Morgunblaðið - 01.11.2019, Page 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
✝ GuðmundaSigurðardóttir
hjúkrunarfræð-
ingur fæddist á
Ísafirði 12. janúar
1932. Hún lést á
Landspítalanum
25. október 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Aðalheiður
Dýrfjörð verka-
kona, f. 30. mars
1895 á Ísafirði, d.
8. júní 1983, og Sigurður
Bjarnason verkamaður, f. 26.
febrúar 1893 á Björgum í Vind-
hælishreppi, d. 13. maí 1971.
Þau eignuðust tíu börn og kom-
ust sjö þeirra á legg, systur, og
var Guðmunda sú sjötta í röð-
inni. Stella Jórunn, f. 5.3. 1918,
d. 20.3. 1975, Guðríður, f. 6.7.
1921, d. 18.10.1996, Mikkelína,
f. 1.12. 1924, d. 12.10. 1996,
Kristín Jóna, f. 23.10. 1929,
Ólöf, f. 23.10. 1929, og Að-
Hrafnagili í Eyjafirði, d. 9. júlí
1965.
Jón Viðar og Guðmunda
eignuðust fjóra syni, þeir eru:
1) Tryggvi, f. 11. nóvember
1954, maki Ingveldur Braga-
dóttir. Dætur þeirra eru Elín
Björk, Signý og Hanna Sigríð-
ur. 2) Sigurður Helgi, f. 8. des-
ember 1955, maki Liv Kari Ty-
vand. Synir þeirra eru Gisle
Ivar, Jon Vidar og Pål Runar.
3) Jón Viðar, f. 20. apríl 1969,
maki Þorbjörg Hróarsdóttir.
Dætur þeirra eru Herborg og
Vigdís. 4) Hreinn, f. 11. febrúar
1973, maki Aðalheiður Þor-
steinsdóttir. Dætur þeirra eru
Hrefna, Auður og Þórey.
Barnabarnabörnin eru átta.
Guðmunda ólst upp á Ísa-
firði. Hún flutti til Reykjavíkur
til að stunda nám við Hjúkr-
unarskóla Íslands og lauk það-
an prófi árið 1955. Hún starfaði
lengst af við hjúkrun á Hrafn-
istu í Reykjavík og á hjúkrun-
arheimilinu Sunnuhlíð í Kópa-
vogi. Hún var auk þess virk í
Alþýðuflokksfélagi Kópavogs.
Útför Guðmundu fer fram
frá Kópavogskirkju í dag, 1.
nóvember 2019, klukkan 11.
alheiður Dýrfjörð,
f. 13.8. 1935. Einn-
ig ólu þau Aðal-
heiður og Sigurður
upp bróðurson
hennar, Hólm Dýr-
fjörð, og tvo dótt-
ursyni sína, Sig-
urjón Ámundason
og Guðmund
Antonsson.
Guðmunda gift-
ist Jóni Viðari
Tryggvasyni þann 26. desem-
ber 1954. Þau hófu búskap í
Reykjavík en fluttust í Kópavog
árið 1973 og bjuggu þar alla tíð
síðan. Jón Viðar lést 1. júlí
2015. Foreldrar hans voru Hall-
gríma Árnadóttir húsfreyja, f.
27. júlí 1898 í Traðarholti,
Stokkseyrarhreppi, Árnessýslu,
d. 4. desember 1977, og
Tryggvi Jónsson, búfræðingur
og afgreiðslumaður á Ak-
ureyri, f. 18. febrúar 1899 á
Elsku amma Didda.
Það er sárt að nú sé komið að
kveðjustund. Tilfinningarnar
hrannast upp, bæði yfirþyrm-
andi sorg og einnig þakklæti
fyrir að hafa átt þig að. Þú varst
okkur einstaklega mikilvæg og
við munum aldrei gleyma þinni
einstöku nærveru sem ein-
kenndist af gleði og hlýju sem
fékk alla til að líða vel í kringum
þig.
Það var alltaf svo ánægjulegt
að koma í heimsókn til ykkar afa
og sjá þitt breiða bros og fá
hlýtt faðmlag.
Það er mikil huggun í öllum
yndislegu minningunum. Fyrsta
sem kemur upp í hugann eru all-
ar dásamlegu stundirnar í sum-
arbústaðnum og Starhólmanum.
Það var ávallt mikið líf og fjör í
kringum þig amma, við sjáum
þig fyrir okkur syngjandi og
dansandi í eldhúsinu í Starhólm-
anum og síðar með barnabörnin
á Kópavogsbrautinni. Eldhúsið
angaði oft af pönnukökulykt af
heimsins bestu pönnukökum.
