Morgunblaðið - 14.09.2019, Page 56
Verðlaunasýningin Lífið – stór-
skemmtilegt drullumall snýr aftur á
svið í Tjarnarbíói. Fyrsta sýning er í
dag kl. 13. Lífið hlaut Grímuna 2015
sem barnasýning ársins og hefur á
síðustu árum verið sýnd víðs vegar
um heiminn við góðar viðtökur.
Leikendur eru Sólveig Guðmunds-
dóttir og Sveinn Ólafur Gunnars-
son. Listrænir stjórnendur eru
Helga Arnalds og Charlotte Bøving.
Lífið snýr aftur á svið
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 257. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Bikarúrslitaleikur Víkings og FH í
fótbolta karla fer fram á Laugar-
dalsvellinum í dag. Víkingar freista
þess að vinna sinn fyrsta bikar-
meistaratitil frá árinu 1971 en FH
varð bikarmeistari í annað skipti
árið 2010. Ólíklegt er að Kári
Árnason nái að taka þátt í leikn-
um með Víkingum. »47
Víkingur og FH í bik-
arúrslitaleiknum
Er þetta faraldur, Haraldur? er yfir-
skrift söngtónleika fyrir börn og
fullorðna sem haldnir verða í Saln-
um í dag, laugardag, kl. 13. Þar
hyggjast Hallveig Rúnarsdóttir
sópran og Hrönn Þráinsdóttir
píanóleikari kynna áhorfendum
tónsmíðar Atla Heimis Sveinssonar,
Hildigunnar Rúnarsdóttur og
Tryggva M. Baldvinssonar. „Kisa
mín, Tengdamæðurnar, Fingur-
björg, Haraldur kjúk-
lingur og fleiri kyn-
legar verur lifna við á
tónleikunum í líf-
legum flutningi
þeirra Hallveigar
og Hrannar,“ seg-
ir í tilkynningu.
Aðgangur er
ókeypis.
Söngtónleikar fyrir
fjölskylduna í Salnum
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Sigmundur Sigurgeirsson
sigmundur@novacon.is
Þeir voru glaðbeittir fjallmenn og
fjáreigendur í Hrunamannahreppi
sem drógu fé sitt í dilka í Hrunarétt-
um í gær. Margir voru mættir á
svæðið til að upplifa hina einu sönnu
réttarstemningu sem er órofa hluti
haustsins til sveita. Veðrið lék við
Hrunamenn, líkt og það hafði gert
við þann 40 manna hóp sem hafði
undanfarna viku sótt féð inn á afrétt.
Þægilegasta fjallferðin
„Þetta er sennilega þægilegasta
fjallferð sem ég hef upplifað,“ sagði
Jón Bjarnason, fjallkóngur Hruna-
manna, við Morgunblaðið. Hann
sagði að talsvert af fé hefði verið
komið á heimleið og tilbúið að kom-
ast í heimahagana. „Maður sá varla
fé fyrr en niðri við Svínárnes,“ bætti
hann við.
Veður á fjallmönnum var einnig
gott að sögn Jóns. „Ég fór aldrei í
gallann og það var hið prýðilegasta
veður allan tímann,“ sagði fjallkóng-
urinn ungi. Hann taldi að um 4.500
fjár hefði verið hleypt á afréttinn
þetta sumarið. Það er talsvert færra
en á árum áður þegar fjársafn
Hrunamanna var allt upp í um 14
þúsund fjár. Fjallmenn töldu að
heimtur væru nokkuð góðar.
„Það verður samt alltaf að vera
eitthvað fyrir eftirleitina að gera,“
sagði einn þeirra í samtali við blaðið.
Söngur og kjötsúpa
Fjárbændur eru allnokkrir í
Hrunamannahreppi en þeir eru ekki
margir með stór bú. Það dregur þó
ekki úr áhuga hjá fólki að mæta og
bros voru á ungviðinu sem var dug-
legt við að elta uppi lömbin og koma
til eigenda sinna.
Líkt og jafnan mæta margir brott-
fluttir Hrunamenn í réttirnar og
margir hittast nær eingöngu þar, ár
eftir ár. Einhverjir höfðu gert sér
ferð heim í sveitina frá útlöndum.
Hin síðari ár hefur verið byrjað að
draga um klukkan 10 að morgni og í
hádeginu er tekið kaffihlé, nokkuð
sem sjálfsagt hefði ekki verið tekið í
mál hér fyrr á árum, þar sem við-
fangsefnið var talsvert umfangs-
meira. Hvort sem góðu veðri var að
þakka eða góðri þjálfun fjallmanna
mátti greina að réttarsöngurinn var
með betra móti þetta árið. Að af-
loknum réttum var svo rekið heim
þar sem kjötsúpan beið margra.
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Safn Vel á fimmta þúsund fjár var á afrétti Hrunamanna og var þorri þess dreginn í dilka í réttunum í gær.
Hin sanna réttarstemning
Hrunamenn
drógu í dilka í
haustblíðu
Athugull Það er jafnan þéttskipað við dilkinn frá Auðsholtsbæjunum. Hér
kannar Steinar Halldórsson bóndi hvort ekki séu ær frá sér innan seilingar.