Morgunblaðið - 01.11.2019, Qupperneq 32
Í MOSFELLSBÆ
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Afturelding tyllti sér á topp Olís-
deildar karla í handknattleik í gær-
kvöld með eins marks sigri á Ís-
landsmeisturum Selfoss í háspennu-
leik að Varmá í Mosfellsbæ, 32:31.
Leikmenn Aftureldingar áttu loka-
sprettinn í leiknum eftir að hafa átt
undir högg að sækja lengst af, ekki
síst eftir afleitan upphafskafla þar
sem gestirnir skoruðu fimm af
fyrstu sex mörkum leiksins.
Selfoss var þremur mörkum yfir í
hálfleik, 17:14.
Afturelding hefur þar með 12 stig
í efsta sæti deildarinnar, eins og
Haukar, en markahlutfall Aftureld-
ingar hagstæðara. Liðin mætast í
næstu umferð í uppgjöri toppliðanna
að Varmá á sunnudagskvöld. Víst er
að þá mun svo sjóða á keipum.
Haukur Þrastarson var allt í öllu í
liði Selfoss eins og stundum áður.
Mosfellingum gekk illa að ráða við
ungstirnið sem skoraði að vild og
dreifði út stoðsendingum á samherj-
ana eins og konfektmolum á hátíð-
isdögum. Þegar á leið síðari hálfleik
breytti Mosfellingar varnarleik sín-
um. Gunnar Kristinn Þórsson var
settur til höfuð Hauki. Breytingin
skilaði tilætluðum árangri. Um leið
lifnaði yfir Arnór Frey Stefánssyni
markverði Aftureldingar sem varði
afar mikilvæg skot úr opnum fær-
um. Hinum megin vallarins fór Birk-
ir Benediktsson hamförum og raðaði
mörkum á Selfossmarkið. Birkir átti
enn einn stórleikinn á leiktíðinni og
hlýtur hafa enn einu sinni bankað
hressilega á útidyrnar hjá landsliðs-
þjálfaranum.
Markverðir Selfoss náðu sé ekk-
ert á strik og vörðu vart skot í síðari
Enn einn baráttusigurinn
Birkir fór á kostum Gunnar kom
böndum á Hauk Afturelding er efst
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
Varmá, Olísdeild karla, fimmtudag-
inn 31. október 2019.
Gangur leiksins: 1:3, 4:6, 8:8,
10:11, 12:14, 14:17, 17:20, 20:23,
23:24, 25:25, 28:27, 32:31.
Mörk Aftureldingar: Birkir Bene-
diktsson 10, Guðmundur Árni Ólafs-
son 7/3, Karolis Stropus 4, Sveinn
José Rivera 3, Einar Ingi Hrafnsson
3, Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 2,
Júlíus Þórir Stefánsson 2, Tumi
Steinn Rúnarsson 1.
Varin skot: Arnór Freyr Stefánsson
12/1.
AFTURELDING – SELFOSS 32:31
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Selfoss: Haukur Þrastarson
7/1, Guðjón Baldur Ómarsson 6,
Árni Steinn Steinþórsson 5, Guðni
Ingvarsson 4, Hergeir Grímsson
4/2, Magnús Öder Einarsson 3,
Tryggvi Þórisson 1, Nökkvi Dan El-
liðason 1.
Varin skot: Sölvi Ólafsson 6/1, Ein-
ar Baldvin Baldvinsson 2.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Magnús Kári Jónsson og
Heimir Örn Árnason.
Áhorfendur: 500.
