Morgunblaðið - 01.11.2019, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
1. nóvember 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.85 124.45 124.15
Sterlingspund 159.59 160.37 159.98
Kanadadalur 94.66 95.22 94.94
Dönsk króna 18.431 18.539 18.485
Norsk króna 13.419 13.499 13.459
Sænsk króna 12.744 12.818 12.781
Svissn. franki 124.81 125.51 125.16
Japanskt jen 1.1374 1.144 1.1407
SDR 170.43 171.45 170.94
Evra 137.71 138.49 138.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.3397
Hrávöruverð
Gull 1490.15 ($/únsa)
Ál 1737.0 ($/tonn) LME
Hráolía 61.6 ($/fatið) Brent
● Neytendastofa
segir í frétt á heima-
síðu sinni að stofn-
unin hyggist endur-
upptaka ákvörðun
sína varðandi mál
kollagenframleið-
andans Ankra ehf.
og vöru fyrir-
tækisins, Amino
Marine Collagen
Powder.
Eins og sagt var frá í ViðskiptaMogg-
anum fyrr í vikunni, þar sem vísað var í
úrskurð Neytendastofu, þá bannaði
stofnunin Ankra að merkja vörur sínar
án þess að tilgreint væri með skýrum
hætti hvert framleiðsluland kollagens-
ins væri. Í úrskurðinum stóð einnig að
óumdeilt væri að vinnsla kollagensins
úr fiskroði færi fram erlendis, „eða
nánar tiltekið í Kína“.
Í frétt Neytendastofu segir að endur-
upptakan sé ákveðin í ljósi þess að
rangar upplýsingar hafi komið fram í
niðurstöðukafla ákvörðunarinnar og í
frétt um ákvörðunina. „Í ákvörðuninni
og í fréttinni kom ranglega fram að sá
hluti framleiðslu Feel Iceland sem fari
fram erlendis fari fram í Kína,“ segir
Neytendastofa og harmar óþægindin
sem þetta kunni að hafa valdið fyrir-
tækinu og viðskiptavinum þess.
Endurupptekur mál
kollagenframleiðanda
Efni Kollagen-
duft Ankra ehf.
STUTT
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Starfsfólki Arion banka hefur fækk-
að um 16% á síðustu 12 mánuðum.
Þar af 12% í þeim uppsögnum sem
fylgdu skipulagsbreytingum á nýaf-
stöðnum ársfjórðungi. Dagarnir
hafa verið langir hjá Benedikt Gísla-
syni sem tók við bankastjórastöðu
Arion banka í júní. Hann segir að
þær aðgerðir sem ráðist hafi verið í
hafi tekið á starfsfólk bankans. Þrátt
fyrir að skila minni hagnaði og lægri
arðsemi en hinir bankarnir segir
Benedikt að stóru fréttirnar í ný-
birtu ársfjórðungsuppgjöri bankans
séu hvað grunnrekstur bankans
gangi nú vel. T.a.m. nemi arðsemi
bankans hvað snertir áframhaldandi
starfsemi 8,5% á þriðja ársfjórðungi,
en meginfjárhagsmarkmið bankans
er að arðsemi eigin fjár fari upp í
10%.
Samstarf við aðra fjárfesta
Benedikt telur bankann hafa næg
vopn í búrinu til þess að takast á við
það verkefni; sér í lagi með nýjum
áherslum hvað varðar notkun eigin
fjár bankans og nýju fjárhagslegu
markmiði sem felst í því að tengja
betur saman tekjusköpun og notkun
eigin fjár.
„Þau atriði sem við höfum stjórn á
eru t.a.m. hvernig við nýtum eigið fé
í okkar rekstri. Hvernig við bindum
það á móti þeim eignum sem við
ákveðum að taka inn á efnahags-
reikninginn. Þær breytingar sem
hafa orðið á starfsumhverfi banka
fela í sér háar eiginfjárkröfur. Við
þurfum að binda meira eigið fé á
móti starfseminni. Markmiðið með
nýju fjárhagslegu markmiði er að
tengja betur saman tekjur bankans
og notkun eigin fjár. Ef við getum
notað eigið fé bankans þannig að það
skapar meiri tekjur þá munum við
gera það frekar en að binda eigið fé í
eignum til lengri tíma sem gefa
lægri arðsemi,“ segir Benedikt og
nefnir í því samhengi aðrar leiðir í
fjármögnun fyrirtækja en hefðbund-
in bankalán.
