Morgunblaðið - 01.11.2019, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
VINNINGASKRÁ
26. útdráttur 31. október 2019
38 12781 22051 30095 41534 51615 59615 69977
170 12848 22251 30883 41544 51829 59643 70195
268 12871 22255 31427 41638 52394 60230 70458
575 12998 22335 31623 42152 52463 60805 70986
592 13049 23250 31808 42161 52585 60933 71173
1199 13249 24001 32612 42345 52670 61013 71827
1655 13298 24029 32765 42789 53346 61959 71893
1919 13822 24062 32824 42852 53678 62025 72173
2072 13957 24135 33026 43039 54188 62303 72474
2311 14024 24749 33271 43164 54298 62342 72661
2814 15730 24906 33705 43297 54718 62977 73183
3040 15739 24911 35223 43717 55257 63071 73196
3837 15833 24919 35493 44297 55291 63203 73657
4057 16154 25087 35542 44444 55386 63923 73694
4463 16156 25368 35977 44809 55623 64363 73773
4469 16366 25942 36677 45291 55775 64399 73900
4864 16666 26175 36905 45318 56138 64519 74907
6218 16991 26815 37366 46236 56380 64635 75030
6496 17096 26818 37603 46308 56441 64702 75901
6505 17407 26951 37617 46669 56502 64859 76066
6661 17530 27055 37676 47100 56536 65285 76212
6723 17754 27120 37764 47730 56602 65455 76231
7020 17929 27125 38275 48284 56682 65832 76269
7625 18433 27327 38320 48895 56745 66498 76338
8062 18491 27513 38598 49670 57398 66583 77239
8450 18811 27529 39216 49784 57509 66981 77394
9128 18911 27580 39266 49885 57854 67142 77799
9667 19313 27992 39970 50068 58130 68247 77807
9752 19867 28584 40219 50605 58604 68350 78393
10545 19903 28730 40412 51069 58647 68457 78474
10694 20462 28785 40611 51075 58693 68481 79797
10729 20652 28807 40848 51159 58874 68537
10750 20733 29237 41189 51183 58903 69067
11382 20832 29541 41264 51198 58963 69173
11788 21467 29926 41304 51278 59020 69237
12110 21502 29932 41362 51384 59141 69502
12618 21620 29961 41482 51554 59415 69673
116 11160 19838 30449 37626 49044 59339 69787
358 11650 22538 31174 38121 49624 60224 69870
525 12373 23154 31242 38153 49866 60726 69933
2006 12920 23663 32294 38551 52563 61051 73113
3428 13479 24015 32527 40195 54476 61431 75691
7227 14421 24064 32540 40241 55680 64079 76318
7612 15172 24088 32598 40840 55701 64673 77533
7862 15497 24126 33278 41625 56724 65090 77573
8185 16040 24181 33629 41706 56884 65662 78037
8541 16512 25585 33766 43325 57057 66501
8695 16635 26131 35901 43649 57921 67087
8835 19632 28302 36313 47475 58506 67424
9922 19636 28756 37457 47609 58666 67957
Næstu útdrættir fara fram 7., 14., 21. & 28. nóv 2019
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
2323 21080 55306 76006 79276
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
6124 23662 43180 48248 58230 66953
17991 31845 43210 51893 61618 69905
20738 36797 45223 54226 65687 73023
23172 40887 47647 56065 66194 79430
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
4 5 4 4 1
Atvinna
Hér á landi hafa
eigendur kinda þau
fráleitu réttindi að
mega nýta annarra
manna lönd í óleyfi.
Árið 1929 og aftur
árið 1930 var gerð til-
raun á Alþingi til að
banna svokallaða
lausagöngu búfjár, en
mistókst í bæði skipt-
in. Sérhags-
munagæslan náði þá, og ætíð síð-
an, að koma í veg fyrir þá
sjálfsögðu skyldu bænda að bera
ábyrgð á skepnum sínum.
Alls staðar í Evrópu er lausa-
ganga búfjár bönnuð og í hinum
miklu sauðfjárræktarlöndum Ástr-
alíu, með 66 milljónir kindur, og
Nýja-Sjálandi, með 27 milljónir
kindur, er lausaganga búfjár
stranglega bönnuð. Frændur okk-
ar, Norðmenn og Danir, bönnuðu
lausagöngu búfjár árin 1860 og
1872!