Okkur leið alltaf vel hjá ykkur
afa og það var ýmislegt brallað.
Sem litlum stúlkum þótti okkur
mikið sport að fá að skoða skart-
gripina þína, máta hælaskóna og
fínu samkvæmiskjólana og
spóka okkur um húsið. Maður
fann hvað þér þótti gott að hafa
fjölskylduna hjá þér og það var
hefð að koma til ykkar afa í
kvöldkaffi á aðfangadag og í
seinni tíð hangikjöt á jóladag.
Þú varst mjög umhyggjusöm og
varst ávallt til staðar fyrir okk-
ur. Komst á allar sýningar hjá
okkur systrum færandi hendi
með rauða rós í lok sýningar
sem okkur þótti mjög tilkomu-
mikið.
Það er ein minning sem við
hlæjum ávallt mikið að, en það
er þegar við systurnar tókum
okkur langan göngutúr yfir í
Starhólmann úr Kringlunni. Í
Fossvoginum fundum við ný-
fæddan yfirgefinn kettling sem
við tókum með okkur til þín. Þú
varðst mjög hissa á þessum
óvænta gesti sem lyktaði heldur
illa. En þú varst ekki lengi að
græja bað fyrir hann og taka
hann að þér fyrstu nóttina.
Síðustu ár varstu dugleg að
ferðast og okkur Signýju og El-
ínu þykir ótrúlega dýrmætt að
þú skyldir koma í heimsókn til
okkar í Svíþjóð. Þú varst mjög
barngóð og barnabörnin nutu
sín hjá þér. Alla tíð og þrátt fyr-
ir veikindin dansaðirðu um stof-
una með litlu stelpurnar, lékst á
gólfinu og hljópst á ganginum.
Pönnukökurnar þínar voru alltaf
eftirsóttar í barnafmæli og nú
kemur í ljós hvort við systurnar
höfum tekið nógu vel eftir á
pönnukökunámskeiðinu hjá þér
því þínar pönnukökur voru þær
bestu.
Hvíldu í friði, elsku amma.
Minning þín mun ávallt lifa í
hjörtum okkar.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Þínar
Elín, Signý og
Hanna Sigríður.
Elsku besta Didda amma
okkar sem hefur verið svo stór
hluti af lífi okkar hefur nú kvatt
þennan heim. Amma var ynd-
isleg kona, umhyggjusöm, hlý og
góð og naut þess að vera til.
Hún var hress og snör í snún-
ingum og var alltaf boðin og bú-
in að hjálpa okkur við það sem
þurfti, hvort sem það var sam-
vera, skutl, kattarpössun,
pönnukökubakstur eða annað.
Hún studdi okkur líka alltaf og
fylgdist með okkur í tómstund-
um okkar fram á síðasta dag og
kom á viðburði og sýningar sem
við tókum þátt í.
Þegar við vorum yngri og
vorum hjá ömmu og afa var það
fastur liður að fara með þeim út
að gefa öndunum brauð við
Kópavogslækinn. Amma talaði
þá við fuglana og við með henni
og ef við komum illa klæddar til
ömmu átti hún nóg af slæðum og
treflum til að dúða okkur með.
Amma söng líka fyrir okkur alls
kyns lög og bjó sum þeirra til.
Við vorum frekar hissa á leik-
skólavinum okkar sem kunnu
ekki „Sussubía“, lagið hennar
ömmu, sem við kunnum svo vel.
Amma var kraftmikil og dug-
leg að hreyfa sig, gekk um allt
og fór alltaf stigana í stað þess
að taka lyftuna, enda fannst
okkur hún aldrei verða gömul.
Hún var líka dugleg að laga til í
kringum sig, bæði inni hjá sér
þar sem alltaf var fínt og líka úti
þar sem hún bæði passaði upp á
umhverfið löngu áður en það
komst í tísku með því að taka
upp rusl og flöskur sem fólk
hafði skilið eftir á götunni.
Það var alltaf gaman að sitja í
eldhúsinu hjá ömmu og tala við
hana. Hún sagði þá oft sögur frá
því í gamla daga, bæði þegar
hún bjó heima á Ísafirði, eins og
hún sagði alltaf, og líka þegar
pabbi okkar og bræður hans
voru litlir. Amma hafði mikinn
áhuga á fólki og hafði kynnst
mörgum um ævina. Hún mundi
ótrúlegustu hluti og gat þulið
upp ættir allra þeirra sem hún
talaði um og aldrei brást minnið
henni. Við hlustuðum alltaf en
getum samt ekki haft neitt af
þessu eftir.
