Morgunblaðið - 01.11.2019, Side 30
Fjölskyldan frá Hallormsstað Frá vinstri: Malen, Elísabet, Guðmundur,
Elín, Þorsteinn, Kristján og Kristjana á 70 ára afmæli Elínar í mars 2018.
E
lísabet Þorsteinsdóttir
er fædd 1. nóvember
1969 á Egilsstöðum.
Til 6 mánaða aldurs
bjó Elísabet í Lagar-
felli í Fellabæ en flutti þá með for-
eldrum sínum á Skriðuklaustur.
„Þá var þar rekið tilraunabú og
unnu foreldrar mínir við það. Þeg-
ar ég var 6 ára höfðu foreldrar
mínir byggt okkur hús á Hallorms-
stað og fluttum við fjölskyldan
þangað.“
Elísabet gekk fyrst í Seljaskóla
á Skriðuklaustri en eftir það gekk
hún í Hallormsstaðaskóla. Í 9.
bekk (10. bekkur í dag) var hún í
Alþýðuskólanum á Eiðum en síðan
lá leiðin í Laugaskóla þar sem hún
var í tvo vetur. Hún fór síðan í
Menntaskólann á Egilsstöðum og
kláraði þar um áramótin 1988 en
útskrifaðist vorið 1989. Þá fór hún
suður og lærði þjóninn, var á
námssamningi á Hótel Íslandi og
fór í Hótel- og veitingaskóla Ís-
lands, tók sveinspróf í janúar 1992
og lauk meistaraprófi við Iðnskól-
ann í Reykjavík 1994. Síðar tók
Elísabet viðskipta- og rekstrarnám
frá Endurmenntun HÍ, eða árið
2001.
Fyrsta vinnan hennar Elísabetar
var að passa börn, en síðan vann
hún í skógræktinni á Hallormsstað
í nokkur sumur. Hún rak sum-
arhótel Hússtjórnarskólans á Hall-
ormsstað í tvö sumur með móður
sinni. „Síðan eftir að ég byrjaði að
læra þjóninn fór ég austur á sumr-
in og vann á sumarhótelinu á Hall-
ormsstað og í Valaskjálf. Haustið
1992 fór ég með kærastanum mín-
um, honum Skúla, sem varð síðan
maðurinn minn, til Frakklands og
bjuggum við þar þann vetur.“ Þeg-
ar heim var komið fór Elísabet að
vinna á Lækjarbrekku 1993 og sá
þar m.a. um Kornhlöðuloftið og
var þar í nokkur ár.
„Vorið 1999 fluttum við austur
og bóndi minn var ráðinn forstöðu-
maður Gunnarsstofnunar á Skriðu-
klaustri. Ég stofnaði Klausturkaffi
í því sama húsi sumarið 2000 og
þar hefur verið minn starfsvett-
vangur síðan. Þar hef ég boðið
gestum Skriðuklausturs upp á há-
degis- og kaffihlaðborð, alla daga
yfir sumarið sem er orðið töluvert
langt núna, eða frá 1. apríl og
fram í miðjan október. Þar legg ég
áherslu á að nota hráefni úr héraði
og allur matur, brauð og kökur er
heimabakað.
Það má segja að þetta barn mitt
hafi tekið mestan tíma minn og er
ekki mikill tími fyrir önnur áhuga-
mál, en ég tel mig þó hafa græna
fingur og nýt þess að fara í garð-
inn eða gróðurhúsið eftir vinnu á
sumrin. Á sumrin er ég upptekin
við mína vinnu hjá Klausturkaffi
en við Skúli og fjölskyldan höfum
verið dugleg að taka okkur vetr-
arfrí og ferðast töluvert, og þá sér-
staklega til Suður-Evrópu. Við
byggðum okkur bjálkahús á Hall-
ormsstað og búum þar og göngu-
ferðir í skóginum eru gulls ígildi.“
Áður bjuggu hjónin á Skriðu sem
er við hliðina á Skriðuklaustri, en
hafa verið á Hallormsstað frá
2006.
Elísabet tók þátt í að stofna
Austfirskar krásir árið 2009 og var
formaður þeirra í nokkur ár. Einn-
ig hefur hún setið í skólanefnd
Hússtjórnarskólans á Hallorms-
stað, nú Hallormsstaðaskóla.
Fjölskylda
Eiginmaður Elísabetar er Skúli
Björn Gunnarsson, f. 24.3. 1970, ís-
lenskufræðingur og forstöðumaður
Gunnarsstofnunar á Skriðu-
klaustri. Þau gengu í hjónaband
1997. Foreldrar Skúla eru hjónin
Gunnar Aðólf Guttormsson, f. 3.4.
1929, íþróttakennari og bóndi á
Litla-Bakka í Hróarstungu, og
Svandís Skúladóttir, f. 29.12. 1938,
bóndi og kvenfélagskona. Þau
héldu nýlega upp á 60 ára brúð-
kaupsafmæli sitt.
Börn Elísabetar og Skúla eru
Jóhanna Malen, f. 1.2. 1999, nemi í
jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands,
og Ragnhildur Elín, f. 13.4. 2001,
er á 3ja ári í Menntaskólanum á
Egilsstöðum.
