Morgunblaðið - 01.11.2019, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
Heill frumskógur af gæludýrum...
Í fiskana mig langar svo
að setja í búrið stóra
mamma segir þú færð tvo
en pabbi segir fjóra.
Kauptúni 3 | Garðabæ | Sími: 564 3364 | fisko.is
Opið laugardag 10-18 sunnudag 12-18
L i f and i v e r s l un
kíktu í heimsókn
Hundar Kettir Fiskar Fuglar Nagdýr
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Volodimír Zelenskí, forseti Úkraínu,
gagnrýndi í gær ákvörðun orkumála-
yfirvalda í Danmörku um að heimila
að umdeild gasleiðsla milli Rússlands
og Þýskalands yrði lögð í Eystrasalti
innan efnahagslögsögu Danmerkur.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum og lönd í
Austur-Evrópu eru andvíg gasleiðsl-
unni og segja að hún geri Evrópuríki
háðari innflutningi á jarðgasi frá
Rússlandi.
Orkustofnun Danmerkur tilkynnti
í fyrradag að hún hefði ákveðið að
heimila að gasleiðslan Nord Stream 2
yrði lögð í landgrunni Danmerkur
suðaustan við Borgundarhólm.
Stofnunin sagði að Dönum bæri
„skylda til að heimila lagningu flutn-
ingaleiðslna“ samkvæmt hafréttar-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Dan
Jørgensen, ráðherra orku- og lofts-
lagsmála í dönsku stjórninni, sagði að
þetta væri „eingöngu stjórnsýslu-
ákvörðun“ og niðurstaða orku-
stofnunarinnar.
Zelenskí sagði að ákvörðunin sner-
ist ekki aðeins um orkuöryggi heldur
einnig varnarhagsmuni Evrópuríkja.
„Þess vegna segi ég ykkur í fullri
hreinskilni að þetta eflir Rússland og
veikir Evrópu,“ sagði forsetinn á
blaðamannafundi í Kænugarði með
Jens Stoltenberg, framkvæmda-
stjóra Atlantshafsbandalagsins.
Refsiaðgerðum beitt?
Bandarísk stjórnvöld hafa einnig
gagnrýnt gasleiðsluna. Orkumála-
ráðuneytið í Washington segir að
hún geri Evrópuríki háðari Rússum í
orkumálum og ógni öryggi evrópskra
samstarfslanda Bandaríkjanna í
NATO. Donald Trump Bandaríkja-
forseti hefur lagst gegn gasleiðsl-
unni, eins og forveri hans í embætt-
inu, Barack Obama. Trump hefur
sagt að leiðslan geti orðið til þess að
Evrópuríki verði í „gíslingu Rússa“
og hefur hótað refsiaðgerðum gegn
fyrirtækjum sem taka þátt í verkefn-
inu. Stjórn hans hefur boðist til að
selja Evrópuríkjunum fljótandi jarð-
gas til að tryggja að þau verði ekki of
háð innflutningi á rússnesku gasi.
Sögð stangast á við
orkustefnu ESB
Ráðamenn í Póllandi og fleiri
Austur-Evrópuríkjum hafa tekið
undir gagnrýnina á gasleiðsluna,
einkum vegna þess að þeir óttast að
hún auki áhrif Rússa á svæðinu. Þeir
hafa áhyggjur af því að Rússar geti
notað gasleiðsluna sem vopn í deilum
við Evrópuríki.
Evrópuþingið samþykkti ályktun í
mars þar sem það gagnrýndi gas-
leiðsluna, sagði hana gera ESB-ríki
háðari rússnesku jarðgasi, ógna innri
markaði ESB, stangast á við orku-
stefnu sambandsins og skaða varnar-
hagsmuni þess. Ályktunin var sam-
þykkt með 402 atkvæðum gegn 163
en 89 þingmenn sátu hjá.
Gert er ráð fyrir að gasleiðslan
kosti um 9,5 milljarða evra, jafnvirði
rúmra 1.300 milljarða króna. Hún er
lögð undir forystu rússneska ríkis-
fyrirtækisins Gazprom í samstarfi
við nokkur evrópsk orkufyrirtæki,
þ. á m. Uniper og Wintershall DEA í
Þýskalandi, Shell í Hollandi og Bret-
landi, og Engie í Frakklandi.
Getur tvöfaldað
gasinnflutninginn
Leiðslan verður 1.230 kílómetra
löng og þar af verða um 147 kílómetr-
ar innan lögsögu Danmerkur. Um
87% gasleiðslunnar hafa þegar verið
lögð. Lagningu hennar er lokið í lög-
sögu Rússlands, Finnlands og Sví-
þjóðar og einnig að mestu í land-
grunni Þýskalands.
