Morgunblaðið - 01.11.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Síldarvertíð er á síðustu metrunum
og veiðar og vinnsla hafa gengið vel.
Tregða hefur hins vegar verið á
mörkuðum og er mikið af síld í
frystigeymslum hérlendis og í
kaupalöndunum í Austur-Evrópu.
Mikil framleiðsla hefur verið á síld
í Noregi í ár og hafa Norðmenn verið
grimmir í markaðssetningu. Þeir
hafa lagt áherslu á að losna við vör-
una og boðið kaupendum hagstætt
verð. Útflytjandi, sem rætt var við í
gær, sagði að vissulega væru síldar-
markaðir þungir um þessar mundir,
en lítið fengist með því að troða
vörum inn á markaðinn til að losa um
geymslupláss. Útgerðarmaður sagði
að síldin færi hægar en oft áður og
verðið væri ekkert sérstakt. Hins
vegar væri þetta breytilegt eftir því
hvað væri framleitt.
Sala á makrílafurðum frá vertíð-
inni í sumar hefur gengið mun betur
og þar er staðan sögð eðlileg. Al-
mennt hefur sala á uppsjávarafurð-
um gengið vel síðustu misseri og vör-
urnar selst á þokkalegum hraða og
verði, eins og það var orðað í gær,
„en núna erum við í fyrsta skipti í
langan tíma að sjá smá brekku í síld-
inni“.
Sigurður og Heimaey
enn að veiðum
Landað var úr Venusi á Vopnafirði
í gær og síðdegis var von á Víkingi
þangað með síðasta síldarfarm
Brims á vertíðinni, 12-1.300 tonn.
Skip Ísfélagsins, Sigurður og
Heimaey, voru hins vegar á siglingu
austur í Síldarsmugu, en þangað eru
um 400 sjómílur og 30 tíma stím frá
Þórshöfn. Líklegt er að hvort skip
landi tvívegis í viðbót á vertíðinni, en
það ræðst þó af veiði og veðurfari.
Önnur fyrirtæki eru hætt veiðum á
norsk-íslenskri síld í ár.
Í gær var búið að landa um 99 þús-
und tonnum af síld samkvæmt upp-
lýsingum á vef Fiskistofu, en aflinn
er kominn yfir 100 þúsund tonn því
skýrslur um löndun berast ekki sam-
dægurs. Alls er heimilt að veiða 106
þúsund tonn á vertíðinni með flutn-
ingi á milli ára.
Framundan hjá uppsjávarskipun-
um eru veiðar á kolmunna og ís-
lenskri sumargotssíld.
Síldarvertíð hófst í byrjun sept-
ember og fékk Bjarni Ólafsson þá
góðan afla á Glettinganesgrunni.
Næstu dagana á eftir veiddist vel á
Héraðsflóa og víðar, en er leið á
september færði síldin sig austur á
bóginn. Síðustu vikur hafa skipin
verið í Síldarsugunni djúpt austur af
landinu. Eftir leiðindabrælu í nokk-
urn tíma hefur veður skánað í vik-
unni.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Stund milli stríða Glaðlegir starfsmenn Ísfélagsins á Þórshöfn gæddu sér á heimabakaðri súkkulaðiköku með
kaffinu í hádegishléinu í gær, frá vinstri Karolin Rätt, Ulrika Palts, Avelin Rätt og Reivo Laast, öll frá Eistlandi.
Síldarvertíð ársins
á síðustu metrunum
Veiðar og vinnsla hafa gengið vel Tregða á mörkuðum
Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Traust og fagleg
starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum
fyrirtækjum í áraraðir
inn ganga Tuborg-jólasveinar milli
bara og færa viðstöddum glaðning.
Ekki eru þó hátíðarhöldin bundin
við eina bjórtegund. Jólabjórinn frá
Kalda var settur í sölu á Kaldabar
og víðar í gærkvöldi auk þess sem
fleiri tegundir bætast við á veit-
ingastöðum þar til sala hefst í Vín-
búðunum 14. nóvember. Þar verða
78 tegundir á boðstólum.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Búast má við því að líf verði í tusk-
unum í miðborg Reykjavíkur í
kvöld þegar byrjað verður að selja
jólabjór á flestum börum og veit-
ingastöðum.
Að dönskum sið verður mikil við-
höfn á vegum Tuborg, en sá bjór
hefur verið langvinsælasti jólabjór-
inn hér á landi síðustu ár.
