Morgunblaðið - 01.11.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
Scangrip vinnuljósin
eiga heima í Fossberg
Á hverju haustiberast fréttir af
skógareldum sem
engu eira og skilja
eftir sig sviðna jörð á
stórum svæðum í
Kaliforníu. Við þessi
ömurlegu og háska-
legu tilþrif náttúr-
unnar bætist svo að
yfirvöld standa fyrir
manngerðu raf-
magnsleysi sem náð
hefur til milljóna
manna, en rafmagn
er tekið af þar sem
óttast er að á þurrkatíð geti neistar
frá rafmagnslínum kveikt nýja elda.
Síðustu daga var sagt frá ótta umað skógareldar næðu að Minn-
ingasetri og bókasafni um Ronald
Reagan Bandaríkjaforseta og áður
ríkisstjóra í Kaliforníu. En loks
komu þá góðar fréttir:
„Svöng 500 geita hjörð hjálpaði til
við að bjarga bókasafni Ronalds
Reagans, fyrrverandi forseta Banda-
ríkjanna, frá því að verða eldsmatur
í einum af þeim ótal eldsvoðum sem
nú geisa í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum. BBC greinir frá þessu.
Í maí síðastliðnum réðu forsvars-menn bókasafnsins geiturnar til
að fjarlægja eldfimt kjarr sem var
áður umhverfis safnið. Var það
gert í forvarnaskyni.
Geiturnar átu kjarrið og því varð
til rjóður sem hefti útbreiðslu elds-
ins og gaf slökkviliðsmönnum
lengri tíma til að bregðast við.“
Getgátur eru um það að for-ráðamenn bókasafns um Rich-
ard Nixon forseta muni fylgja þessu
vel heppnaða fordæmi.
Þeir munu þegar vera farnir aðleita að heppilegum geitastofni
og mun watergeitin koma sterk-
lega til álita.
Ronald Reagan
Fyrirbyggjandi
geitur
STAKSTEINAR
Richard Nixon
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Þingsályktunartillaga um viður-
kenningu á þjóðarmorði á Armenum
hefur ekki enn verið samþykkt á Al-
þingi, en tillagan hefur verið lögð
fram nokkrum sinnum á síðustu
árum. Um 30 þjóðir hafa viðurkennt
fjöldamorð Tyrkja á Armenum sem
þjóðarmorð, þ. á m. Danir og Svíar.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings sam-
þykkti fyrr í vikunni, með yfirgnæf-
andi meirihluta, að viðurkenna
fjöldamorðin sem þjóðarmorð.
Samfylkingin fer með tillöguna
Þingsályktunartillagan var lögð
fram á síðasta löggjafarþingi og
endurflutt í október á þessu ári af
Margréti Tryggvadóttur, varaþing-
manni Samfylkingarinnar. Hún er
sem stendur utan þings og getur því
ekki mælt fyrir tillögunni en fyrsta
umræða hefur ekki enn farið fram.
Tillagan snýr að því að Alþingi álykt-
ar að það viðurkenni þjóðarmorð á
Armenum árin 1915-1917 og virði
minningu fórnarlamba þessa glæps
gegn mannkyni. „Það er ekkert því
til fyrirstöðu að einhverjir flutnings-
manna taki málið og flytji það,“ segir
Margrét bætir við að það væri til-
valið að flytja tillöguna um þessar
mundir. Fyrstu fjórir flutningsmenn
tillögunnar koma úr röðum Samfylk-
ingarinnar en að sögn Oddnýjar G.
Harðardóttur þingflokksformanns
er ekki búið að taka ákvörðun um
hvort tillagan verði borin upp næst
þegar kemur að þingmannamálum á
Alþingi. Oddný segir að fundað verði
á mánudag með forseta Alþingis um
þingmannamálin.
Þingið ekki viðurkennt þjóðarmorð
Óvissa um þingsályktunartillögu um viðurkenningu á þjóðarmorði á Armenum
Forsetahjónin Guðni Th. Jóhanns-
son og Eliza Reid komu víða við í
opinberri heimsókn sinni í Grund-
arfirði í gær. Þau hófu daginn á
því að líta við í grunn- og leik-
skólum byggðarlagsins og heilsa
upp á unga fólkið. Þau heimsóttu
Fjölbrautaskóla Snæfellinga og litu
svo á dvalarheimili aldraðra. Þá
heimsóttu þau sjávarútvegsfyr-
irtækið G. Run og hátæknivædda
fiskvinnslu þess sem tekin var í
notkun nýlega. Hjónin skoðuðu
einnig Farsæl SH, togbát sem ný-
lega var keyptur til Grund-
arfjarðar og er í eigu Fisk Sea-
food, sem er með umsvifamikinn
rekstur í Grundarfirði.
Einnig var fundað með skát-
unum, en Marta Magnúsdóttir
skátahöfðingi Íslands er einmitt úr
Grundarfirði og hefur verið drif-
fjöður í skátastarfi í bæjarfélaginu.
Dagskránni lauk svo síðdegis með
opnu húsi fyrir bæjarbúa, en áður
höfðu forsetahjónin setið málþing
um sjávarútveg og samtímann. Við
það tilefni afhenti Guðni Björgu
Ágústsdóttur bæjarstjóra mynd af
Ólafi Ragnari Grímssyni í heim-
sókn hans í Grundarfjörð fyrir all-
mörgum árum. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Forsetaheimsókn Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti Björgu
Ágústsdóttur, bæjarstjóra Grundarfjarðar, mynd af forvera sínum.
Kynntu sér mann-
lífið á Grundarfirði