjarna þar. Sandra er öll í þessu stafræna og samfélagsmiðlatengda. Hennar verk fjallar um vináttu, hvernig fólk hittist í raunheimi og staf- rænum heimi.“ Verk margra ljósmyndaranna eru pólitísk. „Á mildan hátt þó, það er ekki verið að taka neina afstöðu, einungis að varpa ljósi á það sem hefur gerst. Það er alls enginn áróður eða neitt þann- ig, heldur verið að sýna stöðuna sem er núna,“ segir Jóhanna. Þó er aðgerðasinni í hópnum, hinn sænski Johannes Samuelsson sem fjallar um taílenskt vinnufólk sem starfar í berjaiðn- aðnum í Norður-Svíþjóð. „Það má eiginlega segja að þetta sé svona ljósmyndaritgerð þar sem hann tekur fyrir farandverkamenn sem koma í þessa tímabundnu vinnu í berjatínslunni. Af ljósmyndurunum er hann einna helst sá sem lætur í ljós skoðanir. Svo fléttast kapítalisminn inn í þetta. Farandverkamennirnir fá lágt kaup og svo fara berin á vörusýningu í Frankfurt þar sem þau eru seld dýrum dómum,“ segir Jó- hanna. Flækingshundar í Búdapest Hin danska Nanna Debois Buhl er einnig með pólitískar skírskotanir í sínu verki sem unnið er út frá borgarþróun. „Sum verkin eru þannig að það er ekki augljóst hvað er að baki. Nanna er til dæmis með stór og mikil bláprent, og myndband af flækingshundum í Búkarest. Myndefnið varpar ljósi á það sem getur gerst út frá pólitískum ákvörðunum,“ segir Jóhanna. Pólitíska ákvörðunin sem Nanna vísar til er ákvörðun kommúnistastjórnar í Búkarest, höfuðborgar Rúmeníu, sem laut að því að varð- hundar voru skildir eftir þegar ríkisstjórn Nicolae Ceauescu, fyrrverandi forseta Rúmen- íu, lét jafna við jörðu íbúðahverfi á mörkum borgar og dreifbýlis. Síðan þá hafa flækings- hundar verið mikið vandamál í Búkarest. „Þú þarft aðeins að þekkja forsöguna þegar þú sérð verkin hennar Nönnu en þau eru dæmi um þýðingu sem er ekki alveg augljós,“ segir Jóhanna. Sýningin mun standa í Ljósmyndasafni Reykjavíkur fram í janúar. Hún er afurð sam- vinnu sýningarstjóra og stofnana frá norrænu löndunum fimm. Ísland er þá þriðja norræna landið sem hýsir sýninguna en enn er ekki ákveðið hvenær og hvar hún verður sýnd í Nor- egi og Finnlandi. Ljósmynd/Nanna Debois Buhl Rúmenía Úr ljósmyndaseríunni Hundarnir á svæði X eftir hina dönsku Nönnu D. Buhl. Hún tók myndir af flækingshundum í Rúmeníu og má hér sjá einn slíkan gefa ljósmyndara gaum. Ljósmyndun út fyrir landamæri  Stefnumót fimm norrænna ljósmyndara í Ljósmyndasafni Reykjavíkur  Fást við það sem er efst á baugi í samfélagsumræðunni  Flóttafólk, erlent vinnuafl, flækingshundar og gömul verksmiðja Jóhanna Guðrún Árnadóttir TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Máttur tónlistarinnar geturverið mikill. Fólk hvað-anæva úr heiminum get- ur sameinast í skilningi á því að, jú, þetta lag er fallegt, ástríðu- fullt og tært. Tárin falla, hvort heldur í Simbabve eða á Sauðár- króki. Daniel Johnston, banda- rískur utangarðstónlistarmaður („outsider artist“) hafði þetta á valdi sínu. Tónlist hans þykir svo einlæg, fegurðin svo óheft og náttúruleg að það er erfitt að hrífast ekki með. Þetta stælaleysi hitti Kurt heitinn Cobain t.a.m. í hjartastað á sínum tíma og eftir að dánartilkynningin barst nú á miðvikudaginn hafa tónlistarmenn á borð við Glen Hansard og Beck vottað virðingu sína. En líka fólk úr öðrum geirum og þannig hafa „Hæ, hvað segir þú gott?