Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Síða 52

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2018, Síða 52
Meðal annars þurfti að útbúa „Jafnréttis- áætlun“ sem send var til samþykktar til Jafnréttisstofu sem gaf VIRK eftirfarandi umsögn; „Jafnréttisáætlun Virk er virkilega vönduð og vel unnin og uppfyllir kröfur sem gerðar eru til slíkra áætlana, vitnað er í jafnréttislög og gildistími tilgreindur." Flokka þurfti öll störf og semja viðmið fyrir hvert starf, ásamt yfir- og undirviðmiðum. Einnig þurfti að setja prósentur og stig á starfaviðmið og jafnframt á persónubundna þætti og segja má að þessi liður sé sá flóknasti í ferlinu. Síðan voru gögn send til launagreiningar til hlutlauss aðila, sem sér- hæfir sig í slíkri greiningu. Lokaúttekt á jafnlaunakerfi VIRK fór síðan fram 6. apríl sl. og fékk þá umsögn frá vottunarstofu að mælt væri með að VIRK myndi fá jafnlaunavottun og að engin frábrigði hefðu fundist. Útskýrður kyn- bundinn launamunur var 1,1% konum í hag (R2=0,982) sem er glæsileg niðurstaða. Við erum stolt af því að vera brautryðjendur í að öðlast ÍST 85:2012 vottun fyrir fyrirtæki af þessari stærðargráðu. Jafnlaunavottun gerir VIRK að enn eftirsóknarverðari vinnustað þar sem jafnrétti og jafnræði ríkir. Starfsmenn VIRK Sitjandi frá vinstri: Guðrún Ágústa Eyjólfsdóttir, Alda Jóna Ólafsdóttir, Margrét Helga Theodórsdóttir, Þórunn Kjaran Gunnarsdóttir, Auður Þórhallsdóttir. Miðröð frá vinstri: Linda Bára Lýðsdóttir, Guðrún Ragnheiður Jónsdóttir, Hanna Björk Guðjónsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Soffía Eiríksdóttir, Baldína Hilda Ólafsdóttir, Ingibjörg Soffía Osmo, Þórey Edda Heiðarsdóttir, Svanhvít Vatnsdal Jóhannsdóttir, Vigdís Jónsdóttir, Ástrún Ósk Ástþórsdóttir, Anna Lóa Ólafsdóttir, Kamilla Hildur Gísladóttir, Hans Jakob Beck. Aftasta röð frá vinstri: Eysteinn Eyjólfsson, Ásta Sölvadóttir, Anna Magnea Bergmann, Freyja Lárusdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Björk Vilhelmsdóttir, Guðbjörg Róbertsdóttir, Ingibjörg Loftsdóttir, Svava Óttarsdóttir, Ásta Ágústsdóttir, Níní Jónasdóttir, Kristín Bjarnadóttir, Íris Judith Svavarsdóttir. Jafnlaunavottun gerir VIRK að enn eftirsóknarverðari vinnustað þar sem jafnrétti og jafnræði ríkir.“ 52 virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.