Amma hafði gaman af því að
ferðast og hefur sagt okkur frá
mörgum ferðum þeirra afa sam-
an á ýmsa staði í heiminum. Við
vorum svo heppnar að fá hana
með okkur í tvær ferðir á síð-
ustu árum, nú síðast í sumar.
Amma naut þess bæði að sitja í
sól og skoða nýja staði og við
hefðum svo gjarnan viljað eiga
möguleika á fleiri ferðum með
henni. Við vitum hins vegar að
amma saknaði afa mikið og nú
er hún komin til hans.
Takk fyrir allt elsku amma
okkar, hvíldu í friði.
Hrefna, Auður og Þórey.
Nú við fráfall Diddu frænku,
sem alltaf var kölluð svo og var
móðursystir Hlífar, þá viljum við
hjónin lýsa yfir miklum söknuði
og þakklæti fyrir öll liðin ár.
Við höfum þekkt Diddu alla
ævi, eða að minnsta kosti annað
okkar, en hitt frá tvítugu.
Hún var einstaklega góð og
róleg persóna, sem með návist
sinni veitti öllum gleði. Hún var
frábær matmóðir, það var alltaf
veisluborð er komið var til henn-
ar og alltaf vildi hún að maður
fengi sér meira, þó að allir væru
að springa.
Þau hjón voru persónulegir
vinir og alltaf í einstöku uppá-
haldi hjá foreldrum Hlífar.
Á fyrstu búskaparárum okkar
í Reykjavík var gott að leita til
þeirra, því að alltaf voru þau
reiðubúin til aðstoðar og minn-
umst við þess m.a. að Jón flísa-
lagði frítt baðherbergið í Álfta-
mýrinni og hún passaði Jóhannes
þriggja mánaða gamlan í nokkra
daga er við skruppum norður,
sem varð eftirminnilegt því að við
urðum þar hríðarföst.
Jón er látinn fyrir nokkrum
árum, blessuð sé minning hans.
Hlíf passaði syni þeirra,
Tryggva og Sigga er þeir voru
börn í nokkur sumur, en síðar
kom Hreinn til sumardvalar hjá
okkur fyrir norðan um tíma.
Þegar Hlíf var barn var hún
vatnshrædd en þau hjónin
ákváðu að kosta hana á sund-
námskeið í Austurbæjarskólan-
um og var það vel gert, því að
síðan hefur hún notið þess að
synda, þó að minna hafi orðið úr
því eftir að við fluttumst norður.
Jón var við bókband í tóm-
stundum og var geysilega vand-
virkur í því sem og öðrum störf-
um. Hann batt inn fjölda bóka
fyrir Hlíf og er handbragðið ein-
stakt, með skrautgylltum kili.
Við teljum sérstakt að hafa
fengið að kynnast þeim hjónum í
lífinu og alltaf komu þau á allar
stórhátíðarstundir í lífi okkar.
Elsku Didda mín, við viljum
þakka þér og ykkur báðum enn
og aftur, fyrir ómetanlega vin-
áttu alla tíð.
Kalt er haustið: hússins sólarljómi
horfinn er að Alvalds dómi,
litum bregður loft og jörð og sær.
Móðir, systir, kona, kvennasómi!
Kalt er lífið, horfinn allur blómi,
drúpur sveit, en hnípir höfðingsbær.
Hjartans þakkir, hjartans vinan kæra!
Hjartað ríka, stóra, hvílstu nú.
Glóðheit tár þér grátnir vinir færa:
Guð þér launi dygð og trú!
(Matthías Jochumsson)
Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur til barna og aðstand-
enda.
Hlíf og Agnar.
Það er ótrúlegt að elsku
Didda sé dáin. Ég var viss um
að hún yrði hundrað ára, en lífið
er hverfult. Það segir okkur að
njóta hvers einasta dags eins og
hún Didda gerði. Það var alltaf
gaman að koma í heimsókn til
Diddu og Jóns. Didda var alltaf
hress og tók á móti manni með
bros á vör. Didda gerði oft góð-
látlegt grín að mönnum og mál-
efnum. Hún bakaði bestu pönnu-
kökur sem ég hef smakkað. Ég
var svo heppin að hún hringdi í
mig á þessu ári áður en hún
veiktist og bauð mér í pönnu-
kökukennslu, sem ég þáði með
þökkum. Þetta var frábær
kennsla og síðan hef ég verið að
æfa mig að ná þunnu fínu
pönnukökunum hennar Diddu.
