Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Page 85
VIRK
Nálgun Sölva var að lesa fjöldann allan
af bókum um heilsu og prófa á sjálfum
sér hvort og þá hvað virkaði. Í þessu ferli
sem varði næstu árin neyddist hann til að
endurhugsa daglegt líf sitt og margoft þurfti
hann að taka eitt skref til baka áður en
hann komst tvö skref áfram. En það kom
loks að því að einbeittur vilji Sölva að ná
heilsu skilaði sér í að honum leið vel og
hann fann fyrir gleði og þakklæti.
Það var svo fyrir um ári síðan að Sölvi fann
fyrir mikilli þörf að miðla þeirri þekkingu
og reynslu sem hann hafði viðað að sér á
undangengnum árum. Eftir að hafa lesið
ótal heilsutengdar bækur taldi hann vanta
bók sem fjallaði heildstætt um heilsu og
væri allt í senn praktísk, byggð á reynslu
og með fræðilegan bakgrunn. Þetta er
meginviðfangsefni bókarinnar, þ.e. hvað
getum við gert til að bæta heilsuna og
þar lýsir Sölvi sínu eigin ferðalagi, sumt
sem hann fjallar um hefur hjálpað honum
tímabundið, annað er orðið hluti af hans
daglegu rútínu.
Það sem að mati Sölva skiptir sköpum
þegar kemur að því að ná jafnvægi í
líkamanum og bættri heilsu eru minni
bólgur, jafn blóðsykur og bætt melting og
lykilþættir í að koma fyrrgreindum þáttum
í lag eru næring, svefn og heilsa. En það
er mun fleira sem hefur áhrif á jafnvægi í
líkamanum eins og t.d. kæling líkamans,
hugleiðsla, rétt öndun, föstur, iðkun
þakklætis, góð morgunrútína, rétt bætiefni
og fjölmargt fleira. Um þetta allt fjallar bókin
skipulega, kafla fyrir kafla, og í lok hvers
kafla er mælt með bókum til frekari lestrar
fyrir þá sem vilja fara meira á dýptina.
Á eigin skinni er vel undirbyggð bók, byggð
á áratugs reynslusögu Sölva. Bókin hefst
á einlægri frásögn hans af heilsubresti
og skrykkjóttri leið til heilsu. Meginefni
bókarinnar er umfjöllun um það sem skiptir
máli fyrir heilsuna, reynslusögur Sölva og
fræðilegar tilvísanir. Meginstefið er að það
hentar ekki öllum það sama, við þurfum
mögulega að prófa okkur áfram og þess
vegna er lýsing Sölva á því sem við getum
nýtt okkur á leið til betri heilsu fjölbreytt.
Eins og Sölvi segir réttilega í blálok
bókarinnar um heilsuferðlagið: „Aðgerðir
búa til visku og besti tíminn til að byrja er
nákvæmlega núna.“
85virk.is