Hér á landi veldur lausaganga
búfjár hundruðum slysa á vegum
landsins. Í vondum árum verða
banaslys. Þjóðin hefur vanist þess-
um vegafórnum en óheppnir er-
lendir ferðamenn ljúka ferðum sín-
um um landið sem forviða
fórnarlömb út í skurði, enda þekk-
ist hvergi að hraðbrautir og þjóð-
vegir séu beitarlönd búfjár. Þá eru
gestirnir, eins og heimafólkið, iðu-
lega í órétti því á þjóðvegum Ís-
lands eiga kindur réttinn.
Þá gengur sauðfé í öll lönd er
því sýnist og étur þar og eyði-
leggur allt sem að
kjafti þess kemur. Ef
fjáreigandi væri grip-
inn við að klippa niður
ung tré í heimalöndum
nágranna sinna væri
hann snarlega hand-
tekinn, yfirheyrður,
kærður og svo dæmd-
ur til sektar og
greiðslu bóta, enda
eignarréttur Íslend-
inga friðhelgur skv.
72. gr. stjórnarskrár
landsins. Að fjáreigandinn sé
ábyrgðarlaus af sömu skemmdar-
verkum skepnanna sinna er ófor-
svaranleg upptaka ríkisins á helg-
um eignarrétti landsmanna. Í raun
er það einstakt leyfi löggjafans til
fjáreigenda að mega beita aðra of-
beldi.
Hér á landi hefur sauðfé fækkað
um nær helming á 40 árum. Enn
er framleiðslan þó umfram inn-
lenda eftirspurn og er stór hluti
hennar seldur til útlanda fyrir
hrakverð. Þá er sauðfjárræktin
komin niður í brotabrot af þjóð-
arframleiðslunni og þarf bæði toll-
vernd og háa styrki frá skattgreið-
endum til að fá þrifist. Það kastar
þó tólfunum að hinar 475 þúsund
íslensku kindur verði að hafa allt
Ísland undir sig og lömbin sín.
Á Íslandi eru kindur ekki girtar
inni – heldur úti. Það er gert með
því að girða vegi inni, girða skóg-
rækt inni, girða ferðastaði inni,
girða garðyrkju inni, girða þjóð-
garða inni, girða nytjatún inni,
girða tómstundarlönd inni, girða
þéttbýli inni – þ.e. girða þarf allt
og alla inni, af því rollur valsa um
úti. Að réttara sé að fjárbændur
noti girðingar til þeirra verka sem
þeim er ætlað, þ.e. að girða skepn-
ur inni, er svo augljóst að þarf
talsmenn kindaeigenda til að sjá
það ekki.
Leyfi löggjafans til eigenda
kinda, að mega beita aðra ofbeldi
með kindunum sínum, er birting-
armynd þess hvað öflug sérhags-
munagæsla, sem nær að hnýta sig
saman sem pólitískt afl, getur náð
ótrúlegum og allt að því óskiljan-
legum árangri.
Það er löngu fengin niðurstaða
annarra þjóða að það séu sjálfsögð
mannréttindi að vera laus við of-
beldi af hálfu búfjáreigenda. Þess
vegna hafa þær gert eigendur
ábyrga fyrir skepnum sínum. Al-
þingi allra Íslendinga þarf að
girða sig í brók og færa hið ís-
lenska sauðahald út úr öld Napóle-
ons yfir til ársins 2019. Það þarf
að láta umhverfið, náttúruna, eign-
arréttinn, sanngirnina og skyn-
semina ráða og gera fjáreigendur
ábyrga fyrir rollunum sínum.
Það er afskaplega einfalt, svo
miklu meira en sjálfsagt og fyrir
lifandi löngu tímabært.
Leyfi til að slasa, skemma
og eyðileggja
Eftir Kristínu
Magnúsdóttur
Kristín Magnúsdóttir
» Það er löngu fengin
niðurstaða annarra
þjóða að það séu sjálf-
sögð mannréttindi að
vera laus við ofbeldi af
hálfu búfjáreigenda.
Höfundur er landeigandi
í Snæfellsbæ.
Göngum því alla
leið, þjóðinni til heilla,
heldur hann svo
áfram. Og ekki verður
um það deilt að efna-
hagssamstarfið við
ríki Evrópu hefur
reynst Íslandi vel.
Benedikt heldur svo
áfram: „Innan EES
njóta Íslendingar
hvorki aðildar að
tollabandalagi og myntsamstarfi,
né þátttöku í landbúnaðar-,
byggða- og sjávarútvegsmálum.
Með fullri Evrópuaðild myndi
landið eflast á þessum sviðum og
frelsi aukast.“ Þessar trúarsetn-
ingar Benedikts rökstyður hann
ekki frekar fremur en vant er.