“ Alvöru Johnston heldur á snældu sinni, Yip/Jump Music, árið 1983. Elijah Wood og Judd Apatow t.d. stigið fram sem aðdáendur. Tónlistarkonan Zola Jesus segir á tístreikningi sínum: „Ég mun aldrei ná að lýsa nógsamlega vel hversu rík áhrif Daniels voru á mig sem tónlistarmann. Hrein- leikinn sem hann bar með sér hvatti mig til að fylgja hjartanu í minni sköpun, sama hversu ein- föld eða „ófullkomin“ hún væri.“ Þrátt fyrir daglegar orrustur Johnstons við geðhvarfasýki mest- an hluta ævi sinnar átti hann allt- af aðdáendur vísa og orðspor Johnstons byggist ekki á með- aumkun eða fyrirgreiðslu. Tónlist hans, sem hann dældi út allar göt- ur síðan 1980 í umtalsverðu magni og mest á kassettum, heill- aði fólk sökum einlægrar tján- ingar og fallegra, þekkilegra mel- ódía. Sum lögin slúta hálfpartinn yfir vögguvísusvæðinu og lagatitl- ar eins og „I Am A Baby (In My Universe)“, „Since I Lost My Tooth“ og „Don’t Be Scared“ bera viðkvæmnislegum, barns- legum huga vitni. Johnston varð að því sem kallað er „költ-fígúra“ um miðjan níunda áratuginn og neðanjarðarrokkstjörnur eins og Sonic Youth, Yo La Tengo og Kurt Cobain áttu eftir að taka hann upp á arma sína og tryggðu honum þar með ákveðið braut- argengi í músíkkreðsum. Árið 2005 kom út heimildar- myndin The Devil and Mr. John- ston. Hún fjallar um ævi John- stons og vakti mikla athygli. Það er ótrúlegt að fylgjast með þróun og þroska Johnstons. Í æsku og á unglingsárum var sköpunargleðin hamslaus; hann teiknaði, bjó til bíómyndir og samdi lög á gítar og píanó allan liðlangan daginn, alla daga. Johnston fór svo að fikta við LSD upp úr tvítugu og við- kvæm sálin fékk á sig stórt högg. Hann fékk djöfulinn á heilann og var settur á stofnun og var inn og út af þeim upp frá því. Fyrirsögn greinarinnar vísar í líkast til þekktustu afurð John- stons. Það var í september 1992 sem Kurt Cobain, leiðtogi Nirvana og umtalaðasta rokkstjarna heims á þeim tíma, mætti á MTV-verð- launin í hvítum T-bol. Á honum var umslagið á kassettu John- stons, Hi, How Are You, frá 1983. Cobain kom fram í bolnum í margar vikur á eftir og til er fjöldi ljósmynda af Cobain, íklæddum honum. Þessi einfalda gjörð Cobains, að klæðast uppá- haldsbol, varð til þess að áhugi á Johnston óx gríðarlega á tíunda áratugnum. Við Íslendingar vor- um þá svo heppin að fá hann í heimsókn, en hann lék á eftir- minnilegum tónleikum í Fríkirkj- unni árið 2013. Greinarhöfundur hitti John- ston að máli eftir tónleika á Hró- arskelduhátíðinni árið 2003. Ég settist niður með honum rétt fyrir gigg og hann ræddi á einlægan hátt um ferilinn og hvatann að listsköpun sinni og bauð kurt- eislega upp á Coca Cola. Bróðir hans gegndi þá stöðu umboðs- manns og hann fylgdist með af sannri bróðurlegri ástúð. Þegar að tónleikum var komið var tjald- ið smekkfullt af fólki sem hlustaði í andakt á hvert og eitt einasta lag. Johnston vafði fólki létt og löðurmannlega um fingurinn, al- gjörlega ómeðvitaður um áhrifin sem hann hafði. Hvíl í friði, minn kæri, þú vannst fyrir því þúsund sinnum. » Í æsku og á ung-lingsárum var sköp- unargleðin hamslaus; hann teiknaði, bjó til bíó- myndir og samdi lög á gítar og píanó allan lið- langan daginn, alla daga. Tónlistarmaðurinn goðsagnakenndi Daniel Johnston kvaddi þessa jarðvist, 58 ára gamall, í vikunni. Hjartað gaf sig, en þessi einstaki jaðartónlistarmaður átti hins vegar hjörtu svo ótal margra og þannig greindu helstu meginstraumsmiðlar frá andláti hans. En hver var þessi sérstæði tónlistarmaður?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.