Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 66
Fagið08/14
III stig (mikil teppa) - 30% ≤ FEV1 < 50% af áætluðu
IV stig (svæsin teppa) - FEV1 < 30% af áætluðu eða FEV1 <
50% af áætluðu og langvinn öndunarbilun (Global initiative
for chronic obstructive lung disease, 2015).
Þrátt fyrir að þær skemmdir sem komnar eru á lungnavef séu
varanlegar er margt hægt að gera og því má alltaf gefa sjúklingum
von um bætta líðan. Mögulega meðferðarþætti við LLT má sjá í töflu
3. Mæði er það einkenni sem helst hefur áhrif á líðan lungnasjúklinga
og daglegt líf þeirra. Því skiptir miklu máli að meðhöndla hana.
Nú þegar hefur verið fjallað um þetta málefni í Tímariti hjúkrunar-
fræðinga þar sem góð ráð hafa verið gefin (Elfa Dröfn Ingólfsdóttir,
2012).
röltpróf
Á Reykjalundi er hvatt til nýsköpunar í greiningu hjúkrunarvanda
lungnasjúklinga og þróun hjúkrunarmeðferðar. Þannig hefur orðið
til sérhæfð hjúkrunarþekking. Dæmi um slíka vinnu er klínískt
próf, svokallað „röltpróf“, sem er hannað af hjúkrunarfræðingum á
Reykjalundi til að meta súrefnisþörf á göngu innanhúss.
Þegar sjúklingar koma í lungnaendurhæfingu verður oft mikil
breyting á hreyfingarmynstri þeirra, eða frá því að hafa verið í algjörri
kyrrsetu yfir í að ganga langar leiðir. Mikilvægt er að fyrirbyggja súrefn-
isþurrð við slíkar aðstæður. Röltpróf gefur gagnlegar upplýsingar um
súrefnisþörf og áhrif súrefnisfalls á einkenni og líðan sjúklings á göngu
á tiltekinni vegalengd. Þessar upplýsingar eru mikilvægar í klínískri
vinnu. Gildi röltprófsins hefur verið viðurkennt af lungnateyminu sem
Reykleysismeðferð
Endurhæfing
Mataræði
Innöndunarlyf (púst, úðavélar)
Líkamsrækt
Lyfjameðferð (sýklalyf, steralyf, þvagræsilyf)
Súrefnismeðferð
Fræðsla
Heilbrigður lífsmáti
Öndunartækni
Meðferð með öndunarvél (CPAP, BiPAP)
Skurðaðgerð
Lungnaskipti
(American Thoracic Society/European
respiratory society, 2004)
taFla 3. Meðferð við langvinnri lungnateppu.