Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Page 29
VIÐTAL
og lengri tíma. Félagsmenn í Eflingu sem
til okkar leita langar oft í allskonar nám,
einkum þeir yngri. Þá er það hluti af lengri
framtíðarsýn. Við reynum þá að móta stefnu
sem skilar þeim í átt að þeirra löngun eða
draumi. Með öðrum orðum: „Hvað getum
við gert til skemmri tíma sem hluta af
framtíðarsýn til lengri tíma“. Við leitumst við
að koma fólki til vinnu sem fyrst en hjálpa
þeim jafnframt að skipuleggja sig þannig
að sýn til lengri tíma verði að veruleika. Við
notum mikið markþjálfun, einkum með
ungu fólki og þeim sem vilja skipta um
starfsvettvang.“
Þurfum að styðja unga fólkið
okkar betur
Er markþjálfun áhrifarík aðferð?
„Markþjálfun byggist að talsverðu leyti á
spurningu eins og til dæmis: „Hvar sérðu
þig eftir ár?“ eða lengri tíma. Aðferðin
byggir á að setja sér markmið til skemmri
og lengri tíma. Markþjálfun nýtist vel þeim
sem eru stefnulausir eða þurfa heilsu sinnar
vegna að komast á nýjan vinnuvettvang.
Markþjálfar okkar sinna þessu úrræði vel.
Grunnþjónusta VIRK er að fólk stefni út á
vinnumarkaðinn. Ef við finnum lítinn áhuga
þá beitum við áhugahvetjandi aðferð til að
auka áhugann á komast til vinnu.“
Hver er stærsti hópurinn sem til ykkar
leitar?
„Við erum að þjónusta fleiri konur en karla
og meira af yngra fólki en áður. Sá myrki
raunveruleiki blasir við að ungt fólk í vanda er
stækkandi hópur. Mín skoðun er að það þurfi
að taka betur utan um þennan hópi á vettvangi
menntakerfis og heilbrigðisþjónustu. Það þarf
að styðja unga fólkið okkar betur út í lífið. Ég
er ekki að gera lítið úr þeim sem vinna innan
þessara kerfa heldur benda á hvernig kerfin
eru byggð upp.“
Hvað finnst þér hafa verið mesta
breytingin í sambandi við VIRK?
„Að fá gæðavottun sem gerir vinnuferlana
skilvirkari og ná yfir allt landið. Það veitir
yfirsýn og öryggi. Gæðavottunin var tekin í
gagnið fyrir tveimur árum.“
Hvernig gengur ykkur ráðgjöfum
Eflingar hjá VIRK að finna störf fyrir
þjónustuþega?
„Ráðgjafar Eflingar eru duglegir, við höfum
þurft að bjarga okkur. Hér er starfsfólk sem
hefur unnið hjá Vinnumálastofnun, það
gagnast okkur inni í teyminu. Við setjum
upp ferilskrá og kynningarbréf með okkar
þjónustuþegum, hjálpum þeim að finna störf
og fylgjum því eftir. Segja má að þetta gangi
ótrúlega vel. Atvinnulífstenglarnir sinna
einkum þeim sem þurfa meiri stuðning.
Við ráðgjafarnir metum það hvaða fólk þarf
mikinn stuðning.“
Hver er meðaltími á þjónustu VIRK hjá
ykkur?
„Meðaltími á þjónustu hjá VIRK er fjórtán
mánuðir á landsvísu og við erum á því
róli. Þetta er þó auðvitað mismunandi
eftir einstaklingum. Sumir eru hér kannski
bara í sex mánuði meðan aðrir þurfa
lengri tíma. Hér hjá Eflingu hafa heldur
fleiri þjónustuþegar verið að takast á við
líkamleg vandamál en gerist almennt hjá
þjónustuþegum VIRK á landsvísu. Þetta er
þó aðeins að breytast, andlegir erfiðleikar
eru að verða heldur meira áberandi en
áður. Gjarnan helst þetta í hendur. Margir
sem koma hingað glíma við mikið slit eftir
líkamlegt erfiði og finna fyrir depurð. Oft
má þó bæta þessa líðan með þeim góðu
úrræðum sem VIRK hefur yfir að ráða. “
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
29virk.is