Enda fremur erfið rökfræði fólgin
í að tengja trúariðkun við efna-
hagsmál svo vel fari.
Full Evrópuaðild og
tollabandalag ESB?
Full Evrópuaðild, hvað er það
nú? Er Sviss þá ekki Evrópuland
og Evrópa álfa? Benedikt hefur
fallið í gryfju þeirra sem nota
tungumálið í því skyni að um-
breyta heiminum. Það er ekki góð-
ur félagsskapur. Evrópusambands-
aðild heitir það og hvar segir að
Ísland sé aukaaðili að Evrópusam-
bandinu? Er það ekki bara ályktun
Benedikts?
Já, Íslendingar eru ekki aðilar
að tollabandalagi ESB. En hvers
saknar Ísland í tollabandalagi
ESB? Af hverju rekur Benedikt
það ekki, a.m.k. í fáum orðum?
Hvað yrði t.d. um fríversl-
unarsamninga Íslands við lönd ut-
an ESB? Af hverju vill Benedikt
ekki gera örlitla grein
fyrir því?
Með þátttöku í
sjávarútvegsmálum
myndi landið eflast,
segir Benedikt!
Það yrði áreið-
anlega erfitt að finna
einhvern sem býr við
sjávarútvegsstefnu
ESB til að taka undir
þetta. Sjávarútvegs-
og landbúnaðarstefna
sambandsins er meðal
þess sem mest er gagnrýnt innan
ESB-landanna. Stefnan er mest
kennd við sóun og spillingu. Það
væri fengur að skýringum og leið-
réttingum Benedikts á þessum
ríkjandi misskilningi í Evrópu. En
hann er hljóður sem jafnan áður
þegar að rökstuðningi kemur. – Og
það skal aldrei, aldrei verða að
fiskveiðar Íslendinga heyri undir
ESB.
Myntsamstarfið
hans Benedikts (evran)
Evran er, svo talað sé án tæpi-
tungu, í djúpum skít. Christine
Lagarde þurfti að nota AGS til að
redda Seðlabanka Evrópu, þvert á
reglur AGS. Seðlabankar evrunnar
taka einungis við innistæðum í
myntinni gegn neikvæðum vöxtum.
Vextir eru svo lágir að áhrifin á
fjárfestingar og eignaverð skapa
mikinn vanda.
Var ekki Benedikt umsækjandi
um stöðu seðlabankastjóra? Hvað
finnst honum um hlutdeild Þýska-
lands í viðskiptajöfnuði ESB?
Eignast Þýskaland þá ekki kröfur
á önnur ESB-lönd eða eignir þar
fyrir vikið? Hvað segir hann um
tengslin milli mjög lágra vaxta og
eignaverðs? Eða hættu á
eignaverðsbólum? Hlutabréfaverðs
og vaxta?
Eru það ekki stórfyrirtækin sem
græða og sparifjáreigendur sem
tapa við þessar aðstæður? Og nú
spá fjármagnsmarkaðir neikvæð-
um vöxtum til framtíðar. Þekkir
hann ekki stöðnun Japans og or-
sakir hennar? Af hverju neita Sví-
ar og Pólverjar að taka upp evru?
Líklega vantar þau lönd nýjan
kandídat í seðlabankastjórann.
Hvernig hentar evran Íslandi sem
útflytjanda á áli og fiski og selj-
anda raforku?
Borðið þar sem
ákvarðanirnar eru teknar
Kýpverjar sitja við borðið. Tyrk-
ir bora eftir gasi við Kýpur og
brjóta gegn ESB-meðlimi. Tyrkir
hlusta ekki á ESB frekar aðrar
máttlausar stofnanir. Varnarleysi
ESB og forysturíkis þess, Þýska-
lands, er mikið áhyggjuefni, líka
fyrir okkur.
Benedikt ætlar að sitja við borð-
ið þar sem ákvarðanirnar eru
teknar með Frökkum og Þjóð-
verjum. Miklir menn erum vér
Hrólfur minn. Ég hef spurt marga
um reynsluna af að búa undir
stjórn ESB. Letti sem ég þekki
sagði þetta henta Lettum vel. Þeir
væru svo vanir að láta að stjórn
annarra þjóða. Fyrir Ísland væri
það hreint óráð að fela Þýskalandi
okkar ráð.
Eftir Einar S.
Hálfdánarson
» Full Evrópuaðild
væri heillaspor segir
Benedikt Jóhannesson,
stærðfræðingur og
stofnandi Viðreisnar.
Einar S. Hálfdánarson
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Evrópusambandsaðild
væri óheillaspor