Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Side 60
Að stjórna sinni eigin heilsu
Heilsa felur meira í sér en að vera veikur
eða ekki veikur. Aðalatriðið er hvernig ein-
staklingnum líður og jákvæð heilsa snýr
einmitt að því. Til þess að skoða betur
jákvæða heilsu er stuðst við heilsuhjólið.
Machteld Huber, fyrrverandi heimilislæknir,
fræðimaður og höfundur heilsuhjólsins
útskýrði jákvæða heilsu í stuttu viðtali.
Hvað er jákvæð heilsa nákvæmlega?
„Fyrir ekki svo löngu lærðu nemendur í
læknisfræði að það að vera heilbrigður
fæli í sér að vera ekki veikur. Sem ungur
heimilislæknir lenti ég sjálf nokkrum sinnum
í alvarlegum veikindum. Í þeim veikindum
uppgötvaði ég að þessi fullyrðing um
heilbrigði væri ekki rétt. Jafnvel þó að ég
væri að kljást við líkamleg veikindi gæti mér
samt liðið vel.
Í samtölum mínum við aðra í svipaðri
stöðu, varð ég vör við sömu upplifun, þ.e.
að manni gæti liðið vel þrátt fyrir veikindi.
Heilbrigði snýr að lífinu í heild, það snýst
um meira en bara líkamlega heilsu. Ég
áttaði mig á því að þrautseigja skiptir miklu
máli. Hversu heilbrigður finnst þér þú vera?
Hvað er það sem þú getur gert þrátt fyrir
veikindi? Hvernig getur þú styrkt þig? Það er
6 víddir heilsuhjólsins
Hvernig er unnið með heilsuhjólið í
jákvæðri heilsu?
„Í þeim tilgangi að gera jákvæða heilsu
áþreifanlega þróuðum við heilsuhjól. Það
hjálpar manni til að skoða sjálfan sig og
spyrja spurninga eins og: Hvernig líður
mér, hvað get ég og hvað vil ég sjálf(ur)
gera til að bæta mína líðan?
Hjólið samanstendur af sex sviðum eða
víddum og ein spurning er miðlæg fyrir hverja
vídd:
1. Hvernig líður mér líkamlega?
2. Hvernig líður mér andlega?
3. Hvernig lít ég á framtíðina?
4. Tekst mér að njóta lífsins?
5. Er ég í góðu sambandi við aðra?
6. Get ég séð um mig sjálfa(n)?
Með því að svara spurningalista sem
hannaður var til að nota samhliða heilsu-
hjólinu er hægt að finna hvar maður er
staddur í hverri vídd fyrir sig. Mismunandi
staðhæfingar eru metnar eins og t.d.: „Ég
tel mig heilsuhrausta(n)”, „Ég finn fyrir
lífsgleði”, „Þegar ég vakna á morgunana
hlakka ég til dagsins”, „Mér líður vel í eigin
Heilbrigði snýr að
lífinu í heild, það
snýst um meira en bara
líkamlega heilsu. Ég áttaði
mig á því að þrautseigja
skiptir miklu máli.“
sú nálgun að horfa á einstaklinginn í víðara
samhengi og á jákvæðari hátt sem jákvæð
heilsa byggir á,” segir Machteld Huber.
Þú hefur nefnt það að vera veikur sé ekki
það sama og að vera með sjúkdóm. Hvað
meinar þú með því?
„Að vera veikur er í raun og veru eitthvað
annað en að vera með sjúkdóm. Í byrjun
ertu raunverulega veikur. Þú færð sjúkdóms-
greiningu og í kjölfarið meðferð. En þó að
þú náir ekki fullum bata strax eða munir
kannski aldrei ná þér að fullu líkamlega,
verður þú eftir vissan tíma ekki bara veikur
einstaklingur. Annað í lífi þínu skiptir máli,
t.d. félagsleg samskipti við aðra og viðhorf
þitt til lífsins. Þessi atriði fara að vera meira
í forgrunni eftir því sem tíminn líður og þú
aðlagar þig að veikindum þínum.”
Machteld Huber kynnti jákvæða heilsu á afmælisráðstefnu VIRK 2018.
60 virk.is