Morgunblaðið - 01.11.2019, Side 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
Vönduð
viðarleikföng
Bæjarlind 2, Kópavogur, sími 866 4493.
Opnunartími eftir samkomulagi
Regnboginn verslun Regnboginn_verslun
Falleg og vönduð viðarleikföng,
einnig leikföng úr opnum efnivið.
Sjáið úrvalið í netverslun okkar
www.regnboginnverslun.is
Ný sending
af fatnaði
Baráttan gegn lofts-
lagshamförum virðist
stundum ógnarflókið
viðfangsefni. Flest
markmiðin eru hins
vegar ofureinföld, þótt
leiðin að þeim kunni
að vera vandrötuð.
Þannig má t.d. slá því
föstu að í framtíð þar
sem tekist hefur að
byggja upp loftslags-
vænt samfélag verði aðeins notuð
endurnýjanleg orka. Nú liggur fyr-
ir að við náum ekki markmiðum
Parísarsamkomulagsins nema
halda 2/3 þekktra birgða af jarð-
efnaeldsneyti í heiminum áfram
neðanjarðar við lok þessarar aldar.
Jarðarbúar verða að hætta að
brenna jarðefnaeldsneyti.
Mótsagnakennd orkuskipti?
Þetta gæti reynst sumum erfitt,
sérstaklega þeim sterku aðilum
sem hafa fjárhagslega hagsmuni af
vinnslu og sölu jarðefnaeldsneytis.
Það þarf ekki að ganga svo langt
að benda á loftslagsafneitarann
sem heldur um stjórn-
artaumana í Banda-
ríkjunum og lítur á
bráðnun norðurskauts-
ins sem stórkostleg
tækifæri til vinnslu
auðlinda, heldur má
líta til Norðmanna.
Þar hafa stjórnvöld
lengi haft metnaðarfull
áform um orkuskipti í
samgöngum og að
ýmsu leyti verið til
fyrirmyndar í áætl-
unum sínum til að ná
loftslagsmarkmiðum. En á sama
tíma er Noregur einn stærsti fram-
leiðandi olíu og gass í heiminum –
og núna í byrjun október hóf
norska ríkisolíufélagið vinnslu á
nýju svæði í Norðursjó sem mun
auka framleiðslu Noregs um þriðj-
ung!
Fyrir Alþingi liggur frumvarp
mitt og sjö annarra þingmanna um
frystingu olíuleitar við Ísland um
fyrirsjáanlega framtíð – eða a.m.k.
þar til fullnaðarsigur hefur unnist í
loftslagsbaráttunni. Sumir myndu
segja að slík lagasetning væri
óþörf, þar sem engin áform væru
lengur um leit og vinnslu á Dreka-
svæðinu, en dæmin af olíufíklunum
í Bandaríkjunum og Noregi sýna
að ekkert er sjálfsagt í þessum efn-
um.
Orkustofnun á villigötum
Í gær birtist í Morgunblaðinu
enn eitt dæmi um mikilvægi þess
að löggjafinn sýni með skýrum
hætti að vinnsla jarðefnaeldsneytis
sé arfur fortíðar. Þar var rætt við
Guðna A. Jóhannesson orku-
málastjóra í tilefni umsagnar Orku-
stofnunar um frumvarpið. Guðna
þykir mikilvægt að umræðan verði
ekki of „einhliða“ og telur ýmis
álitamál uppi ef útiloka eigi olíuleit
á Drekasvæðinu. Þessi loftslags-
fjandsamlega afstaða innan úr
stjórnsýslunni kemur verulega á
óvart á sama tíma og ríkisstjórn Ís-
lands leggur áherslu á að sýna
meiri metnað í loftslagsmálum en
áður hefur sést.
Orkustofnun lítur svo á að
Parísarsamkomulagið geri engar
kröfur um að takmarka olíu- eða
gasvinnslu. Það segir sig hins veg-
ar sjálft að ef lagt er í gríðarlega
fjárfestingu við leit og vinnslu mun
allt verða gert til að koma olíunni á
markað. Framboð er þannig bein-
tengt eftirspurn – og rauði þráður-
inn í Parísarsamkomulaginu er að
breyta neyslu þannig að dragi úr
eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti.
Þá bendir Orkustofnun á að
besta leiðin til að draga úr út-
blæstri af völdum kolabruna sé að
brenna olíu og gasi á „yfirgangs-
tímabilinu í næstu framtíð“. Þessi
rök heyrast víða um lönd, borin
fram af olíufyrirtækjum, en halda
ekki vatni. Frekar en að skipta inn-
viðum fyrir kolabruna út fyrir olíu-
innviði þarf að taka stökkið allt í
einu – að hjálpa þeim ríkjum sem
stóla á kolabruna við orkufram-
leiðslu að færa sig beint yfir í
græna orku. Þarna hefði maður
vonað að orkumálastjóri sæi þau
gríðarlegu tækifæri sem skapast
fyrir Ísland sem þekkingarmiðstöð
í nýtingu vatnsorku og jarðvarma.
