Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Blaðsíða 8
það séu sem hafa áhrif á getu okkar til að
mæta áskorunum lífsins. Það er til dæmis
umhugsunarvert að opinber skilgreining á
heilbrigði hefur haldist óbreytt frá árinu 1948
þegar Alþjóða heilbrigðisstofnunin setti fram
þá fullyrðingu að heilbrigði væri „það að
njóta fullkomlega líkamlegrar, andlegrar og
félagslegrar vellíðan en ekki einungis það að
vera laus við sjúkdóma og heilsubrest“.
Á þessum tíma voru smitsjúkdómar ein
helsta ógn við heilsu fólks en í dag eru
langvarandi lífsstílssjúkdómar ein helsta vá
hins vestræna heims og í þeim veruleika
er mjög varhugavert að heilsa geri kröfu
um fullkomna vellíðan á öllum sviðum.
Slík skilgreining getur auðveldlega leitt til
sjúkdómsvæðingar t.d. í kjölfar áfalla og
ýmissa erfiðra atburða í lífi hvers manns.
Machteld Huber, læknir og heimspekingur,
flutti erindi á afmælisráðstefnu VIRK 2018
en hún hefur sett fram nýja skilgreiningu
á heilbrigði sem er sú að heilsa sé „getan
til að aðlagast og stjórna ferðinni þegar
við mætum líkamlegum, andlegum og
félagslegum áskorunum í lífinu“. Hún nefnir
þessa skilgreiningu jákvæða heilsu (Positive
Health) og telur mikilvægt að sjá hlutina í
samhengi, vera við stjórnina, sjá tilganginn
og fara ekki í fórnarlambshlutverkið.
Nálgunin snýst um þrautseigju og það að
vera sjálfur við stjórnvölinn í sínu lífi. Þessi
jákvæða nálgun kallar á ýmsar breytingar og
öflugar forvarnir sem hafa það að markmiði
að styðja og efla getu einstaklinga til
sjálfshjálpar og til að takast á við áskoranir
og áföll á lífsleiðinni.
Í þessu samhengi er einnig mikilvægt að bæði
starfsmenn og stjórnendur í atvinnulífinu
geri sér grein fyrir ábyrgð sinni þegar kemur
að kröfum, aðbúnaði og samskiptum á
vinnustöðum þar sem mikilvægt er að
skapa góðar vinnuaðstæður, stuðla að
góðum samskiptum og möguleikum á
jafnvægi vinnu og einkalífs. Hér bera allir
ábyrgð bæði, starfsmenn og stjórnendur.
VelVIRK – forvarnir,
stuðningur og rannsóknir
Í byrjun árs 2018 ákvað stjórn VIRK að
hrinda af stað og fjármagna sérstakt for-
varnarverkefni til þriggja ára þar sem
markmiðið er að koma í veg fyrir að
einstaklingar hverfi af vinnumarkaði vegna
heilsubrests. Verkefnið er unnið í samstarfi
við Félagsmálaráðuneytið, Vinnueftirlitið
og Landlæknisembættið auk þess sem
fulltrúi Velferðarráðuneytisins hefur setið í
stýrihóp verkefnisins. Verkefnið inniheldur
m.a. eftirfarandi þætti:
Með því að fara í forvarnarverkefni af þessum
toga mun VIRK í samstarfi við aðrar stofnanir
og sérfræðinga nýta á uppbyggilegan hátt
alla þá þekkingu og reynslu sem safnast
hefur innan VIRK og samstarfsstofnana á
aðstæðum og möguleikum einstaklinga sem
lenda í vanda af ýmsum toga með það að
markmiði að koma í veg fyrir aðstæður sem
leiða til óvinnufærni einstaklinga til lengri tíma.
Nánar má lesa um forvarnarverkefnið í viðtali
við teymið sem stendur að baki verkefninu hér
aftar í ársritinu.
VIRK atvinnutenging
í starfsendurhæfingu
Á fyrstu árum starfsemi VIRK var lögð mikil
áhersla á það að byggja upp góðan starfs-
endurhæfingarferil sem uppfyllir tilteknar
faglegar viðmiðanir í samstarfi við fagaðila
um allt land. Samhliða var gæðakerfi innleitt
til að tryggja gæði og öryggi þjónustunnar.
Þessi uppbygging hefur verið árangursrík og
skilað stórum hópi einstaklinga með aukna
vinnugetu í virka atvinnuþátttöku.
Á velvirk.is er
að finna mikið
efni sem fjallar annars
vegar um jafnvægi í
lífinu og hins vegar
um vellíðan í vinnu.
Efnið höfðar bæði
til starfsmanna og
stjórnenda og í raun
til allra sem láta sig
heilsu og vellíðan
varða.“
1 Rannsókn á því hvaða þættir hafa áhrif á það hvort einstaklingar sem
glíma við langtímaveikindi snúi til baka í vinnu. Rannsóknin er unnin í sam-
starfi við Vinnueftirlitið og fleiri aðila.
2 Vitundarvakning um þá þætti á vinnustöðum og í umhverfi einstaklinga
sem geta valdið heilsubresti og óvinnufærni. Þetta er gert í formi stikla og
auglýsinga og fyrsti hluti þeirra birtist í desember 2018 undir yfirskriftinni „Er
brjálað að gera? Vinnum saman að jafnvægi“. Fleiri stiklur eru væntanlegar
á árinu 2019 og verður herferðinni haldið áfram út árið og jafnvel lengur.
3 Vefsíða sem inniheldur ýmsan fróðleik, ráðleggingar, greinar, tæki og
tól til að stuðla að auknu jafnvægi í lífinu og aukinni vellíðan í vinnu. Þessi
síða er komin í loftið og heitir: www.velvirk.is. Á velvirk.is er að finna mikið
efni sem fjallar annars vegar um jafnvægi í lífinu og hins vegar um vellíðan í
vinnu. Efnið höfðar bæði til starfsmanna og stjórnenda og í raun til allra sem
láta sig heilsu og vellíðan varða.
4 Samstarf um heilsueflandi vinnustaði þar sem m.a. á að setja fram viðmið
og leiðbeiningar um þá þætti sem vinnustaðir þurfa að uppfylla til að geta
skilgreint sig sem heilsueflandi vinnustað. Þetta verkefni er í undirbúningi
og í haust verður farið af stað með tilraunaverkefni með þátttöku nokkurra
vinnustaða þar sem þessi viðmið verða þróuð og innleidd og árangurinn
mældur. Byggt er á grunni svipaðra verkefna Embættis landlæknis hvað varðar
Heilsueflandi samfélag og Heilsueflandi skóla sem hafa öll heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna til hliðsjónar eða að leiðarljósi.
8 virk.is