Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 23
FÉlagið02/04
Hjúkrun: Breytingarafl til framtíðar. Árangur - Hagkvæmni er
þema Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga (ICN) árið 2015, sem
hjúkrunarfræðingar um allan heim sameinast um á alþjóðadegi
hjúkrunarfræðinga 12. maí.
FÉlag íslEnskra hjúkrunarfræðinga boðaði til hátíðarfundar
12. maí þar sem efling öldrunarhjúkrunar var meginviðfangsefni
fundarins. Var það vel í anda yfirskriftar fundarins þar sem hjúkrunar-
fræðingar eru það breytingarafl sem þarf til að efla hjúkrun aldraðra
til framtíðar á árangursríkan og hagkvæman hátt.
Ólafur G. Skúlason, formaður FÍH, setti fundinn. Hann lagði
áherslu á mikilvægi þess að hjúkrunarfræðingar efli hjúkrunar- og
heilbrigðisþjónustu hér á landi og að árangur og hagkvæmni í þjón-
ustunni fengist með aukinni aðkomu þeirra.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis,
ávarpaði fundargesti og sagði meðal annars að velferðarnefnd myndi
fjalla um heilbrigðisþjónustu aldraðra strax í haust og boðaði samráð
við hjúkrunarfræðinga um málefnið.
Stefna FÍH í hjúkrun aldraðra til 2020 var kynnt. Stjórn fagdeildar
og sviðstjóri fagsviðs FÍH hafa unnið að stefnunni undanfarið ár og
voru niðurstöðurnar settar fram í skýrslu sem kynnt var á fundinum.
Skýrsluna má finna á vefsvæði félagsins.
Alls voru flutt fimm erindi sem öll fjölluðu um öldrunarhjúkrun.
Hlíf Guðmundsdóttir, formaður fagdeildar öldrunarhjúkrunar-
fræðinga, fjallaði um hjúkrunarfræðinga sem leiðandi afl í öldr-
unarhjúkrun. Inga Dagný Eydal, forstöðumaður heimahjúkrunar
Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, sagði frá reynslu af samvinnu og
samþættingu heimahjúkrunar og heimaþjónustu á Akureyri. Unnur
Þormóðsdóttir, hjúkrunarstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands,
kynnti niðurstöður rannsóknar sinnar, um mat á gæðum þjónustu
heimahjúkrunar á heilsugæslunni á Selfossi, út frá gæðavísum RAI-
HC. Elfa Þöll Grétarsdóttir, sérfræðingur í hjúkrun aldraðra á LSH,
ræddi um hlutverk hjúkrunarfræðinga í öldrunarteymum. Hún sagði
frá samvinnu samstarfshópa þeirra milli stofnana og þjónustustiga
sem sinna öldruðum, ásamt þremur verkefnum á flæðissviði LSH sem
hlutu gæðastyrki velferðarráðuneytisins í ár.
Erindið Silkistefna, Heilsuhús, forgangsverkefni með öldruðum