Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Síða 57
AÐSEND GREIN
næg tækifæri til að sýna hvað í okkur býr
er mikilvægt að hafa í huga að við erum
ekki viljalaust verkfæri eða leiksoppur
örlaganna. Við berum sjálf ábyrgð á lífi
okkar, hugsunum, líðan og gjörðum. Og við
höfum alltaf val. Við getum t.d. rætt líðan
okkar við yfirmann og beðið um tilfærslu eða
önnur verkefni. Við getum reynt að breyta
viðhorfi okkar til vinnunnar. Eða við getum
tekið ákvörðun um að yfirgefa vinnustaðinn.
Í öllu falli er mikilvægt að bíða ekki og vona
að eitthvað gerist heldur taka stjórnina. Því
að það er eins og sagt er að hver er sinnar
gæfu smiður.
Ábyrgð starfsmanna
Þó að stjórnendur spili vissulega stórt hlutverk
í að skapa umhverfi sem eftirsóknarvert
er að starfa í má ekki gera lítið úr ábyrgð
starfsmanna þegar kemur að vellíðan. Það
er t.d. á ábyrgð starfsmanna að hlúa vel að
sjálfum sér með því að hreyfa sig, næra sig
á hollum og góðum mat og tryggja góðan
nætursvefn en sýnt hefur verið fram á að allir
þessir þættir eru heilsueflandi. Að stunda
núvitund hefur líka reynst einföld en öflug
leið til að draga úr streitu og bæta almenna
vellíðan9. Mikilvægt er að starfsmenn gefi sér
tíma til að rækta sambandið við fjölskyldu
og vini og sinna hugðarefnum. Einnig að
þeir setji sér mörk, t.d. hvað varðar svörun
vinnutengdra tölvupósta utan hefðbundins
vinnutíma.
Á vinnustað er það á ábyrgð starfsmanna
að mæta með bestu útgáfuna af sjálfum
sér, vinna starf sitt af eldmóð og leggja
sig fram um að skila vel unnu verki á
hverjum degi. Þá er mikilvægt að þeir
leggi sig fram um að læra nýja hluti og
tileinka sér nýja þekkingu til að vera í
stakk búnir til að takast á við síbreytilegar
kröfur atvinnulífsins og samfélagsins. Aukin
þekking eykur möguleika á fjölbreyttara
starfi, meira krefjandi verkefnum og aukinni
starfsánægju.
Mikilvægt er einnig að starfsmenn velji sér
jákvætt viðhorf til vinnunnar, samstarfs-
manna og vinnustaðarins og skapi jákvæða
orku í kringum sig. Rannsóknir síðustu
áratugi hafa sýnt að hægt er að auka vellíðan
meðvitað með svokölluðum jákvæðum
æfingum eða inngripum en þau hafa
það að markmiði að stuðla að jákvæðum
tilfinningum, jákvæðri hegðun og jákvæðum
hugsunum10. Dæmi um jákvætt inngrip
sem eykur vellíðan er „Þrír góðir hlutir“ en
þá skrifar einstaklingur niður þrjá góða hluti
sem áttu sér stað yfir daginn og hver var
hlutdeild hans í þeim. Ástæðan fyrir því að
mikilvægt er að skrifa niður þátt manns í því
sem gekk vel er að þetta beinir athyglinni að
því hvernig við getum haft áhrif á daglegar
jákvæðar upplifanir11. Reglulegar og
meðvitaðar þakklætishugsanir geta einnig
aukið vellíðan. Þakklæti stuðlar að því að við
dveljum við og njótum jákvæðra upplifana
og aðstæðna12.
Eitt af því sem fræðimenn hafa beint sjón-
um sínum að síðustu ár eru styrkleikar
fólks13. Hvernig við getum komið auga á
þá, skerpt sýn okkar á þá og nýtt þá til að
blómstra og auka vellíðan í starfi. Þegar við
hlúum að styrkleikunum fyllumst við orku og
hámörkum frammistöðuna auk þess sem
virknin og flæðið eykst. Að þekkja og nýta
styrkleikana getur aukið innsæi, gert okkur
kleift að taka betri ákvarðanir og tryggt að
við séum á réttri hillu í lífinu. Vísindalegar
rannsóknir hafa staðfest að það að nýta
styrkleika sína á nýjan hátt eykur vellíðan.
Til eru ýmsar leiðir til að greina styrkleikana,
m.a. að taka styrkleikapróf eða fara í
styrkleikasamtal hjá markþjálfa.
Ef okkur finnst við hins vegar ekki vera
á réttri hillu eða teljum að við fáum ekki
Fimm leiðir að vellíðan
MYNDUM TENGSL
TÖKUM EFTIR
GEFUM AF OKKUR
HREYFUM OKKUR
HÖLDUM ÁFRAM
AÐ LÆRA
Myndum tengsl við fjölskyldu, vini,
samstarfsfólk og nágranna og gefum
okkur tíma til að hlúa að þeim. Jákvæð
sambönd við aðra eru einn mikilvægasti
þáttur hamingju og vellíðanar.
Höldum í forvitnina og tökum eftir
hinu óvenjulega. Verum í núinu. Tökum
eftir veröldinni í kringum okkur og
hvernig okkur líður. Að veita því sem
við upplifum athygli hjálpar okkur
að meta það sem skiptir okkur máli.
Gerum eitthvað fallegt fyrir vin eða ókunnuga
manneskju. Sýnum þakklæti. Brosum.
Gefum öðrum af tíma okkar. Að sjá okkur
sem hluta af stærra samhengi veitir
lífsfyllingu og eflir tengsl við aðra.
Dönsum, göngum eða förum í sund.
Njótum þess að vera úti. Hreyfing
veitir vellíðan. Mikilvægt er að finna
hreyfingu sem við höfum gaman af
og hentar ástandi okkar og getu.
Prófum eitthvað nýtt. Rifjum upp gamalt
áhugamál. Setjum upp áskorun sem við
gætum haft gaman af að takast á við.
Það er skemmtilegt að læra nýja hluti
og hefur jákvæð áhrif á sjálfsmyndina.
57virk.is