Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Qupperneq 75
VIRK
GUÐRÚN RAKEL EIRÍKSDÓTTIR sálfræðingur og sérfræðingur hjá VIRK hugrænna (cognitive), líkamlegra og
geðrænna einkenna geta komið fram.
Dæmi um slík einkenni er minnisvandi,
einbeitingarskortur, skapbreytingar, þreyta,
svefntruflanir, minnkað þol fyrir hljóði og
ljósi, sjóntruflanir, þunglyndi og kvíði3.
Hafa ber í huga að PCS er klínísk greining
og hvorki rannsóknir né taugasálfræðileg
próf greina heilahristing en mæla hins vegar
ákveðnar hliðar á því hvernig heilahristingur
hefur áhrif á líf einstaklingsins. Áhrif
heilahristings eru einstaklingsbundin og
því ekki hægt að setja alla undir sama
hatt. Samkvæmt flokkunarkerfinu ICD-10
(International Statistical Classification of
Diseases and Health Related Problems,
10th revision) sem gefið er út af Alþjóða-
heilbrigðismálastofnuninni (WHO) er
PCS skilgreint sem samansafn einkenna
heilahristings sem vara í meira en 4 vikur
hjá ákveðnum hópi sjúklinga. Ekki þurfa að
vera bein tengsl á milli alvarleikastigs fyrsta
heilahristings og þeirra einkenna sem koma
í kjölfarið. Í meðferð og endurhæfingu er
lögð áhersla á hvert og eitt einkenni fyrir
sig. Sálfræðileg meðferð og fræðsla getur
einnig verið mikilvæg.
Umfjöllun og rannsóknir á heilahristings-
heilkenni meðal íþróttafólks hafa aukist
mikið undanfarin ár. Bent hefur verið á
mikilvægi þess að fræða íþróttafólk og fagfólk
tengt íþróttum um einkenni og alvarleika
endurtekinna höfuðhögga ásamt mikilvægi
hvíldar í kjölfar heilahristings. Það er þó ekki
eingöngu íþróttafólk sem fær höfuðáverka
og heilahristingsheilkenni. Aðrar algengar
orsakir heilahristings eru t.d. umferðarslys,
föll og líkamsárásir1. Áhugaverð rannsókn
frá árinu 2018 sýndi að af öllum þeim
einstaklingum sem leituðu á bráðamóttöku
þriggja sjúkrahúsa í Noregi á rúmlega einu
og hálfu ári vegna höfuðáverka uppfylltu
67% greiningarskilmerki fyrir vægan heila-
skaða4. Algengustu orsakir voru föll (37%),
umferðarslys (24%), ofbeldi (20%), og
íþróttir (11%).
Í þessu samhengi má benda á að ekki leita
allir sem fá höfuðáverka á bráðamóttöku
eða fá aðstoð innan heilbrigðiskerfisins.
Þeir sem þó leita á bráðamóttöku fá
yfirleitt ekki nákvæmt mat á hugrænni
getu (sbr. taugasálfræðilegt mat), strax í
kjölfar höfuðáverkans og yfirleitt er ekki
hægt að greina vægan heilaskaða með
tölvusneiðmynd (TS). Þetta leiðir til þess
að hvorki er hægt að staðfesta að um
vægan heilaskaða sé að ræða né veita
viðeigandi fræðslu og eftirfylgd innan
heilbrigðiskerfisins fyrir þessa einstaklinga.
Ákveðinn hluti þeirra kemur svo til með
að þróa með sér PCS sem getur haft
mikla þýðingu varðandi endurkomu á
vinnumarkað og starfsgetu5.
Vitræn einkenni
Þeir sem gert hafa rannsóknir á endurkomu
til vinnu eftir vægan heilaskaða hafa staðið
frammi fyrir ýmsum áskorunum. Ótal þættir
skipta máli eins og til dæmis alvarleiki
Mikilvægi þess að
koma einstakling-
um aftur til vinnu snýst
ekki eingöngu um að auka
lífsgæði og velferð þessa
hóps og aðstandenda
þeirra, heldur er mikill
fjárhagslegur ávinningur
fyrir samfélagið í heild.“
einkenna, fyrri staða á vinnumarkaði,
menntunarstig, geðrænn vandi, innsæi
einstaklinga varðandi eigin heilsu og
svo mætti lengi telja5. Fyrri rannsóknir
hafa notað ólík greiningarskilmerki fyrir
heilahristingsheilkenni og skilgreina vinnu-
þátttöku með misjöfnum hætti. Það er því
ljóst að ekki er um einfalt rannsóknarefni
að ræða.
Vitræn geta virðist hafa mikilvægt hlutverk
þegar kemur að farsælli endurkomu á
vinnumarkað í kjölfar heilaskaða6. Auk
þess er skerðing og breyting vitrænnar
færni eitt mesta áhyggjuefni einstaklinga
með PCS og aðstandenda þeirra7. Þessi
breyting felur meðal annars í sér skerta
minnisgetu, hægara hugarstarf, erfiðleika í
rökhugsun, erfiðleika við að halda utan um
flókin verkefni og skerta skipulagsfærni.
Samansafn einkenna og umfang skerðingar
er gríðarlega einstaklingsbundin. Hægt er að
meta vitræna þætti með taugasálfræðilegu
mati þar sem próf og verkefni eru notuð til
að meta styrk- og veikleika. Afar sjaldgæft er
að fyrir liggi niðurstöður á taugasálfræðilegu
mati fyrir slys. Því skiptir viðtal fyrir prófun
miklu máli þegar kemur að því að leggja
mat á fyrri getu. Þá er meðal annars skoðuð
skólaganga, menntun, fyrri starfsgeta, geð-
saga og upplifun einsaklingsins á breytingu
í kjölfar heilaskaðans. Stundum er mikil-
vægt að taka viðtal við aðstandendur sem
lýsa jafnvel persónubreytingum og telja
einstaklinginn ekki „þann sama“ í kjölfar
höfuðáverkans. Sumir fara beint í fyrra starf
en finna eftir stuttan tíma að illa gengur að
ráða við verkefni sem þeir fór áður létt með.
Skiljanlega er það verra að hafa ekki
greiningu eða staðfestingu á vægum
heilaskaða eða PCS. Niðurstöður á tauga-
sálfræðilegu mati kortleggja styrkleika
og veikleika sem hægt er að nýta í starfs-
Mynd 1. Gátlisti sem sýnir algeng einkenni í kjölfar heilahristings.
HUGSA OG MUNA
• Vandi við að hugsa skýrt
• Hægari hugsun
• Einbeitingarskortur
• Vandi með nám, þ.e
að læra og muna nýjar
upplýsingar
LÍKAMLEG EINKENNI
• Höfuðverkur
• Ógleði
• Þokusýn
• Þreyta og orkuleysi
• Viðkvæmni fyrir hávaða
og ljósi
SKAP OG GEÐ
• Pirringur
• Dapurleiki
• Auknar geðshræringar
• Kvíði
SVEFNTRUFLANIR
• Breytt svefnmynstur
• Erfitt að sofna
• Svefn slitróttur
75virk.is