Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Síða 79
VIRK
2.5 Starfsendurhæfing er ekki
talin raunhæf eða hún fullreynd
Dæmi:
a. Ekki er talið raunhæft að einstaklingur
verði vinnufær í ljósi heilsufarsvanda-
máls, s.s. hratt minnkandi starfsgeta,
óljósar horfur, fjölþættur og/eða alvar-
legur heilsubrestur.
b. Einstaklingur hefur áður lokið umtals-
verðri endurhæfingu og/eða starfs-
endurhæfingu og ekki orðið slík
breyting á heilsufari eða aðstæð-
um að líklegt sé að endurtekin
starfsendurhæfing beri frekari
árangur.
c. Ef einstaklingur er óvinnufær
vegna varanlegrar færnisskerðingar
og á rétt á þjónustu samkvæmt
lögum um málefni fatlaðs fólks
er ekki talin þörf á starfsendur-
hæfingu, en líklegt að þörf sé á
þjónustu Vinnumálastofnunar.
d. Einstaklingur er með örorkuúrskurð
hjá TR eða lífeyrissjóði og ekki er
talið raunhæft að hann nái starfsgetu
á almennan vinnumarkað að nýju
með starfsendurhæfingu í ljósi þess
heilsubrests sem liggur til grundvallar
örorkuúrskurði.
e. Ekki er farið af stað í starfsendur-
hæfingu nema einstaklingur vilji og
horfur bendi til að raunhæft sé að
stefna að a.m.k. 40% starfsgetu á
almennum vinnumarkaði.
2.6 Aðstæður og skortur á
félagslegum stuðningi koma í
veg fyrir getu og þátttöku
Einstaklingur er ekki fær að taka
þátt í athöfnum daglegs lífs og/eða
taka þátt í starfsendurhæfingu sem
krefst mætinga og ástundunar í
talsverðan tíma og oft í viku hverri.
Til að geta tekið þátt í atvinnu-
tengdri starfsendurhæfingu er gerð
krafa um a.m.k. 80% mætingu í
úrræði og/eða virkni og getu til að
taka þátt í verkefnum sem hafa
þýðingu fyrir almennan vinnumarkað.
Ef aðstæður einstaklings koma í veg
fyrir það er starfsendurhæfing ekki
líkleg til árangurs og oft er þörf
á aukinni aðstoð innan heilbrigðis-
kerfisins eða félagslegri aðstoð svo
sem hjá félagsþjónustu sveitarfélaga
og ýmsum frjálsum félagasamtökum
sem vinna að eflingu fólks með
geðraskanir.
Ekki er tímabært að vísa einstaklingi
í starfsendurhæfingu þegar þörf er
á endurhæfingu í heilbrigðiskerfi
og sú endurhæfing er fyrirhuguð
innan 6 mánaða enda er starfsendur-
hæfing ekki líkleg til árangurs á þeim
tímapunkti. Þetta á til dæmis
við þegar endurhæfing er fyrirhuguð
á Reykjalundi, Hvíta bandinu,
Kristnesi, Stykkishólmi, HNLFÍ
eða Þraut.
Ef taka fæðingarorlofs er fyrirhuguð
á næstu mánuðum kann að vera
óskynsamlegt að hefja starfsendur-
hæfingu á þeim tímapunkti. Þetta
þarf þó að skoða og meta út frá
aðstæðum hverju sinni.
2.2 Starfsendurhæfing ekki
tímabær vegna fyrirhugaðrar
fjarveru
Starfsendurhæfing getur verið
ótímabær vegna þess að ekki næst
eðlileg samfella í þjónustu. Dæmi
um þetta er þegar einstaklingur er á
leið í afplánun á fangelsisdómi eða
verður lengi fjarverandi af öðrum
ástæðum.