Samhliða því að ná loftslagsmark-
miðum gæti Ísland flutt út verð-
mæta þekkingu til að hjálpa öðrum
ríkjum.
Loftslagsvæn framtíð
umfram gróðasjónarmið
Ákvörðun um frystingu olíuleitar
við Ísland myndi senda skýr skila-
boð og gera íslenskum stjórnvöld-
um kleift að tala kröftuglega gegn
olíuleit á norðurskautssvæðinu. Það
heitir ekki „sýndarmennska“ eins
og Orkustofnun hefur áhyggjur af,
heldur heitir það að vera samkvæm
sjálfum sér. Sýndarmennska væri
að stæra sig af metnaðarfullum
loftslagsáherslum en auka sífellt
við framboð á mengandi jarð-
efnaeldsneyti í heiminum, eins og
Norðmenn gera því miður. Verði
frumvarp mitt að lögum getur Ís-
land talað gegn skammtíma gróða-
sjónarmiðum en með loftslags-
vænni framtíð í þágu þeirra sem á
eftir okkur koma.
Eftir Andrés Inga
Jónsson » Sýndarmennska
væri að stæra sig af
metnaðarfullum lofts-
lagsáherslum en auka
sífellt við framboð á
jarðefnaeldsneyti, eins
og Norðmenn gera því
miður.
Andrés Ingi Jónsson
Höfundur er þingmaður Vinstri
grænna.
Baráttan fyrir loftslaginu er ekki sýndarmennska
Fyrir atbeina Sjálf-
stæðisflokksins hefur
draugur vinstri-
stjórnar Jóhönnu Sig-
urðardóttur verið
endurvakinn. Í 300
síðna s.k. EES-
skýrslu á að stórauka
báknið og búa til ís-
lenska ESB-hirð í
tengslum við hirðina í
Brussel. Sjálfstæði
Íslands skal afnumið með nýrri
stjórnarskrá og fullveldinu breytt
í þýðingardeild á regluverki ESB
til birtingar í Stjórnartíðindum.
Engar tölur eru kynntar í skýrsl-
unni um kostnaðinn af þessari
glæfralegu aðför að stjórnarskrá
lýðveldisins en doðranturinn sjálf-
ur kostar 25 milljónir króna úr
vösum almennings. Sjálfstæð-
ismenn mættu muna fífil sinn
fegri og rækta heimanmundinn í
stað glórulauss leiðangurs að gera
Ísland að amti í ESB.
Skýrslan er skrifuð af kerf-
isfólki fyrir kerfisfólk. Lögfræð-
ingar fá greitt fyrir að skrifa
hilluvermara sem aðrir lögfræð-
ingar fá borgað fyrir að lesa.
Blanda af hallelúja-söng til þeirra
sem „hafa völdin á bak við tjöldin“
og sagnfræðilegri heimildaskrá Al-
þingis, allt skrifað á máli „sér-
fræðinga“ sem ein-
ungis aðrir
„sérfræðingar“ geta
skilið. Skýrsluhöf-
undar reisa „haltu
kjafti“-skjaldborg ut-
an um markmið ESB
á Íslandi og í þetta
sinn á að fullkomna
misheppnað verk rík-
isstjórnar Jóhönnu
Sigurðardóttur og
koma Íslandi inn í
ESB jafnvel með að-
ildarumsóknina ofan í
skúffu. Þetta er svo allt saman
kynnt sem niðurstaða opinberrar
úttektar á samstarfi Íslands við
ESB í gegnum EES-samninginn.
Fullkomin uppgjöf
Skýrslan er full af órökstuddum
fullyrðingum og grunnri sögulegri
yfirferð. Sífellt er hamrað á mik-
ilvægi einhliða stjórnar ESB á
málefnum landsmanna og nauðsyn
á nýrri ESB-stjórnarskrá fyrir Ís-
land. Til að koma þessum breyt-
ingum á þarf að stórauka manna-
ráðningar í ráðuneytum og breyta
allri stjórnsýslu til samræmis við
það sem er hjá aðildarríkjum
ESB. Það litla sem tekið er upp
um „tvíhliða“ stoðir EES-
samningsins er umsvifalaust skot-
ið í kaf með hótunum ESB um að
fresta framkvæmd einstakra við-
auka samningsins eða hluta hans
gagnvart Íslandi. EES-samninga-
nefndin verður dómstóll yfir Ís-
landi og ekki gert ráð fyrir neinu
öðru en að samninganefnd EES
leysi úr ágreiningsmálum.
