Morgunblaðið - 01.11.2019, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1. N Ó V E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 257. tölublað 107. árgangur
GASLEIÐSLAN
EFLIR ÁHRIF
RÚSSLANDS
GETA BORIÐ
HÖFUÐIÐ
HÁTT
TREGASTEINN
EINS OG GOTT
RAUÐVÍN
BREIÐABLIK ÚR LEIK 32 bbbbb 36DEILT UM NORD STREAM 13
Víða á höfuðborgarsvæðinu mátti sjá grímuklædd börn ganga
milli húsa og biðja húsráðendur um að færa sér gotterí.
Var það aufúsubón í langflestum tilfellum, og lögðu sumir á
sig mikið erfiði til þess að hrekkjavökunni væri fagnað eins
og vera ber. Klæddu bæði börn og fullorðnir sig í alls kyns
grímubúninga, og voru sumir listavel úr garði gerðir.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hrekkjavaka
í Hlíðunum
Smæð flughlaða og skortur á
flugstæðum er meðal þess sem sagt
er hamla hlutverki flugvallanna á
Egilsstöðum og á Akureyri sem
varaflugvalla fyrir millilandaflug.
Ingvar Tryggvason, flugstjóri og
formaður öryggisnefndar FÍA, seg-
ir í samtali við Morgunblaðið í dag
að brýnt viðhald á Egilsstaða-
flugvelli hafi setið of lengi á hak-
anum, en malbikið þar sé orðið 26
ára gamalt. Ingvar segir jafnframt
að stjórnvöld hafi sýnt flugrekstri
óskiljanlegt sinnuleysi og þau verði
að fara að sýna í verki að þau láti
sig flugöryggi almennt varða. »14
Óskiljanlegt sinnu-
leysi stjórnvalda
Slysum fækkaði á þremur fjöl-
förnum gatnamótum í Reykjavík
eftir að sett voru upp vinstribeygju-
ljós í allar áttir á þeim. Í nýrri rann-
sókn sem kynnt er í dag kemur
fram að á gatnamótum Grensás-
vegar og Miklubrautar fækkaði
slysum um 15% en á gatnamótum
Laugavegs og Kringlumýrar-
brautar og Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar fækkaði
þeim um tæp 50%. »4
Slysum fækkaði
til vinstri
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ótímabundið yfirvinnubann flug-
manna hjá Air Iceland Connect
hefst í dag. Vinnustöðvunin var sam-
þykkt með yfirgnæfandi meirihluta í
atkvæðagreiðslu á dögunum og er
nú komin til framkvæmda. Alls
starfa 34 flugmenn hjá fyrirtækinu
og eru þeir allir í Félagi íslenskra
atvinnuflugmanna. Samningafundur
fulltrúa FÍA og Samtaka atvinnu-
lífsins, sem fer með samningsumboð
fyrir hönd flugfélagsins, var haldinn
í gærmorgun en bar ekki árangur.
Næsti fundur er boðaður 7. nóvem-
ber næstkomandi.
Ólíklegt að flugi verði raskað
„Við viljum halda í við aðra hvað
varðar kjaraþróun, það er megininn-
tak krafna okkar,“ segir Ólafur
Georgsson, formaður samninga-
nefndar FÍA, í samtali við Morg-
unblaðið. Hann telur ólíklegt að yf-
irvinnubannið muni raska áætlunar-
flugi svo neinu nemi. Air Iceland
Connect sé vel mannað þegar mið er
til dæmis tekið af því að ferðum fé-
lagsins hafi verið fækkað nokkuð að
undanförnu.
„Við eigum ekki von á því að þess-
ar aðgerðir hafi nein áhrif á starf-
semina, enda er vinnufyrirkomulag
flugmanna okkar þannig að við þeir
þurfa yfirleitt ekki að taka yfir-
vinnu. Komi hins vegar til þess að
einhver forföll verði eða ófyrirséð
atvik getur auðvitað orðið einhver
röskun vegna yfirvinnubannsins,“
sagði Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Air Iceland Connect, í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
Fyrsta flug dagsins hjá Air Ice-
land Connect verður kl. 7:10 um
morguninn til Akureyrar. Flogið er
þangað frá Reykjavík 4-5 sinnum á
dag, en auk þess eru þrjár ferðir til
Egilsstaða og tvær til Ísafjarðar.
Grænlandsflug er þrisvar í viku yfir
vetrartímann.
Yfirvinnubann í
innanlandsfluginu
Aðgerðir flugmanna Air Iceland Connect hefjast í dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flug Ókyrrt í starfi Air Iceland
Connect. Flugmenn þrýsta á.
Óhagkvæmt er að leggja Hólasands-
línu 3 í jarðstreng yfir Laxárdal,
samkvæmt mati á umhverfiskostn-
aði sem Hagfræðistofnun Háskóla
Íslands hefur gert fyrir Landsnet.
Jarðstrengur er dýrari en loftlína
samkvæmt áætlun Landsnets og
mat á greiðsluvilja raforkunotenda
sýnir að landsmenn myndu krefjast
bóta fyrir þau spjöll sem unnin yrðu
á náttúrunni með lagningu jarð-
strengs. Kostnaðarmat Hagfræði-
stofnunar gefur svipaðar niður-
stöður um þrjá valkosti sem
kannaðir voru og umhverfismat sem
Landsnet lét gera. »10
Ljósmynd/Landsnet
Loftlína Háspennulínur hafa ávallt
áhrif á ásýnd lands.
Jarðstrengur
óhagkvæmur
Ný aðferð við mat