2.3 Fíknisjúkdómur
Einstaklingur er með fíknivanda og
þarf viðeigandi meðferð og stuðning
áður en þeim stöðugleika er náð að
starfsendurhæfing sé líkleg til
árangurs. Hægt er að senda inn nýja
beiðni þegar einstaklingur hefur
fengið viðeigandi aðstoð/meðferð
og verið frá neyslu í a.m.k. 3-6
mánuði. Hvert mál er þó metið út frá
neyslusögu, aðstæðum og samráði
við fagaðila. VIRK sinnir ekki
endurhæfingu einstaklinga sem
eingöngu eru með fíknivanda. Þeim
er bent á viðeigandi meðferðarúrræði
og lögbundinn stuðning félags-
þjónustu eftir að slíkri meðferð lýkur.
2.4 Ekki er þörf á heildstæðri/
sérhæfðri starfsendurhæfingu
Dæmi um slíkar aðstæður eru
eftirfarandi:
a. Ekki er þörf á heildstæðri starfsendur-
hæfingu vegna þess heilsubrests
sem veldur óvinnufærni.
Dæmi um þetta eru:
Einstaklingur er að jafna sig eftir
beinbrot, liðskiptaaðgerð og
aðrar læknisaðgerðir og ná aftur
eðlilegri færni. Í flestum tilfellum
er ekki þörf á þverfaglegri
starfsendurhæfingu við slíkar
aðstæður. Sé þörf á sértækari
eftirmeðferð, svo sem sjúkraþjálfun
er það hluti heilbrigðisþjónustu en
telst ekki til verkefna starfsendur-
hæfingar.
Sama getur átt við um nýleg áföll
eða atburði sem hafa áhrif á
heilsufar og starfsgetu svo sem
ástvinamissi, hjónaskilnað, gjaldþrot
o.s.frv. Í þessum tilfellum er ráðlegt
að einstaklingar nái vissu jafnvægi
áður en huga þarf að þörf fyrir
starfsendurhæfingu.
Barnshafandi konum er vísað frá
ef eingöngu beinar afleiðingar
þungunar valda starfsgetumissi.
Dæmi um þetta eru grindargliðnun,
bakverkir og aðrir þekktir fylgikvillar
þungunar.
b. Einstaklingur er í vinnu sem svarar
til 70% starfsgetu eða í námi umfram
21 ECTS námseiningu á önn. Ekki
er mælt með að fólk hætti eða dragi
úr virkni í námi eða vinnu eingöngu til
að eiga rétt á þjónustu VIRK.
Einstaklingar með hátt starfshlutfall
eða í miklu námi þyrftu í raun yfir
100% starfsgetu til að taka
jafnframt fullan þátt í starfsendur-
hæfingu. Einstaklingur sem hefur
þurft að minnka við sig vinnu
af heilsufarsástæðum og er þar af
leiðandi tímabundið í hlutastarfi
getur átt rétt á þjónustu VIRK, en
starfsendurhæfing miðar þá mark-
visst að því að auka verulega
vinnugetu viðkomandi einstaklings.
c. Áhugahvöt til starfsendurhæfingar,
atvinnuþátttöku og/eða náms er ekki
til staðar og einstaklingur virðist ekki
stefna á vinnumarkað.
d. Ef einstaklingur sér sig ekki færast
nær vinnumarkaði á næstu 6-12
mánuðum þrátt fyrir aðstoð og
stuðning er ekki tímabært að hefja
starfsendurhæfingu. Einstaklingur
þarf að vera kominn á þann stað að
hann sé að stefna markvisst að
þátttöku á vinnumarkaði þegar hann
kemur inn í starfsendurhæfingu.
Starfsendurhæfing getur síðan tekið
mislangan tíma og markmið og
tímasetningar eru ávallt endurmetnar
á starfsendurhæfingartímanum eftir
aðstæðum og gangi mála.
e. Einstaklingur er ekki óvinnufær
vegna heilsubrests og þarf fyrst og
fremst aðstoð við atvinnuleit. Bent er
á hlutverk og þjónustu Vinnumála-
stofnunar og félagsþjónustu
sveitarfélaga varðandi aðstoð.
79virk.is