Morgunblaðið - 01.11.2019, Qupperneq 31
Mæðgur í Madríd Elísabet, Jóhanna Malen og Ragnhildur Elín.
Foreldrar Elísabetar eru hjónin
Elín Kröyer, f. 23.3. 1948, versl-
unar- og garðyrkjukona, og Þor-
steinn Ingimar Þórarinsson, f.
29.1. 1941, skógarhöggsmaður. Þau
eru búsett á Hallormsstað og
héldu nýlega upp á 50 ára brúð-
kaupsafmæli sitt.
Elísabet
Þorsteinsdóttir
Hallgrímur Jónsson
bóndi á Víðivöllum ytri
Bergljót Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Víðivöllum ytri
Þórarinn Hallgrímsson
bóndi á Víðivöllum ytri
Þorsteinn Ingimar Þórarinsson
skógarhöggsmaður á
Hallormsstað
Sigríður Elísabet Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Víðivöllum ytri í
Fljótsdal
Þorsteinn Jónsson
bóndi á Aðalbóli og Glúmsstöðum
Soffía Pétursdóttir
húsfreyja á Aðalbóli í Hrafnkelsdal
og Glúmsstöðum í Fljótsdal
Benedikt Kröyer Kristjánsson
bóndi á Stóra-Bakka
Antonía Petra Jónsdóttir
húsfreyja og saumakona á
Stóra-Bakka í Hróarstungu
Kristján Elís Kröyer
bóndi á Stóra-Bakka, Unalæk
og í Rvík
Malen Gunnarsdóttir Kröyer
húsfreyja og saumakona á Stóra-
Bakka, Unalæk á Völlum og í Rvík
Gunnar Sigurðsson
bóndi í Beinárgerði
Guðlaug Sigríður Sigurðardóttir
húsfreyja í Beinárgerði á Völlum
Úr frændgarði Elísabetar Þorsteinsdóttur
Elín Kröyer
verslunar- og garðyrkjukona á Hallormsstað
DÆGRADVÖL 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2012
-2017
Kerruöxlar og íhlutir
ALLT TIL
KERRUSMÍÐA
„VIÐ GETUM EKKI FARIÐ HEIM TIL MÍN.
ÉG Á HUND.”
„HANN ER AÐ SAFNA FYRIR
FIMLEIKAFERÐ. VILTU LAKKRÍS,
KLÓSETTPAPPÍR EÐA GULRÆTUR?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vita að heima
bíður þín heitur
kvöldverður.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
SÆL HALLGERÐUR!
ÉG SÉ AÐ ÞÚ ERT
BÚIN AÐ FÁ ÞÉR
HUND!
JÁ, ÉG HEF VERIÐ
Í VANDRÆÐUM
MEÐ KARLMENN!
ER HANN
VARÐ-
HUNDUR?
NEI, ALLS EKKI.
SÆKTU!
EKKI
REYNA
ÞETTA
OOO!
Faðir minn gaf mér heildar-útgáfu Magnúsar Matthías-
sonar á ljóðmælum séra Matthíasar
þegar ég var á fermingaraldri. Mér
þykir vænt um hana og gríp niður í
hana oftar en í aðrar bækur. Á
föstudaginn birti ég vísu eftir séra
Matthías með þeim skýringum sem
þar eru:
Þegar ég heyrði þinglokin
þá hljóp í mig gikkurinn;
þá sagði ég við hann Manga minn:
„Mígðu nú yfir söfnuðinn!“
Hér er ekki rétt skýrt frá til-
drögum vísunnar eins og fram kem-
ur í þessari athugasemd, sem Jó-
hannes Nordal sendi mér og ég
þakka fyrir: „Þú birtir um daginn
vísu Matthíasar Jochumssonar
„þegar ég heyrði þinglokin“ og tel-
ur tilefnið hafa verið að söfnuður-
inn hafi synjað einhverri beiðni
hans. Ég hef það hins vegar frá föð-
ur mínum að tilefnið hafi verið
eftirfarandi:
Matthías þurfti oftar en einu
sinni að ávíta Magnús, tólf ára son
sinn, fyrir að kasta af sér vatni á
túnblettinum fyrir framan Sigur-
hæðir, þar sem það blasti við safn-
aðarbörnum hans. Um þetta leyti
var Matthías orðinn þreyttur á
prestskapnum og sóttist eftir því að
losna úr embætti til að geta helgað
sig skáldskapnum að fullu. Haustið
1899 fær hann svo þær fréttir eftir
þinglokin að honum hafi verið veitt
heiðurslaun til æviloka. Viðbrögð
hans við fréttinni eru annars vegar
að segja af sér embætti frá 1. jan-
úar 1900 og hins vegar að yrkja
þessa skemmtilegu vísu um að nú
hafi hann ekki lengur ástæða til að
banna syni sínum að míga yfir söfn-
uðinn.“
Hólmfríður Bjartmarsdóttir seg-
ir frá því á Boðnarmiði að hún
heyrði nýlega að kindur bindi kol-
efni í ullinni. Því verður framtíðin
svona:
Ísland er frábærast eins og sést
enginn er mengunarvandi.
Hér kolefnisbinda kindurnar mest
og karlar í föðurlandi.
Enn yrkir hún:
Ég óska að græða með öðrum hætti
en einfaldri nísku.
Mig langar að prófa peningaþvætti
því peningaþvætti er í tísku.
Ekki er þessi lýsing Péturs
falleg, – en skemmtileg!
Líkt og bein og hræ og hrygg
hundur þarf að naga
duglegur ég tygg og tygg
tyggjó alla daga.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísa séra Matthíasar