J-dagurinn svokallaði er alltaf
haldinn hátíðlegur fyrsta föstudag í
nóvember. Klukkan 20.59 er byrjað
að skenkja Tuborg-jólabjór, en
ástæða tímasetningarinnar er rakin
til þess þegar jólabjórinn kom fyrst
á markað í Danmörku árið 1981. Þá
seinkaði framleiðslunni og fyrsti
bjórinn komst ekki á krana fyrr en
klukkan 20.59. Sagan segir að á
sama augnabliki hafi fyrsti jóla-
snjórinn fallið og í kjölfarið varð
þessi hefð til.
Mikil hátíðarhöld verða klukkan
20.59 á Dönsku kránni við Ingólfs-
stræti en þegar jólasnjórinn er fall-
J-dagurinn Mikil viðhöfn er jafnan
fyrir utan og inni á Dönsku kránni.
Jólabjórinn í sölu
á börum í kvöld
J-deginum fagn-
að klukkan 20.59
hinn 1. nóvember
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Einelti, kynferðisleg áreitni, kyn-
bundin áreitni, ofbeldi og kynferð-
isbrot munu nú verða tekin nýjum
tökum hjá þjóðkirkjunni, að sögn
Kolbrúnar Baldursdóttur, sálfræð-
ings og sérfræð-
ings í eineltismál-
um,
borgarfulltrúa og
kirkjuþingsfull-
trúa.
Kolbrún lagði
til á kirkjuþingi í
fyrra að myndað-
ur yrði stýrihóp-
ur sem setti sam-
an stefnu og
verklag ef upp
koma ofbeldismál svo sem einelti eða
kvörtun um kynferðisbrot hjá kirkj-
unni. Kolbrún sat í hópnum sem lauk
störfum í mars. Afraksturinn var
lagður fyrir framhaldskirkjuþing í
mars og var samþykktur samhljóða.
„Ég hef sem sálfræðingur til þrjá-
tíu ára unnið mikið í eineltismálum
bæði í skólum, íþróttafélögum og
vinnustöðum auk þess sem ég hef
skrifað mikið um þennan málaflokk,
þar á meðal bókina EKKI MEIR. Í
gegnum árin hef ég þróað ákveðið
verklag sem hefur gengið vel í ljósi
þess hversu erfið og viðkvæm þessi
mál eru,“ sagði Kolbrún. Hún var
kjörin til setu á kirkjuþingi 2018.
„Ég gaf kost á mér vegna þess að
mig langaði að hjálpa kirkjunni að
takast á við eineltis- og ofbeldismál.
Þetta eru erfið mál og mér þótti sýnt
að þarna þyrfti að gera góða faglega
stefnu og verklag og taka á þessu
heildstætt, það er eina stefnu fyrir
allt ofbeldi,“ sagði Kolbrún. „Nú er
ekkert að vanbúnaði. Finna þarf fag-
fólk í teymið sem vinna á þau mál
sem upp koma og er mikilvægt að
um sé að ræða utanaðkomandi fag-
fólk. Ég legg áherslu á að sálfræð-
ingur með farsæla reynslu sitji í
teyminu og jafnvel geðlæknir eða
annað fagfólk úr þessum geira. Nú
bíður að kynna stefnuna og verklag-
ið um allt land þannig að ef upp koma
mál þá viti fólk innan kirkjunnar og
þeir sem hafa hagsmuna að gæta
hvert á að leita og hvaða viðbragðs-
ferli tekur þá við.“
Nýir tímar fram undan
„Ég tel að kirkjan sé að mörgu
leyti að sigla inn í nýja tíma sem hluti
af samfélagi lýðræðis, mannréttinda,
jöfnuðar og gegnsæis með innleið-
ingu þessarar nýju stefnu og verk-
lags um aðgerðir gegn einelti, kyn-
ferðislegri áreitni, kynbundinni
áreitni og ofbeldi og meðferð kyn-
ferðisbrota innan kirkjunnar.“
Í verklaginu er lögð áherslu á að
sá sem kvartar hafi aðkomu að sínu
máli, enda sé það hans. Þegar ný
persónuverndarlög komu var það
staðfest sem Kolbrún kveðst hafa
barist fyrir árum saman og það er að
engu sé haldið leyndu fyrir aðilum
málsins og að teymið vinni með til-
kynnandanum og hafi við hann sam-
ráð.
„Réttindum meints geranda þarf
líka að huga að, t.d. að hann fái fullar
upplýsingar um ásökunarefnið, hvað
það er sem hann er ásakaður fyrir,“
sagði Kolbrún.
Kirkjan tekur á
ofbeldismálum
Ný stefna og nýtt verklag tekið upp
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Háteigskirkja Kirkjuþing 2019
verður sett þar á laugardag. Kolbrún
Baldursdóttir