Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Side 14
HLUTVERK VIRK ER AÐ EFLA
STARFSGETU EINSTAKLINGA
Í KJÖLFAR VEIKINDA EÐA
SLYSA MEÐ ÁRANGURSRÍKRI
STARFSENDURHÆFINGAR-
ÞJÓNUSTU OG MEÐ AUKINNI
ÞEKKINGU, RANNSÓKNUM
OG REYNSLU TRYGGIR VIRK
SAMÞÆTTA, ÁRANGURSRÍKA
OG ÖRUGGA ÞJÓNUSTU Á
ÞVÍ SVIÐI.
VIRK ATVINNUTENGING
TIL VINNU Á NÝ
S
amkvæmt lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu nr. 60 frá árinu
2012 (10. grein, lið d.), þá er hlutverk VIRK einnig að „Veita atvinnurekendum
og stjórnendum nauðsynlega fræðslu og stuðning með það að markmiði
að stuðla að endurkomu einstaklinga til starfa eða auka möguleika þeirra
til þátttöku í atvinnulífinu þrátt fyrir skerta starfsgetu vegna heilsubrests í kjölfar
veikinda eða slysa.“
Með þessi hlutverk að leiðarljósi var farið af stað með sérstakt þróunarverkefni
árið 2016 þar sem stefnt var að því að tengja einstaklinga með skerta starfsgetu
markvisst við vinnumarkaðinn áður en starfsendurhæfingu þeirra lauk. Því fyrr sem
einstaklingar reyna endurkomu til vinnu eftir veikindi eða slys, því líklegra er að þeir
komist aftur út á vinnumarkaðinn og því er mikilvægt að gefa einstaklingum tækifæri
til að komast í vinnu við hæfi snemma í starfsendurhæfingarferlinu.
Hrönn Hinriksdóttir, Þóra Friðriksdóttir, Fabio La Marca, Anna Lóa Ólafsdóttir, Þorsteinn Gísli Hilmarsson, Katrín Monika Jósefsdóttir,
Linda Huld Loftsdóttir, Sigurbjörg Gunnarsdóttir, Helena Konráðsdóttir.
14 virk.is