Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Page 7
VIRK
Fleiri háskólamenntaðir
einstaklingar
Mun fleiri háskólamenntaðir einstaklingar
leituðu til VIRK á síðasta ári samanborið við
fyrri ár. Þetta má m.a. sjá á myndinni um
menntunarstig hér á síðunni. Sjá má að
fjöldi einstaklinga með minni menntun helst
nokkuð stöðugur á milli ára en 130 fleiri
háskólamenntaðir einstaklingar leituðu til
VIRK á síðasta ári samanborið við árið 2017.
Í raun er hægt að skýra fjölgun einstaklinga
í þjónustu VIRK milli áranna 2017 og 2018
að mestu með fjölgun háskólamenntaðra
einstaklinga í þjónustu VIRK.
Andleg vanlíðan
Annað sem vekur athygli þegar gögn
um einstaklinga sem leitað hafa til VIRK
undanfarin ár eru skoðuð er fjöldi þeirra
sem glímir við vandamál af andlegum toga
og hafa af þeim sökum átt erfitt með að
sinna starfi sínu áður en þeir leita til VIRK.
Þetta má m.a. sjá á mynd hér á síðunni
um líðan í vinnu þar sem hlutfall þeirra
sem telja að starfið hafi verið andlega erfitt
og innihaldi of mikið álag fer hækkandi á
undanförnum árum.
Við þetta má síðan bæta að um þriðjungur
einstaklinga sem kom til VIRK á síðasta ári
telur að kulnun hafi haft áhrif á starfsgetu
sína og um þriðjungur nefnir áföll í þessu
samhengi. Ekki eru til samanburðarhæfar
tölur um kulnun og áföll frá fyrri árum þar
sem fyrst var farið að spyrja um þessa þætti
í upplýsingakerfi VIRK á síðasta ári.
Mikil umræða hefur átt sér stað í sam-
félaginu um kulnun og streitu á undanförnum
mánuðum og árum og menn velta því fyrir sér
hvort um sé að ræða alvarlegt samfélagslegt
mein sem mikilvægt er að ná tökum á og
snúa þróuninni við. Ljóst er að vandinn er
til staðar og hann er alvarlegur en við höfum
hins vegar ekki vissu fyrir því að hann sé
alvarlegri núna en fyrir nokkrum árum síðan
því okkur skortir samanburðarhæfar tölur á
milli ára.
Það er einnig rétt að benda á það að ýmis
einkenni kulnunar eru svipuð og einkenni
annarra sjúkdóma svo sem kvíða, þunglyndis
og vefjagigtar og frá upphafi hafa mjög margir
einstaklingar leitað til VIRK með einkenni
þessara sjúkdóma. Einnig er eðlilegt að
einstaklingar spegli sig í þeirri umræðu og
upplýsingum sem fyrir liggja á hverjum tíma.
En það er sama hvernig við skoðum og
veltum fyrir okkur þessum talnalegu upp-
lýsingum, sú staðreynd liggur fyrir að of
Þessi jákvæða
nálgun kallar á
ýmsar breytingar og
öflugar forvarnir sem
hafa það að markmiði
að styðja og efla
getu einstaklinga til
sjálfshjálpar og til að
takast á við áskoranir
og áföll á lífsleiðinni.“
margir einstaklingar og þar á meðal talsvert
af ungu fólki í okkar samfélagi glímir við mjög
alvarlegan vanda af andlegum toga. Vinna
þarf með þennan vanda og mikilvægast af
öllu er að reyna að finna rót vandans og
koma í veg fyrir að þessi þróun haldi áfram.
Í því samhengi þarf að skoða mjög marga
þætti og ég hef áður í greinum mínum hér
í ársriti VIRK bent á fjölmarga þætti í okkar
velferðarkerfi sem þarf að breyta og bæta
til að styðja og hvetja einstaklinga betur til
sjálfshjálpar.
Ný skilgreining á heilbrigði
Í þessu samhengi er einnig áhugavert að
velta því fyrir sér hvernig orðræða okkar er
um heilsu og líðan í samfélaginu, hvaða
kröfur við gerum til lífsgæða og hvaða þættir
700
600
500
400
300
200
100
0
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Menntunarstig - fjöldi
Nýir einstaklingar hjá VIRK 2015-2018
Líðan í vinnu
Svör einstaklinga við spurningum um líðan í starfi
áður en þeir komu í starfsendurhæfingu
2015 2016 2017 2018
2015 2014 2016 2017 2018
Grunnskóli
Var starfið andlega erfitt Of mikið álag
Réttindanám eða námskeið Framhaldsskóli/iðnnám Háskólanám
633
52%55%
568
58% 58%
585 570
60%
66% 67% 69%
72% 72%
98 90
120 125
511 501
552 551
317
390
438
568
7virk.is