Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Blaðsíða 64
hvetja þeirra vinnustað til að ráða fólk með
skerta starfsgetu til vinnu.
Mynd 3 hér til hliðar sýnir mikilvægiseinkunn
fyrir þau atriði sem þátttakendur töldu
hvetjandi fyrir þeirra vinnustað fyrir ráðningu
fólks með skerta starfsgetu til vinnu.
Rannsóknir hafa sýnt að þau fyrirtæki sem
hafa reynslu af því að vera með einstaklinga
með skerta starfsgetu í vinnu eru líklegri til
að vilja ráða slíka starfsmenn til sín aftur í
samanburði við fyrirtæki sem ekki hafa
reynslu af því6. Þetta var einnig niðurstaðan
í þessari spurningakönnun, en þau fyrirt-
æki sem höfðu reynslu af því að ráða
einstaklinga með skerta starfsgetu til sín í
vinnu voru marktækt líklegri til að svara að
þau mundu ráða slíka starfsmenn í vinnu á
næstu 24 mánuðum. Sömu fyrirtæki voru
líka marktækt líklegri til að svara játandi
spurningunni um hvort það væri mögulegt
að fjölga hlutastörfum hjá þeim.
Rannsóknir hafa einnig sýnt að stærri
fyrirtæki eru líklegri til að vilja ráða ein-
staklinga með skerta starfsgetu til starfa
heldur en þau sem minni eru7. Þetta kom
einnig fram í þessari spurningakönnun en
þar voru stærri fyrirtæki (+71 starfsmaður)
marktækt líklegri en fyrirtæki með færri
starfsmenn að vilja ráða slíka starfsmenn til
sín á næstu 24 mánuðum.
Þegar skoðuð eru viðhorf fyrirtækja til
ákveðinna staðhæfinga þá kemur í ljós
að fyrirtækin úr upplýsingagrunni VIRK,
í samanburði við fyrirtæki í fyrirtækjahópi
Gallup, voru marktækt meira sammála
þeirri staðhæfingu að það skipti máli að
hafa starfsfólk með ólíkan bakgrunn á
vinnustaðnum. Rannsóknir hafa bent
á að það að ráða einstaklinga með
skerta starfsgetu eykur fjölbreytileikann
á vinnustaðnum sem leiðir almennt til
jákvæðara vinnuumhverfis8. Fyrirtækin úr
upplýsingagrunni VIRK voru einnig mark-
tækt ekki sammála því, í samanburði við
fyrirtækjahóp Gallup, að starfsfólk með
skerta starfsgetu væri meira frá vinnu
vegna veikinda en annað starfsfólk, né
að það væru líklegri til að lenda frekar í
vinnuslysum. Rannsóknir hafa sýnt að
þar sem starfa einstaklingar með skerta
starfsgetu, getur dregið úr fjarvistardögum
alls starfsfólksins9. Hinsvegar töldu margir
þátttakenda í spurningakönnuninni að
einstaklingar með skerta starfsgetu þyrftu
meiri hjálp við vinnu sína og einnig að þau
væru ekki jafn afkastamikil og starfsfólk með
fulla starfsgetu.
Hvetjandi atriði fyrir ráðningu fólks með skerta starfsgetu
23,6
36,0
21,1
14,9
14,6
14.0
13,5
8,3
6,9
Niðurgreiðsla launa
Niðurfelling á opinberum /launatengdum gjöldum og/eða
skattaívilnanir
Aukið aðgengi að upplýsingum um þá möguleika sem standa
vinnustöðum til boða
Meiri eftirfylgni og stuðningur frá aðilum sem sinna
starfsendurhæfingu
Fræðsla á skertri starfsgetu til yfirmanna og starfsfólks
Að séð yrði til þess að afleysingafók fáist ef langvarandi
eða tíð veikindi koma upp
Að vinnustöðum sé kleift að auka sveigjanleika vegna
veikinda starfsfólks
Verkstjórn inni á vinnustað yrði greidd af stuðningskerfinu
Meiri stuðningur frá hinu opinbera inn á vinnustaði í formi
hjálpartækja, breytinga á vinnuaðstöðu eða aðstoðarfóks (NPA)
Helstu hindranir á fjölgun hlutastarfa
Kostir við að ráða fólk með skerta starfsgetu
22%
18%
11%
10%
10%
9%
7%
17%
Ekki þörf á starfsfólki
Fjárhagslegar hindranir
Hentar ekki
Eðli starfsemi fyrirtækisins leyfir það ekki
Þrengsli / Lítill vinnustaður
Eðli verkefna fyrirtækisins leyfir það ekki
Kröfur vinnutíma
Annað
78%
59%
31%
17%
11%
4%
Fyrirtækið sýnir með því samfélagslega ábyrgð í verki
Aukin fjölbreytni á vinnustaðnum
Ný og mikilvæg þekking kemur með nýju starfsfólki
Fjárhagslega hagkvæmt þegar tekið er tillit til
vinnuframlags starfsfólks og vinnusamninga öryrkja
Annað
Engir kostir
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
64 virk.is