Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Side 61
VIÐTAL
skinni”, „Ég á nógan pening til að geta greitt
reikningana mína”, „Ég er í góðu sambandi
við aðra”, „Ég get séð um mig sjálfa(n)”.
Með því að tengja svör úr spurningalistanum
við heilsuhjólið er hægt að fá góða innsýn í
stöðu mála varðandi heilbrigði eins og það
er skilgreint samkvæmt jákvæðri heilsu. Í
framhaldi er hægt að skoða hvernig hægt er
að bæta heilbrigði á ýmsum víddum. Hægt
er að velja hvaða vídd maður vill vinna með
en ef unnið er með eina vídd eru líkur á að
staða mála í öðrum víddum batni samhliða
þar sem víddirnar sex hanga saman. Þá er
hægt að svara spurningalistanum seinna til
að skoða hvernig manni miðar.
Heilsuhjólið gerir þér kleift að vinna með
mismunandi þætti hjá sjálfum/sjálfri þér.
Heilbrigðisstarfsmenn, vinir eða fjölskyldu-
meðlimir geta einnig aðstoðað þig við að
finna út hvers þú þarfnast til að bæta líðan
þína. Þannig öðlast þú meiri þrautseigju og
lærir hvernig þú getir bætt líðan þína jafnvel
þó að þú sért veik(ur).“
Gagnast öllum
Hverjum er heilsuhjólið ætlað?
„Það getur gagnast öllum að fylla út heilsu-
hjólið, jafnvel þó að við séum heilbrigð og
hraust. Við erum ekki vön að gefa sjálfum
okkur gaum. Spurningalistinn gefur okkur
tækifæri til að staldra við og skoða ýmsa
þætti hjá okkur sjálfum. Jafnvel þó að þér
líði vel, getur þú sett þér lítil markmið. Ég
læt heilbrigðisstarfsmenn eða stefnumótandi
aðila einnig fylla út heilsuhjólið. Ég heyri oft:
„Mér gengur bara ágætlega, sko.” Þangað til
þeir átta sig á því að þeir gefa nánum tengsl-
um við vini og fjölskyldu ekki mikinn gaum á
meðan þeir myndu í raun vilja hlúa að þeim.“
Að vinna með sína eigin heilsu, hvernig
gerir maður það?
„Ekki mikla þetta fyrir þér. Ef þú vilt hitta vini
þína oftar, reyndu þá að skipuleggja hitting
með góðum vini í hverri viku. Viltu stunda
meiri hreyfingu? Taktu þá frá tíma í hverri
viku til að hreyfa þig. Ef þú stendur við þessi
litlu áform og framkvæmir þau í nokkrar
vikur muntu taka eftir því að þú ert smám
saman að þróa með þér nýjar venjur. Lítil
skref geta stundum skipt sköpum. Ef þú tekur
þessi skref þegar þú ert sjálf(ur) tilbúin(n)
verður þú heilbrigðari, glaðari og með meiri
þrautseigju. En, þetta er auðvitað val.”
„Hvað skiptir þig allra mestu
máli í lífinu?“
Það er örugglega ekki alltaf einfalt að
vinna með sína eigin heilsu?
„Það er ekki öllum augljóst að taka skrefið og
horfa í spegilinn. Heilbrigðisstarfsmenn geta
verið vakandi og reynt að taka eftir merkjum.
Eru það raunverulega verkirnir sem valda
vanlíðan? Eða geta aukin félagsleg samskipti
bætt stöðu einstaklingsins? Við þurfum líka
sjálf að vera vakandi. Fylltu út heilsuhjólið
með eldri borgara sem er mögulega
einmana. Það getur verið kveikjan að samtali
um ákveðnar óskir „Ég myndi svo gjarnan
vilja sjá sveitina mína einu sinni enn.“ Þegar
þú þekkir þessar óskir getur þú aðstoðað við
að láta þær rætast. Ekki þröngva neinu upp
á fólk. Það að fylla út heilsuhjólið getur verið
konfronterandi. Þú getur þó lagt það til, það
getur verið byrjun.”
Hvaða vídd gefum við of lítinn gaum?
„Spurningin „Hvað skiptir þig allra mestu
máli í lífinu?“ – víddin sem varðar tilgang
þinn, skiptir raunar höfuðmáli. Hún varðar
hvaða augum þú lítur framtíðina og hvað
gerir líf þitt þess virði að lifa því. Spurðu
þig þessarar spurningar reglulega, burtséð
frá heilsuhjólinu, og veltu fyrir þér hvað
þú gætir gert við svarinu. Það mun gera
þig hamingjusamari og heilbrigðari!”, segir
Machteld að lokum.
Texti: Anneleen Vermeire
LÍKAMLEG VIRKNI
LÍFSGÆÐI
ANDLEG VELLÍÐAN
TILGANGUR
DAGLEG VIRKNI
ÞÁTTTAKA
0
2
4
6
8
10
HEILSUHJÓL
• Social and communicative skills
• Social contacts
• Meaningful relationships
• Experiencing to be accepted
• Community involvement
• Meaningful work/occupation
• Basis ADL
(Activities of Daily Living)
• Instrumental ADL
• Ability to work
• Health literacy
• Quality of life/well-being
• Experiencing happiness
• Enjoyment
• Perceived health
• Flourishing
• Zest for life
• Balance
QUALITY OF LIFE
DAILY
FUNCTIONING
SOCIAL - SOCIETAL
PARTICIPATION
PILLARS FOR
POSITIVE HEALTH
• Cognitive functioning
• Emotional state
• Esteem/self-respect
• Experiencing to be in charge/
manageability
• Self-management
• Understanding one’s situation/
comprehensibility
• Resilience
• Purpose/meaningfulness
• Striving for aims/ideals
• Future prospects
• Acceptance
• Medical facts
• Medical observations
• Physical functioning
• Complaints and pain
• Energy
MEANINGFULNESS
MENTAL
WELL-BEING
BODILY FUNCTIONS
© Institute for Positive Health NL
61virk.is