Didda var oft í huga mér sem
„guðmóðir“, hún hélt vel utan
um alla fjölskyldu sína og okkur
ská frændfólkið, eins og hún
sagði stundum. Öllum þótti vænt
um hana og nutu félagsskapar
hennar. Elsku Didda, þín verður
sárt saknað en minning þín mun
ávallt lifa í hjörtum okkar. Takk
fyrir allt, elsku Didda mín.
Hróðný.
Didda var fyrirmynd í öllu
sem hún gerði á lífsleið sinni. Ég
mun aldrei gleyma hennar fal-
lega brosi, stóra hjarta og ynd-
islegum tímum og samræðum
sem við áttum saman síðastliðna
áratugi. Það var alltaf gaman og
yndislegt að heimsækja Diddu
og vera í návist hennar. Ég var
heppinn að fyrstu tvö háskóla-
árin mín bjó ég hjá Diddu og
Jóni i Kópavoginum. Didda tók
mér með opnum örmum og
hugsaði um mig eins og ég væri
„fimmti“ sonurinn hennar. Ég
mun seint gleyma pönnukökun-
um, súkkulaðinu og kökunum
sem alltaf virtist vera nóg af.
Skemmtilegum samræðum sem
við áttum snemma morguns og
aftur seinna um kvöldið þegar
ég kom tilbaka frá háskólanum.
Það var ómögulegt að vera í
slæmu skapi eða kvartandi í
kringum Diddu því hún var allt-
af fljót að leiða huga manns að
jákvæðum hlutum og hugsunum.
Heimurinn væri sannarlega mun
betri og skemmtilegri ef það
væru fleiri Diddur í honum.
Jón Tryggvi.
Elsku Didda mín, það er erf-
itt að sætta sig við að þú sért
dáin og við getum ekki hringt í
hvor aðra eins og við gerðum.
Símtalið var aldrei minna en
klukkustund. Við höfðum alltaf
um nóg að tala, sérstaklega ætt-
fræði sem Didda var mjög fróð
um. Ég hefði ekki getað beðið
um betri svilkonu. Ég minnist
margra atburða sem við upp-
lifðum saman. Til dæmis þegar
við fórum í nokkurra daga ferð
með múrurum og ókum yfir
óbrúaða Tungná. Rútan bilaði í
miðri á og um leið hallaðist hún
á hliðina. Við urðum að dúsa í
bílnum í margar klukkustundir
þangað til varahlutir komu frá
Reykjavík. Mér er minnisstætt
þegar ein úr hópnum tók upp
hekludót og byrjaði að hekla.
Við Didda horfðum á hana og öf-
unduðum hana að hafa eitthvað
fyrir stafni á meðan við biðum.
Didda mín, ekki má ég gleyma
þegar þú ætlaði að kenna mér á
gönguskíði og við vorum komnar
í brekku nálægt húsinu þínu í
Starhólmanum. Þá guggnaði ég,
mér fannst ég vera að renna
mér niður Holmenkollen. Það
eru svo margar minningar að ég
veit varla hvar mig á að bera
niður og allar heimsóknirnar til
ykkar hjóna. Við skemmtum
okkur konunglega í brúðkaupi
Höllu dóttur mágkonu okkar og
Ragnheiðar fyrir tveimur árum
og þar dönsuðum við og vorum
með síðustu gestum úr veislunni.
Didda mín, mikið er ég þakklát
að við náðum að fara í heimsókn
til Höllu og Ragnheiðar og með
blóm á leiði mágkonu okkar sem
dó á þessu ári og í kaffi í Gerð-
arsafni. Þetta gerðum við allt
eftir að þú hafðir fengið að vita
um veikindi þín. Þú varst hetja í
þessu öllu eins og þú hefur
ávallt verið, Didda mín. Elsku
Didda mín, hafðu þökk fyrir allt.
Mínar innilegustu samúðar-
kveðjur til allra sona þinna,
tengdadætra, barnabarna og
langömmubarna.
Kristrún (Kidda).
Þegar einhver fellur frá
fyllist hjartað tómi
en margur síðan mikið á
í minninganna hljómi.
Á meðan hjörtun mild og góð
minning örmum vefur
þá fær að hljóma lífsins ljóð
og lag sem tilgang hefur.
Ef minning geymir ást og yl
hún yfir sorgum gnæfir
því alltaf verða tónar til
sem tíminn ekki svæfir.
(Kristján Hreinsson)
Guðmunda hefur nú hlýtt
kallinu og tekið stefnuna inn í
sólskinið hinum megin.