Þessi fullkomna uppgjöf í mál-
efnum Íslands slær lögin sem eina
vopn smáþjóða í deilum við stór-
þjóðir úr höndum landsmanna. Í
stað þess að standa á grundvelli
íslensku stjórnarskrárinnar er
lagt til að komið verði á fót dýrri
hirð „sérfræðinga“ til að annast
rekstur smáríkisins fyrir hönd
ESB. Lýðræðiskerfi okkar með
kjörnum embættismönnum er gef-
ið langt nef og fullveldi þjóð-
arinnar lagt í rúst til þess að opna
Gullna hlið ESB fyrir kerfisfólk á
Íslandi.
Í fimmtán flækjupunktum er
stjórnarskrá Ísland lýst sem aðal-
hindrun í götu ESB til að stjórna
Íslandi. Lögleiða á stjórn-
arskrárbrot með sértökum kafla í
nýrri stjórnarskrá. Við yfirtöku
ESB á Íslandi verða EES-mál í
framtíðinni skilgreind sem „innan-
ríkismál“. Kosta á ný stöðuheiti
„tenglafulltrúa“ við Brussel til að
selflytja ákvarðanir framkvæmda-
stjórnar ESB til Íslands. „Sér-
fræðingar“ kerfisins fá meiri völd
en lýðræðislega kjörnir embætt-
ismenn og Alþingi fær hlutverk
sendisveinafyrirtækis. Og enn
einu sinni hefst hræðslusöngurinn
um að varðstaða um hagsmuni Ís-
lendinga muni gera þá að einangr-
uðu viðundri meðal þjóða heims
verði flækjufyrirmælum skýrslu-
höfunda hafnað.
Lýðræði í gíslingu
Kerfið étur og kerfið tekur.
Skýrslan er skólabókadæmi um
hvernig kerfisfólk gerir stjórn-
málin óaðgengileg og óskiljanleg
venjulegu fólki. Lýðræðinu og
stjórnmálaumræðunni er stolið af
landsmönnum og sett í poka
merktum „sérfræðingum“.
Skýrsluhöfundar hafa aðlagað sig
svo vel skriffinnskuveldi ESB að
ekki er hægt að veita þeim und-
anþágu til að finna almenna skyn-
semi lengur.
ESB-sinnar vilja umskrifa sögu
Íslands og byrja árið 0 með aðild-
arumsókninni að ESB rétt eins og
Íslandssagan og lýðveldisstofnunin
skipti engu máli. Boðskapur
skýrslunnar kemst fyrir á þremur
vélrituðum síðum og er ekkert
annað en endurvakinn draugur Jó-
hönnu-stjórnarinnar. Afglöp
óvandaðra stjórnmálamanna eru
stjórnarskránni að kenna, allur ár-
angur frumkvöðla og vinnandi
fólks er ESB og EES-samn-
ingnum að þakka. Að sögn
skýrsluhöfunda hefur EES-
samningurinn breytt Íslandi í
paradís á jörðu og Íslendingar því
heppnastir allra jarðarbúa og hafa
ekkert annað betra að gera en að
syngja lofsöngva um ESB.
Það er ótrúlegt að sjá hvernig
sá flokkur sem barðist hvað mest
fyrir stofnun íslenska lýðveldisins
hefur kúvent skútunni og prédikar
nú afnám stjórnarskrárinnar.
Börðust Íslendingar fyrir eigin
frelsi og sjálfstæði einungis til
þess að afhenda Evrópusamband-
inu yfirráðin yfir landinu 75 árum
síðar? Eiga Íslendingar að lenda
undir hæl hins nýja stórveldis
meginlandsins sem hunsar reglur
lýðræðis, er í fjárhagslegum
ógöngum og í óða önn að byggja
upp stórher í Evrópu? Á að fórna
landinu fyrir peninga- og valda-
gráðuga einstaklinga kerfisins
sem eru reiðubúnir að selja sálina
fyrir það eitt að fá að mola af
borði aðalsins í Brussel?
Til hvers var þá barist?
Afturganga vinstristjórnarinnar
Eftir Gústaf Adolf
Skúlason » Skýrsluhöfundar
hafa aðlagað sig svo
vel skriffinnskuveldi
ESB að ekki er hægt að
veita þeim undanþágu
til að finna almenna
skynsemi lengur.
Gústaf Adolf Skúlason
Höfundur er fv. ritari Evrópu-
samtaka smáfyrirtækjarekenda.