Morgunblaðið - 01.11.2019, Síða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
Raðauglýsingar
Tilboð/útboð
Skipulagsauglýsing fyrir Sveitarfélagið Ölfus
Lýsing fyrir skíðasvæði
í Bláfjöllum
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss hefur samþykkt
að auglýsa tillögu að skipulags- og matslýsingu fyrir
aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulag í samræmi við
1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Á 107. fundi Skipulags-, bygginga- og umhverfis-
nefndar Ölfuss þann 24.9.2019 sl. og á 271. fundi
Bæjarstjórnar Ölfuss þann 26.9.2019 var auglýsing-
arferli samþykkt.
Lýsingin er vegna stækkunar á skíðasvæðis Bláfjalla
til austurs þar sem brekkur, göngubraut og ný
diskalyfta verður í landi Ölfuss. Skipulagssvæðið er
um 100 ha og er suðaustan núverandi skíðasvæðis og
í austurhlíðum Bláfjalla og niður í hluta Kerlingardals.
Fyrirhuguð uppbygging innan sveitarfélagsins Ölfuss
er ekki í samræmi við aðalskipulag Sveitarfélagsins
Ölfuss 2010-2022 þar sem svæðið er skilgreint sem
óbyggð svæði auk þess að vera fjarsvæði vatns-
verndar og undir hverfisvernd. Lýsingin er unnin af
Landslagi, dagsett september 2019.
Skipulagslýsing þessi verður til sýnis á bæjarskrif-
stofum Sveitarfélagsins Ölfuss að Hafnarbergi 1, 815
Þorlákshöfn frá og með 1. nóvember til 2. desember
2019. Uppdrættir eru einnig aðgengilegir á heimasíðu
Ölfuss, www.olfus.is, undir skipulag í kynningu.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með
gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til
2. desember 2019. Skila skal athugasemdum á bæjar-
skrifstofur Ölfuss að Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn
eða á skipulag@olfus.is, merkt „Bláfjöll“.
Skipulags- og byggingarfulltrúi.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss og allir velkom-
nir. Hreyfisalurinn opinn kl. 9.30-11.30, líkamsræktartæki, teygjur og
lóð. Zumba Gold 60+ kl. 10.30. Frábær hreyfing í skemmtilegum hóp.
BINGÓ kl. 13.30, spjaldið kostar 250 krónur, veglegir vinningar. Kaffi
kl. 14.30-15.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Leik-
fimi með Hönnu kl. 9-9.45. Göngubretti, æfingarhjól m/leiðb. kl. 13.
Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17.
Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-
15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S: 535 2700.
Boðinn Vöflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 15.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl.
8.30-10.30. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Hádegismatur alla virka daga kl.
11.30-12.20. Bridge í handavinnustofu 13. Haustferð Hvassaleitis, lagt
af stað kl. 10 (Þátttaka er háð skráningu).
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Thai Chi kl. 9. Hæðarvellir kl. 10 ef veður leyfir. Boccia
kl. 10.15-11.20. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistarnámskeið kl. 12.30-
15.30. Hæðargarsbíó kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Púslið er í
borðstofunni. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma
411 2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunleikfimi kl. 9.45. Boccia kl. 10.
Föstudagshópurinn hittist kl. 10. Tálgað í tré kl. 13. Frjáls spilamenn-
ska kl. 13-16.30. Handaband kl. 13. Bingó kl. 13.30. Hádegismatur frá
kl. 11.30-12.30 og vöfflukaffi kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni fyrir
hádegi. Nánari upplýsingar í síma 411 9450. Verið öll hjartanlega vel-
komin á Vitatorg.
Garðabæ Dansleikfimi Sjál. kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10.
Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Smiðjan Kirkjuhv. opin kl. 14–17.
Allir velkomnir.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Prjóna-
kaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um
hverfið kl. 10.30. Leikfimi Maríu 10.30-11.15. Bókband m/leiðb. kl. 13-
16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 Boccia-æfing, kl. 9.30 postulíns-
málun, kl. 12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist FEBK.
Gullsmára Handavinna kl. 9, leikfimi kl. 10, ljósmyndaklúbbur og
Bingó kl. 13.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og
nýliðar velkomnir. Boccia kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl.
13.15. Kaffi kl. 14.30. Ístex kynnir glænýja ullarsæng sem er nýkomin
á markað. Boðið verður upp á að kaupa sængurnar á staðnum.
Kynningin er kl. 12.15.
Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl 8-12. Línudans kl. 10.30.
Bridge kl. 13.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga með Ingibjörgu kl. 9 í Borgum.
Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9 og gönguhópar ganga frá
Borgum kl. 10 og á sama tíma í Egilshöll. Korpúlfabridge kl. 12.30 í
Borgum og hannyrðahópur kl. 12.30. Fjölbreytt handavinna, góð sam-
vera og léttar hreyfiæfingar. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í
dag og hið vinsæla föstudagsvöfflukaffi kl. 14.30-15.30 í Borgum.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í sal-
num á Skólabraut kl. 11. Í tilefni af menningarhátíð Seltjarnarness
verður opið hús í samsöng í salnum á Skólabraut kl. 13. Hvetjum fólk
á öllum aldri til að kíkja við. Eftir sönginn verður boðið upp á kaffi og
kleinur. Spilað í króknum kl. 13.30 og bridge í Eiðismýri 30, kl. 13.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða
bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Íslendingasögur / fornsagnanám-
skeiðið -Laxdæla kl. 10 og kl. 13. Leiðbeinandi Baldur Hafstað. Dans-
leikur, Stangarhyl 4, sunnudagskvöld 3. nóvember kl. 20. Hljómsveit
hússins. Mætum öll og njótum.
Vesturgata 7 Sungið við flygilinn með Gylfa Gunnarssyni frá kl.13-
14. Kaffi kl. 14-14.30. Allir velkomnir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
NÁTTFÖT
9.500,-
11.500,-
5.900,-
9.500,-
9.500,-
www.frusigurlaug.is
Glæsileg vefverslun
- Frí póstsending -
MJÓDD | S. 774-7377
Í MIKLU ÚRVALI
Laugavegi 178, 105 Reykjavík
sími 551 3366. Opið virka daga
kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14
Aðhaldsbuxur
Misty
Teg:40601 St: S-XXL 2.995,-
Nærbuxur
Teg: 838 St: S-XXL 2.995,-
Gamli góði frá Guy De France
til í svörtu, hvítu og gráu.
Stærðir 75-100 C-F
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
✝ Sverrir Guð-varðsson fæddist
í Reykjavík 30. sept-
ember 1930. Hann
lést á Landakotsspít-
ala 22. október 2019.
Foreldrar Sverris
voru Guðvarður Þór-
arinn Jakobsson, f.
18.1. 1900, d. 19.10.
1959, og Oddrún Sig-
þrúður Guðmunds-
dóttir, f. 8.9. 1900, d.
17.4. 1951. Systkini Sverris voru
Sigríður, f. 1921, d. 1997, Svava, f.
1923, d. 1988, Helga, f. 1924, d.
1994, Guðvarður, f. 1927, d. 1931,
María, f. 1932, d. 1991, Guð-
mundur, f. 1933, d. 1987, og Jak-
ob, f. 1933, d. 1992. Hálfbróðir
Sverris, samfeðra, var Gunnar
Eyjólfsson, f. 1926, d. 2016.
Árið 1950 kvæntist Sverrir
eftirlifandi eiginkonu sinni Sig-
ríði Bjarnason, f. 5. ágúst 1926 í
Reykjavík. Foreldrar hennar
voru Hjálmar Bjarnason, f. 1900,
d. 1983, og Elísabet J. Bjarnason,
f. 1899, d. 1963. Börn þeirra eru:
1) Hjálmar, f. 29. desember 1950.
Börn: Gústaf Helgi, f. 9. júlí 1968,
Sverrir, f. 24. desember 1980,
Kolbrún, f. 17. janúar 1982, Vaka,
f. 21. september 1985, Gunnar
Áki, f. 16. maí 1992, Elías Arnar,
f. 13. mars 1994, og Haukur Haf-
liði, f. 3. júlí 1995. 2) Oddrún, f. 22.
júní 1952. Maki Gísli Guðmunds-
son, f. 24. maí 1947. Börn: Sigríð-
ur, f. 19. febrúar 1980, og Soffía
Rut, f. 2. ágúst 1985. 3) Sverrir, f.
3. apríl 1954. Maki Kristrún Leifs-
dóttir, f. 30. apríl 1965. Börn
Sverris: Laufey, f. 27. júní 1998,
og Benedikt, f. 10. desember
2000. 4) Pétur, f. 25. mars 1957.
Börn: Lilja, f. 7. desember 1980,
Stefán Björn, f. 15. október 1994,
og Axel Örn, f. 22. janúar 1997. 5)
Karl Friðrik, f. 21. júní 1959.
Sambýliskona Susan
Ellekær. Börn Karls:
Lísa Björt, f. 21. júlí
1984, og Óskar Steinn
Karlsson, f. 6. febrúar
1989. Sonur Sverris er
Birgir Þór, f. 21. sept-
ember 1961. Maki Kol-
brún Eva Valtýsdóttir,
f. 23. maí 1960. Börn:
Hulda, f. 18. nóvember
1980, Sædís Eva, f. 21.
september 1985, og
Valtýr Snæbjörn, f. 25. febrúar
1996.