Ég þakka öll árin okkar í
Sunnuhlíð, samfylgdina og hlý-
leikann og óska henni farar-
heilla.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem)
Sigríður Bernadetta
Lorange.
Þegar lát Guðmundu Sigurð-
ardóttur barst mér var sem
myndaruna rynni um huga mér
með minningum um þessa fal-
legu hlýju konu og mann henn-
ar, Jón Viðar. Við Guðmunda ól-
umst báðar upp á Ísafirði en
hún var eldri og gekk í skóla
með eldri systrum mínum fyrir
vestan. Hin góðu kynni okkar
Guðmundu hófust því ekki fyrr
en ég fór að starfa í Alþýðu-
flokknum og ekki síst eftir að ég
var kosin í bæjarstjórn Kópa-
vogs og fór að starfa af krafti
með því frábæra fólki sem tók
þátt í starfi Alþýðuflokksins í
bænum. Guðmunda og Jón Við-
ar, sem lést fyrir nokkrum ár-
um, voru jafnaðarmenn af lífi og
sál. Og þau vildu leggja af mörk-
um. Þau voru allan minn póli-
tíska feril virk í sveit jafnaðar-
manna fyrst í Alþýðuflokknum
og seinna Samfylkingunni. Fyrir
utan að mæta á fundi, fylgjast
vel með og sýna stuðning voru
þau einstaklega óeigingjörn og
hlý í öllu sem þau gerðu. Aldrei
man ég eftir Guðmundu öðruvísi
en með sitt bjarta bros og al-
úðlegu framkomu. Þau hjón
tóku heilu blaðabunkana til að
bera út í bænum auk kosninga-
bæklinganna fyrir kosningar og
við vorum mjög framtakssöm í
útgáfumálunum. Guðmunda tók
alltaf þátt þegar kaffiveitingar
voru á boðstólum og bar heima-
gerðar kræsingar á borð við öll
þau tækifæri. Ekkert taldi hún
eftir sér og maður fór aldrei
bónleiður til búðar þar sem Guð-
munda var.
Stjórnmálahreyfingar fá mis-
mikið fylgi eins og gengur og
það sem blasir við eru fram-
varðasveitirnar og verk þeirra.
Minna er spáð í fólkið sem vinn-
ur að baki og alla þá sem leggja
mikla vinnu og alúð í að flokkar
virki inn á við og það sé aðlað-
andi fyrir fólk að mæta til þeirra
þegar boðið er til funda og há-
tíða. Þegar ég lít yfir pólitíska
þátttöku mína í forystusveit
jafnaðarmana er einstaklega
ljúft að hugsa til þeirra sem
voru virk í bakvarðasveitinni og
sóttu að sama marki og dreymdi
um árangur. Stóra hópsins sem
lætur mann langa til að gera
þetta vel og vera þeirra verðug
svo hugsjón jafnaðarmanna nái
fram að ganga. Þeim fækkar ört
sem skipuðu bakvarðasveitirnar
af krafti gegnum þessi 40 ár en
þarna var Guðmunda og þarna
var Jón Viðar.
Ég kveð Guðmundu Sigurð-
ardóttur með þökk í hjarta fyrir
góð kynni og áralanga vináttu
um leið og ég votta börnum
hennar og fjölskyldu innilega
samúð. Ég veit að ég mæli fyrir
hönd félaga hennar í flokknum
með þessum kveðjuorðum. Mæt
jafnaðarkona hefur kvatt.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Guðmunda
Sigurðardóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUNNAR KARLSSON
sagnfræðingur og prófessor emeritus
lést á hjartadeild Landspítalans
28. október. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni mánudaginn 4. nóvember klukkan 12.
Silja Aðalsteinsdóttir
Sif Gunnarsdóttir Ómar Sigurbergsson
Sigþrúður Gunnarsdóttir Jón Yngvi Jóhannsson
Elísabet Gunnarsdóttir Sighvatur Arnmundsson
Áróra, Valgerður, Silja, Steinunn, Arnmundur,
Aðalsteinn, Ragnar Þorlákur
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ERLINGUR LOFTSSON
bóndi,
Sandlæk, Gnúpverjahreppi,
lést á LSH í Fossvogi 26. október.
Útför fer fram frá Skálholtskirkju laugardaginn 9. nóvember
klukkan 13.
Elín Erlingsdóttir Bjarni Jón Matthíasson
Valgerður Erlingsdóttir Brian R. Haroldsson
Loftur Erlingsson Helga Kolbeinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn