Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Page 80
EFTIR AÐ HAFA STARFAÐ SEM FÉLAGSRÁÐGJAFI Í RÚM 30 ÁR, HEF ÉG ENN
EKKI HITT FYRIR FÓLK SEM VILL EÐA VELUR AÐ LIFA Í FÁTÆKT OG VERÐA
ÓVINNUFÆRT. REYNSLA MÍN ER AÐ LANGFLESTIR VILJI LÆRA OG VINNA Á
FULLORÐINSÁRUM OG LIFA ÞVÍ SEM ALMENNT ER KALLAÐ MANNSÆMANDI LÍF. EN
TIL ÞESS AÐ GETA SVARAÐ ÞVÍ Á FAGLEGAN HÁTT HVORT ÓVINNUFÆRNI LEIÐI
TIL FÁTÆKTAR ÞARF AÐ SKILGREINA HUGTAKIÐ FÁTÆKT OG HVAÐ FELST
Í ÓVINNUFÆRNI.
LEIÐIR LANGTÍMA
ÓVINNUFÆRNI TIL FÁTÆKTAR?
BJÖRK VILHELMSDÓTTIR félagsráðgjafi og sérfræðingur hjá VIRK
F
átækt er oftast skilgreind út frá
fjárhagsstöðu fólks, annars vegar
sem algild fátækt og hins vegar afstæð
fátækt. Algild fátækt er þegar tekjur
fólks duga ekki fyrir helstu nauðsynjum
svo sem húsnæði, mat og fatnaði. Í Evrópu
og þar með talið á Íslandi er fátækt yfirleitt
rædd út frá afstæðum fátæktarmörkum. Þá
er fólk skilgreint fátækt ef tekjur þess fara
undir fyrirfram skilgreint hlutfall af tekjum
viðmiðunarhóps1. Lágtekjumörk Hagstofu
Íslands eru til að mynda tekjur einstaklings
og/eða fjölskyldu sem eru undir 60% af
miðgildistekjum sambærilegrar einingar.
Á árinu 2016 voru 8.8% Íslendinga undir
þeim mörkum2.
Hugtakið óvinnufærni er notað þegar læknir
metur líkamlegt og/eða andlegt ástand fólks
það slæmt að það komi í veg fyrir störf á
almennum vinnumarkaði. Fólk sem treystir
sér ekki til að vinna vegna heilsubrests er
því óvinnufært en ekki atvinnuleitendur
sem treysta sér til að takast á við ný störf.
Ef heilsubrestur er staðfestur af lækni koma
til opinberar og eða samningsbundnar
greiðslur til að tryggja afkomu einstaklings. Í
upphafi nýtir fólk rétt sinn til veikindalauna og
greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaganna
en þegar þeim réttindum er lokið taka við
sjúkradagpeningar sjúkratrygginga og
Fátækt er
ekki bara skortur
á peningum;
það er að fá ekki
tækifæri til að
nýta færni sína
til að lifa mann-
sæmandi lífi.
Amartya Sen.”
að endingu mögulega örorku- og endur-
hæfingarlífeyrir almannatrygginga og/eða
lífeyrissjóða. Þá geta óvinnufærir mögu-
lega átt rétt á fjárhagsaðstoð frá sínu
sveitar-félagi, en í ljós hefur komið að ríflega
helmingur þeirra sem fá fjárhagsaðstoð frá
Reykjavíkurborg eru með læknisvottorð um
óvinnufærni3.
Fátækt tengd færni
Hægt er að horfa á fátækt frá fleiri hliðum
en fjárhagslegum. Dr. Amartya Sen er
indverskur velferðarhagfræðingur sem fékk
Nóbelsverðlaunin í hagfræði 1998. Eftir
áratuga rannsóknir á fátækt, setti hann
fram kenningu um tengsl fátæktar og færni
einstaklinga. Amartya skilgreinir fátækt
svohljóðandi í bók sinni Development as
Freedom: Fátækt er ekki bara skortur á
peningum; það er að fá ekki tækifæri til að
nýta færni sína til að lifa mannsæmandi lífi.
(e. Poverty is not just lack of money; it is
not having the capability to realize one´s
full potential as a human being)4. Með
færnikenningu sinni tengir Amartya Sen
á áhrifaríkan hátt fátækt við stöðu fólks í
samfélaginu. Hann segir að ef fólk fær ekki
tækifæri til að nýta hæfileika sína verður fólk
ekki það sem það vill vera, lífsgæði þeirra
skerðast og þau verða fátæk.
80 virk.is