Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Side 28
Hvernig hefjast ráðagerðir með
þjónustuþega?
„Komi til dæmis til mín kona sem er orðin
ófær um að sinna sínu fyrra stafi, kannski
farin að eldast og þreytast, þá förum við í
greiningarvinnu. Er konan þannig til heils-
unnar að hún þurfi að vera í breytilegri
líkamsstöðu? Vill hún vinna á fámennum
eða fjölmennum vinnustað, hver er reynsla
hennar áður – hefur hún sinnt mörgum
börnum, þolir hún mikið áreiti? Sumir geta
ráðið sig í framreiðslu, pökkun á matvælum
eða í eldhússtörf. Það er ótrúlegt hve
vel hefur oft gengið að finna heppilegan
vinnustað fyrir þá sem njóta þjónustu VIRK.
Sumir hafa farið í styttri, skrifstofutengd
námskeið sem gefa möguleika á að fá
skrifstofustarf.“
Eru störf félaga í Eflingu fjölbreytt?
„Já, innan Eflingar, sem er stórt stéttarfélag,
er fólk til dæmis í verkamannastörfum,
vinnur í leikskólum, í veitingageiranum,
við akstur bíla og ræstingar – þetta er ekki
tæmandi upptalning. Eflingarfólk er að mínu
mati almennt afar öflugir einstaklingar.
Margir sem leita til VIRK gera það í kjölfar
slysa, einnig er algengt að til okkar komi
slitið verkafólk sem er orðið ófært um að
sinna sínu fyrra starfi og þarf að komast inn
á annan starfsvettvang. Okkar félagsmenn
starfa gjarnan í upphafi á mannmörgum
vinnustöðum. Margir byrja sinn vinnuferil
í Eflingu, sinna til dæmis ýmsum störfum
meðfram námi.“
Eru margir erlendir þjónustuþegar sem
leita endurhæfingar hjá VIRK?
„Já, við erum einnig með marga erlenda
félagsmenn innan okkar raða, við erum
að sinna fólki sem kemur alls staðar að
úr heiminum. Mér hefur fundist það
skemmtilegt. Ég hef unnið hjá VIRK í nær ára-
tug og í gegnum það starf hef ég í samstarfi
við erlent fólk kynnst fjölbreytilegum
menningarheimum. Ég hef til dæmis fengið
vitneskju um hvernig menntakerfi í hinum
ýmsu löndum er uppbyggt og þetta hefur
vakið áhuga minn á ferðalögum.“
Eiga erlendir starfsmenn við önnur
vandamál að etja en Íslendingar?
„Erlent fólk er að berjast við sömu vanda-
málin og við hér hvað heilsufar snertir en
félagslegur stuðningur við útlendinga sem
starfa hér er oft mun minni en landsmanna
yfirleitt. Fjölskyldur erlendra einstaklinga
eru oftast í heimalöndum þeirra og þeir þá
frekar einir á báti hér en Íslendingar. Þá
er það okkar að leiðbeina viðkomandi um
hvernig kerfið hér er uppbyggt. Ég gæti þess
þó að halda mig við ráðgjafahlutverkið.“
Hvernig hefur þér gengið að halda þér frá
of nánum tengslum við þjónustuþega?
„Það hefur gengið ágætlega en óneitanlega
hefur maður oft á tíðum mikla samkennd
með fólki sem á í erfiðleikum, hvort sem það
er erlent eða íslenskt. Ég reyni að aðstoða
fólkið eftir bestu getu en jafnframt að gera
einstaklingana sjálfstæða í ferlinu. Það er
mikilvægt.“
Aldrei í sama starfið
dag frá degi
Hefur starf þitt tekið miklum breytingum
undanfarin ár?
