Morgunblaðið - 01.11.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
F á k a f e n i 9 1 0 8 R e y k j a v í kF á k a f e n i 9 1 0 8 R e y k j a v í k
P a s s i o n a t a
H a l d a r i : 8 . 8 0 0 k r
N æ r b u x u r : 4 . 7 0 0 k r
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Eftirtektarverður árangur hefur
náðst við fækkun vinstribeygjuslysa
á fjölförnum gatnamótum í Reykja-
vík á síðustu árum með því að koma
upp vinstribeygjuljósum í allar áttir.
Þetta kemur fram í rannsókn Önnu
Guðrúnar Stefánsdóttur, Ávinning-
ur af óhindruðum beygjustraumum,
sem kynnt er á rannsóknarráðstefnu
Vegagerðarinnar í dag. „Fjárhags-
legur ávinningur við uppsetningu
vinstribeygjuljósa á allar stefnur er
mikill og endurbætur á gatnamótum,
þar sem hægt er að koma slíku við,
getur skilað sér til baka til sam-
félagsins á fáum árum,“ segir í
skýrslu Önnu Guðrúnar.
Hún skoðaði slysatíðni og alvar-
leika umferðarslysa í fimm ár fyrir
og eftir breytingu á umferðarljósun-
um á þrennum gatnamótum;
Kringlumýrarbrautar og Miklu-
brautar, Laugavegs og Kringlumýr-
arbrautar og Miklubrautar og
Grensásvegar. Slysum fækkaði á öll-
um þrennum gatnamótunum.
Minnst voru áhrifin á Grensásvegi
og Miklubraut þar sem slysatíðnin
lækkaði um 15% en lækkunin var
töluvert meiri á hinum tvennum
gatnamótunum, þ.e. tæp 50%. Mest-
ur varð árangurinn á gatnamótum
Laugavegs og Kringlumýrarbraut-
ar.
Alvarleikastuðull lækkaði töluvert
á Laugavegi og Kringlumýrarbraut
og Grensásvegi og Miklubraut eftir
breytingar en hækkaði lítillega á
Kringlumýrarbraut og Miklubraut,
sem er í samræmi við alvarleika
slysanna á gatnamótunum þrennum,
að því er fram kemur í ágripi skýrsl-
unnar.
Sú þróun þykir ásættanleg þar eð
aftanákeyrslur valdi síður alvarleg-
um slysum en hliðarárekstrar.
Slysum fækkaði
um næstum 50%
Kostnaður við
vinstribeygjuljós skil-
ar sér fljótt aftur
Morgunblaðið/Hari
Umferð Vinstri beygja á gatnamót-
um Grensásvegar og Miklubrautar.
Landssöfnunin Neyðarkall björgunarsveitanna hófst í
gær, en næstu daga verður fólk úr sveitunum á ferðinni
um borg og byggðir og selur plastfígúruna góðu sem að
þessu sinni er úr þeirra röðum og með dróna í hendi.
Góð reynsla hefur fengist af notkun dróna við leit og
björgun og þykir því nauðsynlegt að fá fleiri og full-
komnari slík tæki og efla þjálfun við notkun þeirra. Við
upphaf landssöfnunarinnar í gær sýndi Unnur Kristín
Valdimarsdóttir úr björgunarsveitinni Ársæli í Reykja-
vík fréttamönnum hvernig nota skal dróna, en hún er í
þeim hópi sem selja mun Neyðarkallinn. „Salan er mik-
ilvægur þáttur í fjáröflun okkar. Ekki síður er mikilvægt
fyrir björgunarsveitafólk að fá tækifæri til að hitta fólk
og svara spurningum þess í landinu, sem við erum alltaf
reiðubúin að aðstoða,“ segir Þór Þorsteinsson, formaður
Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Björgunarsveitirnar selja Neyðarkallinn næstu daga
Morgunblaðið/Eggert
Drónarnir
eru þarfaþing
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
Alls hafa tíu læknar sagt upp störf-
um á Reykjalundi frá því í sumar.
Einungis þrír læknar á stofnuninni
hafa ekki sagt upp störfum og hafa
embætti landlæknis og Sjúkratrygg-
ingar Íslands óskað eftir upplýsing-
um og gögnum frá Reykjalundi
vegna stöðunnar sem upp er komin á
stofnuninni.
Níu af læknunum tíu hafa sagt
upp á síðustu vikum vegna óánægju
sína með með afskipti stjórnar SÍBS
af rekstri Reykjalundar en einn
sagði upp í sumar af ótengdum
ástæðum. Í tilkynningu frá stjórn-
endum Reykjalundar sem send var í
gær kemur fram að hluti þeirra
lækna sem sagt hafi upp hyggist
vinna á uppsagnarfresti sínum og að
leitast verði við að manna störf
þeirra með góðum fyrirvara. Jafn-
framt er vonast til þess að einhverjir
þeirra er sagt hafi upp muni endur-
skoða afstöðu sína.
Staða forstjóra auglýst
Í tilkynningunni segir jafnframt
að stjórnendur Reykjalundar hafi nú
svarað þeim spurningum sem emb-
ætti landlæknis og Sjúkratrygging-
ar Íslands hafi sent, auk þess sem að
SÍBS hafi uppfyllt þau skilyrði sem
Herdís Gunnarsdóttir setti þegar
hún tók tímabundið að sér starf for-
stjóra Reykjalundar, en þau fólu í
sér að starf forstjóra yrði auglýst
strax og stjórn SÍBS myndi ekki
skipta sér af daglegum rekstri
Reykjalundar. Kemur fram í til-
kynningunni að starf forstjóra verði
auglýst um helgina og að sérstök
hæfisnefnd muni annast ráðningu
hans. Þá muni ný þriggja manna
starfsstjórn taka til starfa á Reykja-
lundi og vinna tillögur um rekstrar-
grundvöll Reykjalundar í framtíð-
inni. „Markmiðið er að með þessum
aðgerðum megi með öruggum skref-
um lægja öldurnar á Reykjalundi og
bregðast við óskum sem fram hafa
komið um aukið sjálfstæði starfsem-
innar til framtíðar,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Leggja mat á stöðu mála
María Heimisdóttir, forstjóri
Sjúkratrygginga Íslands, sagði í
samtali við mbl.is í gær að stofnunin
væri að kalla eftir og vinna úr gögn-
um frá Reykjalundi til að meta hvort
uppsagnirnar ógni þjónustusamn-
ingi Sjúkratrygginga og Reykja-
lundar. „Við erum með samning um
að það sé veitt þarna ákveðin þjón-
usta, meðal annars læknaþjónusta
og ef mönnun fer niður fyrir eitt-
hvert ákveðið viðmið er ljóst að það
setur samninginn í uppnám. En við
erum ekki stödd þar núna,“ sagði
María.
-Hafa Sjúkratryggingar Íslands
áhyggjur af því að mönnun sé að fara
undir viðmið? „Ég held að eins og
allir landsmenn þá höfum við
áhyggjur af þessum erfiðleikum sem
allir vita að eru á Reykjalundi, en við
erum ekki komin það langt í þessu
ferli að við höfum beinlínis áhyggjur
af því að mönnun fari undir viðmið,“
segir María að lokum.
Ekki náðist í Herdísi Gunnars-
dóttur, forstjóra Reykjalundar, né
Ólaf Þór Ævarsson, framkvæmda-
stjóra lækninga á Reykjalundi í gær-
kvöldi.
Allir nema
þrír hafa
sagt upp
Þjónustusamningur Reykjalundar við
Sjúkratryggingar mögulega í uppnámi