Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Page 50
HEIÐAR MÁR GUÐNASON sundlaugarvörður
varla eftir því. Allt er mjög óljóst. Ég kom fyrst
til fullrar meðvitundar á bráðadeildinni.
Ég var algjörlega óviðbúinn þegar slysið
varð, alveg slakur og horfði aðeins til
vinstri hliðar. Staða höfuðsins skiptir máli
þegar ekið er aftan á fólk í bíl. Samkvæmt
rannsóknum sleppur fólk að líkindum betur
ef það situr beint og horfir fram fyrir sig. Af
því að höfuðið á mér var í hliðarstöðu þá
lenti höggið meira á hálsinum og öxlinni. Ég
brákaðist á viðbeini og það færðist aðeins
til. Það blæddi mikið inn á axlarliðinn, ég
tognaði illa, meiddist talsvert á mjöðm og
baki og fékk heilahristing.“
Varstu lagður inn?
„Nei, ég fékk að fara heim eftir rannsókn
og aðhlynningu. Ég var allur mjög stífur
ÞAÐ VAR KEYRT
AFTAN Á MIG ÞAR
SEM ÉG BEIÐ Á BIÐSKYLDU
VIÐ SÆBRAUT Í BÍL MÍNUM
ÞANN 23. MARS 2017.
STÚLKAN SEM ÞETTA
GERÐI TÓK EKKI EFTIR
BÍLNUM MÍNUM AÐ ÞVÍ ER
VIRTIST“ SEGIR HEIÐAR
MÁR GUÐNASON SEM
NÝLEGA ÚTSKRIFAÐIST ÚR
ÞJÓNUSTU HJÁ VIRK.
ÁKVAÐ AÐ
LIFA Í LJÓSINU
V
ið sitjum í vistlegri stofu á heimili
Heiðars Más, viðstödd viðtalið er
kona hans Randi Holm. Talið berst
fyrst að slysinu og aðdraganda þess.
„Slysið var klukkan tíu um kvöld, ég var að
sækja dóttur mína í vinnu. Bíllinn minn fór
í klessu við ákeyrsluna og ég lenti upp á
bráðadeild. Þar kom í ljós að ég var slasaður
á öxl og óvinnufær. Það bætti heldur úr skák
að bíllinn var sjálfskiptur og ég því með fótinn
á bremsunni. Ég var heppinn að kastast ekki
í bílnum út á Sæbrautina þar sem umferðin
var hröð og mikil.“
Fékkstu höfuðhögg?
„Já, ég datt út, það slokknaði á mér. Ég fór
víst samt út úr bílnum mínum til að athuga
með bílstjórann á hinum bílnum þótt ég muni
50 virk.is