„Ég lýsi starfinu mínu gjarnan þannig að ég
komi aldrei í sama starfið dag frá degi. Svo
miklar eru breytingarnar og svo margþætt er
starfið. Mér hentar þetta vel, finnst gaman
að takast á við breytingar og sjá framþróun
verða. Öllum ábendingum um hugsanlegar
betrumbætur er vel tekið hjá skrifstofu
VIRK. Efling og VIRK eru raunar yndislegir
vinnustaðir. Ég hef starfað hjá VIRK í átta ár
og hef því í ýmsum efnum farið í gegnum
„tímana tvenna“. Fyrstu árin var VIRK að
slíta barnsskónum, ef svo má segja.“
Hvað „skónúmer“ er starfsemin komin
upp í núna?
„Kannski númer 37,“ segir Ingibjörg og
hlær. „Við erum alltaf að vinna í að bæta
okkar verkferla og vinnulag. Ég hef verið
heppin að vera svona lengi hér og hafa
fengið að taka þátt í þessari þróun.“
Er sjúkraþjálfaramenntun gagnleg í
starfinu hjá VIRK?
„Ég vann sem sjúkraþjálfari í fjórtán ár í
Reykjavík, Keflavík og Hafnarfirði. Í mínu
starfi hér sem ráðgjafi nýtist reynsla mín
sem sjúkraþjálfari afskaplega vel. Ég hef
gjarnan sagt: „Sjúkraþjálfari er fimmtíu
prósent sjúkraþjálfari og fimmtíu prósent
sálfræðingur.“ Það skapast svo mikil nánd
á milli sjúkraþjálfara og þeirra sem eru í
meðferð hjá þeim. Ég hef alltaf haft gaman
af að vinna með fólki, kynnast því og læra
af því.“
Hafa úrræðin breyst mikið þessi ár sem
þú hefur starfað hjá VIRK?
„Já og þeim hefur fjölgað. Við ráðgjafarnir
hér hjá Eflingu ræðum gjarnan um reynslu
af hinum mismunandi úrræðum, hvaða
endurgjöf við fáum frá þjónustuþegum,
hvernig fræðsla nýtist og þannig mætti áfram
telja. Stundum þarf maður dálítið að þreifa
sig áfram með hvað gæti nýst viðkomandi
einstaklingi og fylgjast svo með hvernig þau
úrræði henta sem verða fyrir valinu. Fari
óreynd manneskja á tölvusviði á námskeið
í þeim fræðum þarf að skoða hvernig það
reynist, hvort það er að skila henni þeim
árangri sem lagt var upp með. Stundum
tekur maður rangar ákvarðanir í þessum
efnum en stundum líka hárréttar.“
Eru þeir sem koma til þín í ráðgjöf óvissir
um hvað gera skal?
„Það kemur fyrir. Þá þarf viðkomandi
kannski að fá að reka sig á – bara eins
og gerist í lífinu yfirleitt. Við nálgumst
einstaklinginn sem til okkar leitar þannig
að hans óskir og væntingar komi fram.
Maður spyr hvernig viðkomandi sjái fyrir sér
að hægt sé að aðstoða hann. En auðvitað
þarf að greina á milli hvað er hægt og hvað
ekki. Hvaða úrræði væru líklegust til að skila
einstaklingnum aftur út á vinnumarkaðinn.“
Hvað ef fólkið sem kemur til þín gerir sér
óraunhæfar væntingar um störf?
„Sumir sem til okkar leita eiga sér vissulega
drauma sem ekki eru raunhæfir. Aðrir eiga
sér drauma sem geta hugsanlega ræst
síðar. Framtíðarsýnin er í fyrirrúmi hér. Við
tölum mikið um framtíðina, að viðkomandi
einstaklingur setji sér markmið til skemmri
Við leitumst
við að koma fólki
til vinnu sem
fyrst en hjálpa
þeim jafnframt
að skipuleggja sig
þannig að sýn til
lengri tíma verði
að veruleika.
Við notum mikið
markþjálfun,
einkum með ungu
fólki og þeim sem
vilja skipta um
starfsvettvang.“
28 virk.is