„Við leggjum nú í auknum mæli
áherslu á samstarf við fjárfesta, allt
frá öðrum fjármálafyrirtækjum og
sértækum sjóðum til fjársterkra ein-
staklinga sem leita fjárfestingar-
kosta, með það að markmiði að leiða
þá saman við þá sem leita að fjár-
magni. Ferlið þarf ekki alltaf að vera
þannig að sá sem á fjármagn leggi
það inn sem innlán í bankanum, og
síðan taki sá aðili sem þarf fjár-
magnið það út í formi útláns. Ég
held að breytingar á regluverkinu
séu einmitt meðal annars hugsaðar
til þess að reyna að dreifa þessari
áhættu, að hún sé ekki öll að fara í
gegnum bankana heldur leiði bank-
ar í auknum mæli saman fjármagns-
eigandann og þann sem þarf fjár-
magnið. Þetta viðskiptamódel er vel
þekkt erlendis en hefur ekki verið
stundað í ríkum mæli hér,“ segir
Benedikt. Nefnir hann að banka-
kerfið í N-Ameríku sé smærra sem
hlutfall af landsframleiðslu en
bankakerfið í Evrópu, þar sem rík-
ari áhersla er lögð á hlutverk banka
sem hefðbundins milliliðar við miðl-
un fjármagns.
Óþarfa áhyggjur
Arðsemi eigin fjár hjá samstæðu
Arion banka nam 1,6% á þriðja árs-
fjórðungi og vega þar þungt nei-
kvæð áhrif vegna aflagðrar starf-
semi. Er þar átt við dótturfélög
bankans, Valitor Holding, Stakks-
berg og TravelCO, sem skilgreind
eru sem eignir til sölu. Í útgefnum
viðbrögðum Landsbankans við upp-
gjöri Arion banka á þriðja ársfjórð-
ungi sem Morgunblaðið hefur undir
höndum segir að staða þessara eigna
til sölu valdi áhyggjum. Benedikt
segir að vissulega fylgi söluferli al-
mennt ákveðin óvissa en hefur sjálf-
ur ekki áhyggjur og nefnir Stakks-
berg, sem er betur þekkt sem
kísilverksmiðjan United Silicon, sem
dæmi. „Bókfært virði þeirrar eignar
er 40 milljónir evra eða um 5,5 millj-
arðar króna. Það er bara brot af
þeim fjármunum sem hafa verið
settir í að byggja þá verksmiðju upp.
Þótt hún sé ekki fullgerð í dag og
það þurfi að ráðast í úrbótaáætlun
sem hefur verið kynnt opinberlega
sem hluti af vinnu við mat á um-
hverfisáhrifum þá er staðan sú að ef
þessi iðnaður, sem er auðvitað víð-
tækari en bara það að vinna og búa
til sílíkon, er virðisaukandi fyrir þá
sem stunda hann, þá felast tækifæri
í því að eignast verksmiðju sem
hægt er að gangsetja á miklu
skemmri tíma en ef farið væri í slíkt
verkefni frá grunni,“ segir Benedikt.
„Varðandi Valitor þá er rétt að
fyrirtækið er búið að vera í tap-
rekstri en við höfum bent á að það
tengist miklum tekjuvexti hjá félag-
inu. Þeim alþjóðlega vexti fylgir
fjárfesting og kostnaður.“
Tengja betur saman
tekjur við notkun eigin fjár
Arion banki Benedikt Gíslason tók við bankastjórastöðu Arion banka í júní.
Bankastjóri Arion banka leggur áherslu á samstarf við aðra fjárfesta
Heildarhagnaður upplýsingatækni-
fyrirtækisins Origo var tæpar 15
milljónir króna á þriðja ársfjórðungi
2019, samanborið við 146 milljónir á
sama tímabili í fyrra, en þýðingar-
munur á fjórðungnum vegna starf-
semi dóttur- og hlutdeildarfélaga var
neikvæður um 59 milljónir.
Eignir Origo í lok tímabilsins
námu 11,6 milljörðum og hafa lækk-
að um tæp sex prósent frá því í lok
2018, en þá voru eignirnar 12,3 millj-
arðar króna.
Eigið fé félagsins nam tæpum sjö
milljörðum króna í lok tímabilsins en
var 8,2 milljarðar í lok árs 2018, og
lækkaði því um nærri 15%. Eigin-
fjárhlutfall Origo er nú 60,2% en var
66,4% við lok síðasta árs.
Sala á vöru og þjónustu nam 3,5
milljörðum á fjórðungnum, og óx um
9,4% miðað við sama tímabil í fyrra,
án tekna Tempo, en hugbúnaðar-
fyrirtækið Tempo ehf. er ekki lengur
hluti af samstæðureikningi félags-
ins.
Stöðugleiki í rekstrinum
Finnur Oddsson, forstjóri Origo,
segist í tilkynningu frá félaginu vera
ánægður með tekjuaukninguna. „Við
erum ánægð með ágæta tekjuaukn-
ingu hjá Origo á þriðja ársfjórðungi,
um 9%, og almennt er ákveðinn stöð-
ugleiki í rekstrinum,“ segir Finnur.
Hann segir að tekjuvöxt megi að
hluta rekja til áframhaldandi auk-
inna umsvifa í hugbúnaðartengdri
starfsemi eins og verið hafi undan-
farin misseri. „Að auki var töluverð
aukning í sölu á notendabúnaði, m.a.
vegna kaupa Origo á Strikamerki og
Tölvuteki fyrr á árinu.“
Forstjóri Finnur segist ánægður
með tekjuaukningu félagsins.
Heildarhagnaður
Origo 15 milljónir
Tekjur jukust
um 9,4% milli ára