Morgunblaðið - 01.11.2019, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
Allt frá því að Don-
ald Trump vakti at-
hygli umheimsins á að
ekki væri allt með
felldu í Svíþjóð hafa
sænsk yfirvöld af alefli
reynt að halda í gömlu
ímyndina af Svíþjóð
sem eins konar útópíu.
Til þess hafa menn
bannað að vissar
skýrslur yrðu gefnar
út, mönnum í valdastöðum verið hót-
að og þeir dregnir fyrir dómstóla fyr-
ir að segja sína skoðun og ellilífeyris-
þegar, auk annarra, sektaðir í
hrönnum fyrir að tjá sig í at-
hugasemdadálkum fjölmiðlanna.
En þótt sannleikurinn sé oft seinn
úr munni … Eitt af því sem hefur
vakið athygli umheimsins er há tíðni
tilkynntra nauðgana í Svíþjóð. Bi-
lyana Martinovsky var rekin frá Há-
skólanum í Stokkhólmi fyrir að vilja
rannsaka hlutdeild farenda í þeim.
Einn Svíþjóðardemókratanna vann
sjálfur, 2017, skýrslu upp úr dómum
og í fyrra gerði sænska ríkissjón-
varpið hið sama. „Þessi þáttur hefði
aldrei átt að fara í loftið“, sagði af-
brotafræðingurinn umdeildi Jercy
Sarnecki í sjónvarpsviðtali, „þátt-
urinn byggist á gamalli samsær-
iskenningu hægrimanna
um að útlendingar komi
til Svíþjóðar og nauðgi
sænskum konum og
stjórnvöld – pólitískt
rétthugsandi elíta –
reyni að breiða yfir
þessa glæpi“.
Núna er þagnar-
múrinn hins vegar að
rofna. Margar greinar,
þar sem stjórnvöld eru
gagnrýnd harðlega hafa
birst í sænskum blöðum
undanfarið og hugveitan
Det Goda Samhället fékk með harð-
fylgi að gefa út skýrslu um „Innflytj-
endur og afbrot – þrettán ára yf-
irsýn“ sem unnin var upp úr gögnum
afbrotavarnaráðsins (BRÅ). Þar
kemur í ljós að minna en helmingur
þeirra 14-44 ára er ákærðir voru fyrir
nauðgun 2013-17 var innfæddir Svíar
(fæddir í landinu og foreldrar sænsk-
ir ríkisborgarar) og hvað morðin
varðar þá var hlutdeild innfæddra í
þeim aðeins 33%. Skv. denkorteav-
is.dk þá var morðtíðni í Svíþjóð 2013-
17 meira en tífalt hærri í Svíþjóð en
Danmörku.
Nú er enda svo komið að glæpa-
menn Svía eru farnir að færa sig til
Danmerkur og drepa þar hver annan,
auk þess að sprengja framhliðina af
húsi Tollstjóra. Svíþjóð virðist líka
vera orðin uppeldisstöð fyrir ISIS.
SÅPO varaði við því fyrr á árinu að
ISIS safnaði nýjum meðlimum í
kjallaramoskum Malmö og nýlega
var sænskur ISIS-liði, Hassan Ak-
gun, handtekinn á Filippseyjum.
Kristnir Sýrlendingar kvarta undan
hótunum á arabísku og um að kveikt
sé í kirkjum þeirra. Þeim finnst það
hart að hafa þurft að flýja ISIS og
verða svo líka fyrir ofsóknum í nýja
landinu. Á fésbókarsíðu þeirra hefur
mátt lesa að þeir þurfi að stofna eigin
varnarsveitir.
Svíar gætu vel þurft að stofna
varnarsveitir því eins og sagnfræð-
ingurinn Wilhelm Agrell sagði í
Svenska Dagbladet nýverið þá hafa
vopnaðir glæpahópar svipt yfirvöld
einkaréttinum til valdbeitingar og of-
beldið eykst stig af stigi. Árið 2018
var tilkynnt um 162 sprengingar og
306 skotárásir – 45 létust. Bruna-
varnarráðið skráði 429 skólaíkveikjur
2017 og bílabrunar Svíþjóðar eru al-
ræmdir. Í Gautaborg einni voru 250
bílar brenndir 2018. Nú eru 23 inn-
flytjendagettó á skrá. Einn af þekkt-
ustu sjónvarpsmönnum Svía, Janne
Josefsson, hélt því fram nýverið í
grein í Dagens Nyheter að
stjórnmálamennirnir hefðu skapað
„apartheit“ ríki. Nýlega gerði hann
þátt um Bergsjö, Gautaborg og sagði
að aðskilnaðurinn hefði þegar verið
fyrir hendi fyrir 25 árum. Í þættinum
birti hann áhrifamikið viðtal við fyrr-
verandi varðmann sem 20-30 manna
gengi réðst á þar og hálfdrap. Nú eru
engir varðmenn á Rymdtorget.