Um helmingurinn af jarðgasinu
sem notað er í ESB-löndunum kemur
núna frá Rússlandi. Gasleiðslan verð-
ur til þess að hægt verður að flytja
tvöfalt meira af jarðgasi frá Rúss-
landi til Þýskalands. Stjórnvöld í
Þýskalandi og fleiri löndum Evrópu-
sambandsins hafa stutt leiðsluna og
sagt hana nauðsynlega til að tryggja
öruggt framboð á orku á hagstæðu
verði. Evrópuríkin hafa áhyggjur af
orkuörygginu vegna þess að gert er
ráð fyrir að framleiðsla þeirra á jarð-
gasi minnki um 50% á næstu 20 árum
en eftirspurnin eftir orku haldi áfram
að aukast. Á sama tíma stefna stjórn-
völd í Þýskalandi að því að minnka
notkun á kolum og kjarnorku til
orkuframleiðslu, þannig að þörfin á
jarðgasi eykst.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands,
fagnaði ákvörðun dönsku stjórnar-
innar og sagði það þjóna hagsmunum
Evrópuríkjanna að ljúka lagningu
gasleiðslunnar. Hann hrósaði einnig
Dönum fyrir að „verja hagsmuni og
fullveldi Danmerkur“.
Gert hefur verið ráð fyrir því að
gasleiðslan verði tekin í notkun í lok
ársins þegar samningur um flutning
á rússnesku jarðgasi í leiðslu um
Úkraínu fellur úr gildi. Evrópusam-
bandið hefur hvatt stjórnvöld í Rúss-
landi og Úkraínu til að gera nýjan
samning um gasflutninginn fyrir lok
ársins. Deilur landanna vegna hern-
aðar Rússa í austurhéruðum Úkra-
ínu og málaferli Gazprom og úkra-
ínska orkufyrirtækisins Nafogaz
hafa torveldað viðræður um nýjan
samning.
Sögð efla Rúss-
land og veikja
Evrópuríki
Danir leyfa gasleiðslu frá Rússlandi
Sankti
Pétursborg
Heimild: Gazprom
Gasleiðslan Nord Stream
ÞÝSKALAND
Eystra-
salt
Vyborg
Ust-Luga
PÓLLAND
HVÍTA-
RÚSSLAND
LITHÁEN
LETTLAND
EISTLAND
SVÍÞJÓÐ
DANMÖRK
NOREGUR
FINNLAND
RÚSSL.Greifswald
RÚSSLAND
100 km
Nord Stream (lokið árið 2011)
Nord Stream 2 (tekin í notkun í lok ársins)
Mótmælandi sýnir skilaboð í farsíma fyrir framan röð
lögreglumanna á torgi í miðborg Hong Kong í gær,
daginn fyrir allraheilagramessu. Lýðræðissinnar héldu
mótmælum sínum áfram í borginni og settu upp grímur
eins og gert var víða um heim í tilefni af hrekkjavök-
unni sem var í gær. Þeir virtu þannig að vettugi
neyðarlög yfirvalda í Hong Kong og bann við því að
nota grímur á hvers konar mótmælafundum.
AFP
Grímubann hunsað á hrekkjavöku
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings sam-
þykkti í gær ályktun um að halda
áfram rannsókn sem gæti orðið til
þess að Donald Trump forseti yrði
ákærður til embættismissis. Þetta er
fyrsta atkvæðagreiðslan í þingdeild-
inni um rannsóknina og þingmennirn-
ir greiddu atkvæði eftir flokkslínum.
232 þingmenn, allir demókratarnir og
einn óháður, greiddu atkvæði með
ályktuninni. 196 voru á móti, þar af
194 repúblikanar og tveir demókratar
sem koma úr kjördæmum þar sem
Trump sigraði með yfirburðum í for-
setakosningunum árið 2016. Trump
gagnrýndi atkvæðagreiðsluna og
sagði rannsóknina vera „mestu
nornaveiðar í sögu Bandaríkjanna“.
Repúblikanar hafa gagnrýnt rann-
sókn þingnefnda, sem hafa yfirheyrt
vitni fyrir luktum dyrum, og sagt að
meðferð málsins hafi verið ósann-
gjörn. Í ályktuninni eru næstu skref í
rannsókninni útlistuð. Leyniþjón-
ustunefnd deildarinnar á að yfirheyra
vitni fyrir opnum tjöldum næstu vik-
urnar og getur gert fyrri vitnisburði
opinbera. Nefndin sendir síðan niður-
stöður sínar til dómsmálanefndarinn-
ar sem heldur rannsókninni áfram og
getur lagt fram tillögu um ákæru til
embættismissis. Samþykki fulltrúa-
deildin ákæru á hendur forsetanum
fara réttarhöldin fram í öldungadeild-
inni.
Samþykkt að halda áfram
rannsókn á Donald Trump
Fyrsta atkvæðagreiðslan um málið í fulltrúadeildinni
AFP
Atkvæði greidd Forseti þingdeild-
arinnar mundar fundarhamar.