Systkini Elísabetar eru Malen
Dögg Þorsteinsdóttir, f. 23.1. 1972,
kjólaklæðskeri og rekur Eðalklæði
í Reykjavík; Kristjana Sólbjörg
Þorsteinsdóttir, f. 20.1. 1973, við-
skiptafræðingur og vinnur við
greiningar hjá Nova í Reykjavík;
Guðmundur Ingi Þorsteinsson, f.
31.3. 1980, verkfræðingur og rekur
Lean ráðgjöf í Reykjavík, og
Kristján Benedikt Kröyer Þor-
steinsson, f. 3.2. 1986, íþróttafræð-
ingur og býr í Reykjavík.
Elísabet Þorsteinsdóttir, framreiðslumeistari og veitingakona á Skriðuklaustri – 50 ára
Hjónin Elísabet og Skúli stödd á grísku eyjunni Santorini í nóvember 2018,
en þau eru dugleg að ferðast á veturna.
Langt sumar á Skriðuklaustri
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
fimmtudaginn 28. nóvember
Við komum víða við í ár, heimsækjum
fjölda fólks og verðummeð fullt af
spennandi efni fyrir alla aldurshópa.
Morgunblaðsins kemur út
Jólablað
40 ára Guðjón er frá
Hrútsholti á Snæfells-
nesi en býr í Reykja-
nesbæ. Hann er pípu-
lagningamaður að
mennt og er tækni-
maður hjá Securitas
og setur upp slökkvi-
kerfi þar. Áhugamál eru útivera, hjól-
reiðar og að vera með krökkunum sín-
um
Börn: Tvíburarnir Ísar Logi og Kristinn
Snær, f. 2002 og Talía Mjöll, f. 2004.
Foreldrar: Magnús Guðjónsson, f.
1956, steypustjóri hjá Steypustöðinni
Selfossi, búsettur þar, og Björk Sigurð-
ardóttir, f. 1960, vinnur fyrir Skólamat,
búsett í Hafnarfirði.
Guðjón
Magnússon
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þeir eru margir sem vilja ná athygli
þinni en þú veist vel að ekki er hægt að
gera svo öllum líki. Þú færð svar við gamalli
spurningu.
20. apríl - 20. maí
Naut Ekkert er eins bráðdrepandi fyrir vin-
áttuna og peningamál. Þú lærir af þessu
leiðindamáli. Ástamálin ganga glimrandi
vel.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Á þessum tímapunkti í lífinu verð-
ur þú að gera þér grein fyrir aðstæðum
þínum. Aðeins þannig getur þú tekið rétta
ákvörðun varðandi framtíðina.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er erfitt að sættast á það að
maður hafi ekki alltaf rétt fyrir sér. Komdu
ástinni þinni á óvart, það kryddar tilveruna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur notið þess að víkka sjón-
deildarhringinn að undanförnu. Ef maður
bindur sig of fast við niðurstöðuna sem
maður þráir hindrar maður eitthvað annað
betra í að eiga sér stað.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gerðu allt sem þú getur til þess að
bregða út af vananum í dag. Dagurinn verð-
ur góður og þú svífur um á bleiku ástarskýi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Samband sem eitt sinn riðaði til falls
er nú á traustum grunni. Sýndu þolinmæði
og þá mun allt leysast farsællega. Ungviðið
þarf sinn tíma.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Spurðu sjálfa/n þig að því af
hverju þú þarft alltaf að vera að afreka eitt-
hvað. Til hvers? Fyrir hvern? Ekki hafa of
miklar áhyggjur af unglingnum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft að leggja þig fram og
ná aftur stjórn á hlutunum. Mikilvæg per-
sóna í lífi þínu bíður eftir að þú hafir sam-
band.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú vilt standa upp úr og falla inn
í hópinn á sama tíma. Kannski er erfitt fyrir
aðra að skilja það sem þú ert að ganga í
gegnum, en það þýðir ekki að þú sért
skrýtin/n.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Óendanleg þolinmæði þín borg-
ar sig. Ekki missa sjónar á markmiðum þín-
um. Góðir hlutir gerast hægt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að horfast í augu við stað-
reyndir og þér mun líða betur á eftir. Sjáðu
hvað gerist ef þú hrósar einhverjum.
30 ára Hjalti Freyr er
Hafnfirðingur og er
grunnskólakennari að
mennt með áherslu á
íslensku. Hann er um-
sjónarkennari í náms-
veri í unglingadeild í
Öldutúnsskóla í
Hafnarfirði. Hjalti Freyr hefur áhuga á
íþróttum og kvikmyndum.
Maki: Hafrún Lilja Elíasdóttir, f. 1989,
grunnskólakennari í Hofsstaðaskóla í
Garðabæ.
Dóttir: Óskírð, f. 28.10. 2019.
Foreldrar: Magnús Ólafsson, f. 1946,
leikari, og Elísabet Sonja Harðardóttir, f.
1948, húsmóðir. Þau eru búsett í
Hafnarfirði.
Hjalti Freyr
Magnússon
Til hamingju með daginn
Hafnarfjörður Óskírð Hjaltadóttir
fæddist 28. október 2019 kl. 00.47.
Hún vó 3.608 g og var 52 cm löng. For-
eldrar hennar eru Hafrún Lilja Elías-
dóttir og Hjalti Freyr Magnússon.
Nýr borgari