Sverrir ólst upp í Vesturbæn-
um í Reykjavík og gekk í Miðbæj-
arskóla. Hann lauk burtfarar-
prófi úr Stýrimannaskólanum í
Reykjavík árið 1954 og hóf störf
hjá Ríkisskipum í kjölfarið. Starf-
aði hann þar samfleytt sem stýri-
maður og afleysingaskipstjóri í 17
ár eða til ársins 1965 er hann hóf
störf í landi fyrir Stýri-
mannafélag Íslands, fyrst sem
framkvæmdastjóri og síðan for-
maður til þriggja ára. Á þessum
tíma var hann einnig varafulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í borgar-
stjórn Reykjavíkur. Frá 1968 til
1973 starfaði Sverrir sem yfir-
stýrimaður á dönskum farskipum
og öðlaðist m.a. dönsk skipstjórn-
arréttindi. Hann réð sig til Eim-
skips í kjölfarið þar sem hann
starfaði þar til hann fór á eft-
irlaun.
Sverrir gekk ungur í Frímúr-
araregluna á Íslandi og var virk-
ur meðlimur fram á efri ár. Hann
var áhugamaður um þjóðmál og
að loknum löngum sjómannsferli
hóf hann að stunda golf.
Sverrir og Sigríður voru gift í
69 ár og voru nýflutt inn á Eir-
hamar er hann féll frá.
Útför Sverris verður gerð frá
Áskirkju í dag, 1. nóvember 2019,
klukkan 14.
Jæja elsku afi, þá er komið að
kveðjustund.
Það er skrýtið að hugsa til þess
að það verði ekki fleiri símtöl þar
sem djúpa röddin þín heyrist á
hinum enda línunnar og elsku
Sigga þín í hinu símtólinu. Að það
verði ekki fleiri þéttingsföst
faðmlög og koss á kinn frá þér.
Í okkar hugum eru þú og
Sigga sem eitt, eitt og sama
hjartað sem slær fyrir fjölskyld-
una.
Heimilið ávallt opið öllum og
alltaf tilefni til að kalla saman
fjölskylduna og eiga saman góða
stund. í okkar hjörtum einkenn-
ast allar þessar samverustundir
af gleði og hlátri, hlýju og vænt-
umþykju sem er ómetanlegt.
Minningarnar eru allar ljúfar.
Elsku afi, við kveðjum þig með
söknuði í hjarta, hafðu þökk fyrir
allt og allt.
Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur sendum við til elsku
Siggu, það hefur ætíð verið okkar
gæfa að eiga í henni auka ömmu.
Hulda, Sædís og Valtýr
(Valli).
Sverrir
Guðvarðsson
Elskulega Auður
okkar er fallin frá.
Hún Auður, sem stóð
sem klettur að baki
tengdaföður, föður,
afa og langafa alla
daga og þá sérstaklega í erfiðum
veikindum hans. Þau eru nú sam-
an á ný eftir rúmlega tveggja ára
aðskilnað. Hún fylgdi honum allt
til enda á sinn ljúfa og nærgætna
hátt en hefur nú sjálf kvatt í bili.
Við minnumst Auðar með þakk-
læti og minningar fylla hugann.
Það var fyrir rúmum þrjátíu árum
sem leiðir okkar Auðar lágu sam-
an þegar ég kom fyrst heim til
Óskars í Smáratúnið. Hún var
ekki kona margra orða en á fasi
hennar var hægt að skynja kær-
leika og hlýju. Mér var tekið opn-
um örmum frá þeirri stundu. Eftir
því sem tíminn leið og fjölskylda
Auður
Guðvinsdóttir
✝ Auður Guðvins-dóttir fæddist 1.
ágúst 1940. Hún lést
4. október 2019.
Útförin fór fram
17. október 2019.
okkar Óskars stækk-
aði sáum við betur hve
mikilvæg börnin og
barnabörnin voru
Auði. Blóðtengsl
skiptu hana engu,
börn og barnabörn
Birgis voru sem henn-
ar eigin. Oftast þegar
þau komu í heimsókn
var Auður komin inn í
herbergi til barnanna
að leika og spjalla.
Nærvera þeirra skipti hana miklu
máli og þar mátti sjá gagnkvæm-
an kærleik og umhyggju. Þau
Birgir Þór sonur ekkar áttu ein-
stakt samband og fyrir það ber að
þakka, söknuðurinn er mikill. Líf-
ið er núna og það er dýrmætt.
Hugsum vel hvert um annað og
hlúum hvert að öðru.
Kærar þakkir frá fjölskyldunni
til allra þeirra sem fylgdu Auði.
Það er sárt að kveðja ástvin en
minningar um ljúfu Auði, tengda-
mömmu, ömmu og langömmu,
munu lifa með okkur Óskari,
börnum og barnabarni.
Kolfinna Njálsdóttir.