Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Page 55
AÐSEND GREIN
staklingum. Alveg eins og rétta kylfan getur
skilið milli feigs og ófeigs á golfvellinum,
getur réttur stjórnunarstíll skipt sköpum fyrir
vellíðan á vinnustað.
frá sex stjórnunarstílum. Þar af hafa fjórir
þeirra mjög jákvæð áhrif á starfsandann:
Rannsóknir Goleman og félaga sýna að
50-70% af starfsanda á vinnustað skýrist
af stjórnunarstílnum. Í bókinni segja þeir
1 Framsýnn stjórnunarstíll
Framsýnir stjórnendur hafa sterka sýn og sameina
fólk að sameiginlegum draumum og markmiðum.
Þeir móta og útskýra framtíðarsýnina, fá starfsmenn
með sér, setja kröfur og fylgjast með frammistöðu.
Þeir hvetja með bæði styrkjandi og leiðréttandi
endurgjöf.
2 Leiðbeinandi stjórnunarstíll
Leiðbeinandi stjórnendur tengja saman markmið
starfsmanns og vinnustaðarins. Þeir hjálpa
starfsmönnum að leggja mat á styrkleika sína og
það sem mætti betur fara og hvetja þá til að setja
sér langtímamarkmið.
3 Hvetjandi stjórnunarstíll
Hvetjandi stjórnendur leitast við að skapa gott
andrúmsloft með því að styrkja tengslin á milli
starfsmanna. Þeir hafa fólkið í fyrirrúmi og er mikið
í mun að öllum líði vel. Þeir fá fólk til að vinna
saman og reyna að koma í veg fyrir ágreining.
4 Lýðræðislegur stjórnunarstíll
Stjórnendur sem beita lýðræðislegum stjórnunarstíl
virða framlag hvers og eins og skapa hollustu með
því að virkja alla til þátttöku. Þeir hvetja starfsmenn
til að taka þátt í ákvörðunum og hlusta á álit þeirra.
Tveir stjórnunarstílar hafa almennt ekki jákvæð
áhrif á starfsandann þó að þeir geti vissulega átt
við í ákveðnum aðstæðum:
5 Heimtandi stjórnunarstíll
Stjórnandi sem beitir heimtandi stjórnunarstíl setur
háleit og ögrandi markmið og sýnir gott fordæmi:
„Gerið eins og ég, núna.“ Hann krefst framúrskarandi
frammistöðu og hefur litla þolinmæði gagnvart slakri
frammistöðu. Hann á erfitt með að dreifa valdi og
ábyrgð og tekur yfir verkefnin ef starfsmaður er ekki að
skila viðunandi árangri.
6 Skipandi stjórnunarstíll
Stjórnandi sem beitir skipandi stjórnunarstíl krefst
skilyrðislausrar hlýðni: „Gerðu eins og ég segi.“ Hann
hvetur með því að refsa óhlýðni.
INGRID KUHLMAN leiðbeinandi og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun,
MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði (MAPP)
55virk.is