Sænskir fjölmiðlamenn virðast
orðnir óhræddari við að tjá sig. Það
er sem menn skynji að stjórn Sósíal-
demókrata og Græningja líði brátt
undir lok. Nýlega gerði ríkis-
sjónvarpið þátt um smábæinn
Filipsstad (6-7.000 íbúar). Þar er nú
80% atvinnuleysi hjá Nýju-Svíunum
og margir innfæddra farnir á brott.
Moderaterne hafa einnig verið virkir
í gagnrýninni undanfarið.
Fjórða hvert sveitarfélag safnaði
skuldum 2018 og atvinnuleysi eykst.
Árið 2018 var atvinnuleysi meðal inn-
fæddra 3,6% en 19,9% hjá farendum
og nú þegar spáð er minni hagvexti í
Svíþjóð er viðbúið að staðan versni.
Svíar eru alls ekki allir sáttir með
að þurfa að halda uppi stórum hópum
misjafnlega löghlýðinna innflytjenda
og þurfa jafnvel að sætta sig við
seinkun eftirlaunaaldurs. Margir
hafa það á tilfinningunni að lítt sé
hugsað um þeirra hag. Það olli t.d.
töluverðu fjaðrafoki þegar fréttist
2016 að keyptar hefðu verið þrjár
íbúðir í dýru hverfi í Stokkhólmi fyrir
sýrlenskan flóttamann sem kom í
fylgd þriggja eiginkvenna sinna og 16
barna – beint á framfæri ríkisins.
Svíar virðast ekki hafa gert neinar
kröfur til hinna Nýju-Svía og leyft
þeim að safnast fyrir í aðskiln-
aðargettóum og gera það sem þeim
sýndist. Til dæmis hafa þeir leyft
Hussein „okkar“ al-Daoudi að reka
barnaskóla í Örebro þar sem tónlist
er bönnuð og kynin aðskilin (sjaría-
lög). Í þakklætisskyni fyrir að fá að
halda menningu sinni og siðum og fá
framfærslufé þá hafa hinir Nýju-
Svíar langflestir kosið Sósíal-
demókratana.
Margt bendir sem sagt til að valda-
tíma Sossanna og Græningjanna,
tíma blekkinga, einræðis og áhuga-
leysis um velferð borgaranna fari að
ljúka. Hver tekur við af Löfven? Ulf
Kristerson?
Eftir Ingibjörgu
Gísladóttur
Ingibjörg Gísladóttir
» Sænsk stjórnvöld
hafa stjórnað inn-
fæddum með harðri
hendi en látið innflytj-
endur afskiptalausa.
Er kominn tími á
breytingar?
Höfundur starfar við umönnun
aldraðra.
Svíþjóð, hver hefði trúað
þessu, Svíþjóð?
FINNA.is
S
V
I
#
H
I
N
N
S
A
E
NNN
I
ÞÚ FINNUR GJAFIR
FRÁ HINUM SANNA
SVEINKA INNI Í OG
UTAN Á DAGATALINU
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
Ég slæddist inn á veðurfréttirnar fyrripart annarrar viku október og þar út-
skýrði veðurfræðingur veður komandi daga. Hún nefndi nú enga liti í veð-
urkortunum en svo sagði hún undir það síðasta að það myndi rigna slatta! Og
svo lauk hún veðurfréttunum á orðunum „úrkoman verður kollótt“. Undra-
fréttir um málfar komandi veðurs. Hvert verður málfarið í veðurfréttunum
þegar hann fer að snjóa? Sunnlendingur bíður spenntur eftir næstu fréttum.
Veðuráhugakona.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Málfar í veðurfréttum
Morgunblaðið/Hari
Málfar Rigning og regnhlífar í miðbænum.