Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Page 81
VIRK
Hugmyndir Sens hafa haft veruleg áhrif á
velferðarstefnumótun síðustu tvo áratugi þar
sem í auknum mæli er reynt að koma í veg
fyrir að fólk lendi á jaðri samfélagsins þar
sem það upplifir sig félagslega útilokað (e.
social exclusion) og þar með fátækt.
Vannýtt færni er tap allra
Annar Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði frá
árinu 2001, Dr. Joseph E. Stiglitz, hefur
sýnt fram á langtíma færnisskerðingu
samhliða fátækt. Rannsóknir Stiglitz sýna
að fátækt kemur í veg fyrir að fólk afli sér
menntunar og þar með sitji þeir fátæku
eftir í samfélaginu og færist fjær þeim sem
fá tækifæri á grundvelli menntunar. Stiglitz
bendir einnig á að samfélagið fari þann-
ig á mis við vannýtta hæfileika fólks og
þannig ástand leiði til minni hagsældar þar
sem bein tengsl eru milli menntunarstigs
þjóðar og framleiðni5. Fyrir vikið verður
einstaklingurinn ennig fátækur samkvæmt
kenningum Sen þar sem hæfileikar hans
eru ekki nýttir.
Með áherslum hagfræðinnar á fátækt hefur
í auknum mæli verið horft til hins tvöfalda
ávinnings, einstaklings og samfélags, sem
hlýst af því að gefa fólki tækifæri til að nýta
færni sína. Þannig hefur aukin áhersla verið
lögð á að veita fólki hlutverk í lífinu með
félagslegri þátttöku (e. social inclusion) og
koma þannig í veg fyrir félagslega útilokun.
Fjárhagsleg fátækt utan
vinnumarkaðar
Staða á vinnumarkaði hefur talsvert um
það að segja hver fjárhagsleg afkoma
fólks er. Evrópusambandið hefur tekið
saman helstu áhættuþætti fyrir fátækt. Þar
kemur skýrt fram að heimili sem eru undir
lágtekjumörkum og þar sem fullorðnir eru
með minna en 20% atvinnuþátttöku eru
í verulegri áhættu á fátækt eða félagslegri
útilokun6. Hagstofa Íslands hefur ekki gefið
út opinberlega niðurstöður úr Evrópsku
lífskjararannsókninni sem stofnunin tekur
þátt í, en á Læknadögum 2019 var sagt frá
niðurstöðum um mikinn fjárhagslegan mun
milli öryrkja og annarra. Munurinn kom
skýrast fram þegar spurt var hvort fólk búi
við skort á efnislegum gæðum og hvort það
gæti látið enda ná saman þar sem öryrkjar
sem höfðu engar atvinnutekjur voru margfalt
líklegri en aðrir til að skorta efnisleg gæði og
ná ekki endum saman. Þá sýnir evrópska
lífskjararannsóknin að 40% lífeyrisþega eru
á leigumarkaði á meðan hlutfallið fyrir aðra
landsmenn er helmingi minna eða 21.5%.
Rétt er þó að geta þess að samkvæmt
kjarakönnun Eflingar stéttarfélags eru einnig
40% þeirra félagsmanna á leigumarkaði7
þannig að lágtekjuhóparnir fylgjast að hvað
þetta varðar, óháð vinnugetu.
Hamingja tengd vinnumarkaði
Í febrúar 2019 kom til landsins þekktur
fyrirlesari og fræðimaður, Vanessa King,
sérfræðingur um vellíðan, þrautseigju
og hamingju á vinnustöðum8. Hélt hún
erindi á ráðstefnunni Hamingja á vinnu-
stöðum er alvörumál sem haldin var á
vegum VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs,
Embættis Landlæknis og Vinnueftirlitsins.
Í fyrirlestrinum birti hún eftirfarandi mynd,
sjá mynd 1, sem sýnir niðurstöður bresku
hagstofunnar þar sem lífsánægja er mæld
út frá stöðu á vinnumarkaði. Þarna kemur
sterkt fram að þeir sem eru á vinnumarkaði
telja líf sitt mun ánægjulegra en atvinnulausir
og eftir því sem tími atvinnuleysis lengist
minnkar lífsánægjan. Svipaðar niðurstöður
má sá í fjölda alþjóðlegra Gallup kannana
sem mæla lífsánægju með tilliti til atvinnu-
þátttöku9.
Sama sagan hjá unga fólkinu
Samkvæmt norrænum og evrópskum
rannsóknum er staða ungmenna sem eru
hvorki í vinnu né skóla talsvert slakari en
81virk.is