Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Page 9
VIRK
Það er enginn
einn sem finnur
lausnina heldur næst
árangurinn fyrst og fremst
í samstarfinu þar sem
framlag allra er mikilvægt
og mikilvægast af öllu er
að hlusta á einstaklinginn,
hvetja hann og styðja
til aukinnar getu og
sjálfshjálpar.“
Á undanförnum þremur árum hefur síðan
verið þróuð mjög markviss þjónusta – VIRK
atvinnutenging - sem miðar að aukinni
atvinnutengingu í starfsendurhæfingu og
ráðnir hafa verið inn sérhæfðir atvinnulífs-
tenglar sem aðstoða einstaklinga við að finna
störf við hæfi í lok starfsendurhæfingarferils.
Litið er á þessa þjónustu sem hluta af starfs-
endurhæfingarferlinu og stendur hún þeim
einstaklingum til boða sem ekki hafa getu
til að finna sjálfir starf á vinnumarkaði í lok
starfsendurhæfingar.
VIRK atvinnutenging hefur skilað mjög
góðum árangri sem Jónína Waagfjörð,
sviðsstjóri hjá VIRK, gerir betur grein fyrir
í grein sinni hér aftar í ársritinu. Það hefur
verið sérstaklega ánægjulegt að vinna með
fyrirtækjum um allt land í þessu verkefni
og það er ljóst að það eru til staðar ótal
tækifæri í atvinnulífinu fyrir einstaklinga
með skerta starfsgetu ef tryggður er
viðunandi stuðningur og þjónusta.
Þróun og samstarf
VIRK hefur á undanförnum 10 árum verið
að þróa stöðugt þjónustu sína í takt við
reynslu, árangur og rannsóknir hérlendis og
erlendis. Markmiðið er ávallt að bjóða upp á
faglega þjónustu af bestu gæðum sem skilar
árangri fyrir bæði einstaklinga og samfélag.
Starfsendurhæfing er tiltölulega ný faggrein
sem er í stöðugri þróun um allan heim.
Einstaklingar sem þurfa á starfsendur-
hæfingu að halda eru undantekningarlítið að
glíma við flókinn vanda og flóknar aðstæður
sem kallar á það að mismunandi fagstéttir
vinni saman að því að veita meðferð og
finna lausnir auk þess sem nauðsynlegt er
að ólíkar stofnanir velferðarkerfisins vinni
saman út frá þeim fjölbreyttu þörfum sem
einstaklingar hafa.
Það er enginn einn sem finnur lausnina
heldur næst árangurinn fyrst og fremst
í samstarfinu þar sem framlag allra er
mikilvægt og mikilvægast af öllu er að
hlusta á einstaklinginn, hvetja hann og
styðja til aukinnar getu og sjálfshjálpar.
Það er því mikilvægt þegar byggð er upp
þjónusta á sviði starfsendurhæfingar að
nálgast það verkefni með bæði auðmýkt
og í vissu um að sífellt sé unnt að gera
betur og læra af reynslu og rannsóknum.
Hafa þarf það einnig í huga að þjónusta á
sviði starfsendurhæfingar mun alltaf taka
mið af því velferðarkerfi og þeim sam-
félagslega veruleika sem er til staðar á
hverjum tíma. Þjónustan getur því aldrei
átt sér stað í tómarúmi heldur aðeins í
samstarfi við fjölda ólíkra aðila þar sem
hver um sig leggur sitt af mörkum og ávallt
með hagsmuni einstaklinga í forgrunni.
Velvirk.is
9virk.is