Olísdeild karla
Afturelding – Selfoss............................ 32:31
Staðan:
Afturelding 7 6 0 1 189:176 12
Haukar 7 5 2 0 183:170 12
ÍR 7 5 0 2 215:194 10
Selfoss 7 4 1 2 213:212 9
ÍBV 7 4 1 2 187:176 9
FH 7 4 1 2 192:185 9
Fram 7 3 0 4 172:170 6
Valur 7 2 1 4 174:166 5
KA 7 2 1 4 198:199 5
Stjarnan 7 1 2 4 170:188 4
Fjölnir 7 1 1 5 175:201 3
HK 7 0 0 7 166:197 0
Grill 66 deild karla
Víkingur – Fjölnir U ............................ 28:30
Staðan:
Þór Ak. 5 4 1 0 148:132 9
Þróttur 5 3 1 1 166:148 7
Valur U 5 3 0 2 149:147 6
Haukar U 5 3 0 2 142:129 6
KA U 5 3 0 2 163:139 6
Víkingur 6 2 1 3 150:155 5
FH U 5 2 0 3 142:139 4
Grótta 5 2 0 3 129:139 4
Stjarnan U 5 1 1 3 123:158 3
Fjölnir U 6 1 0 5 152:178 2
Meistaradeild karla
D-RIÐILL:
Kadetten – GOG................................... 40:28
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 4 mörk
fyrir GOG en Arnar Freyr Arnarsson skor-
aði ekki. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 3
skot í marki liðsins.
Staðan: Dinamo Búkarest 10, GOG 8, Ka-
detten 6, Wisla Plock 5, Kristianstad 3,
Chekhovskie Medvedi 2.
Þýskaland
Kiel – Melsungen ................................. 38:26
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 1
mark fyrir Kiel og átti stoðsendingu.
Ludwigshafen – Bergischer .............. 27:27
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 3 mörk
fyrir Bergischer og Ragnar Jóhannsson 1.
Hannover-Burgdorf – Nordhorn ...... 30:29
Geir Sveinsson þjálfar Nordhorn.
Staða efstu liða: Hannover-Burgdorf 19,
Kiel 16., Flensburg 15, Melsungen 15.
B-deild:
Hamburg – Lübeck-Schwartau......... 29:21
Aron Rafn Eðvarðsson varði 7 skot í
marki Hamburg. Með 30% markvörslu.
Sigtryggur Daði Rúnarsson skoraði 1
mark fyrir Lübeck-Schwartau.
Danmörk
Ribe-Esbjerg – Nordsjælland ............ 32:24
Rúnar Kárason skoraði 3 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg og Gunnar Steinn Jónsson 3.
Daníel Þór Ingason er meiddur.
Lemvig – SønderjyskE ....................... 27:27
Sveinn Jóhannsson skoraði 6 mörk fyrir
SønderjyskE og Arnar B. Hálfdánsson 1.
Dominos-deild karla
Þór Þ. – Haukar.................................... 89:80
ÍR – KR ................................................. 78:77
Tindastóll – Þór Ak. ............................. 89:77
Keflavík – Valur.................................... 92:82
Staðan:
Keflavík 5 5 0 466:423 10
KR 5 4 1 445:394 8
ÍR 5 3 2 408:430 6
Valur 5 3 2 448:443 6
Haukar 5 3 2 465:443 6
Tindastóll 5 3 2 434:414 6
Stjarnan 4 2 2 367:350 4
Þór Þ. 5 2 3 402:418 4
Grindavik 4 1 3 337:349 2
Fjölnir 4 1 3 336:361 2
Njarðvík 4 1 3 310:321 2
Þór Ak. 5 0 5 386:458 0
NBA-deildin
Golden State – Phoenix.................... 110:121
LA Clippers – Utah............................ 96:110
Sacramento – Charlotte................... 111:118
Washington – Houston .................... 158:159
Oklahoma – Portland ......................... 99:102
Brooklyn – Indiana........................... 108:118
Philadelphia – Minnesota .................. 117:95
Boston – Minnesota.......................... 116:105
Toronto – Detroit ............................. 125:113
Orlando – New York ............................ 95:83
Cleveland – Chicago......................... 117:111
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Dalhús: Fjölnir – Grindavík .................18.30
Njarðtaksgr.: Njarðvík – Stjarnan......20.15
Bikarkeppni karla, Geysisbikarinn:
Sandgerði: Reynir S. – ÍA .........................19
DHL-höllin: KR B – Álftanes ...................20
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Laugardalshöll: Þróttur – FH U .........19.30
TM-höllin: Stjarnan U – Haukar U..........20
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Hleðsluhöllin: Selfoss – ÍBV U .................18
Hertz-höllin: Grótta – Fjölnir ..............18.30
Í KVÖLD!
MEISTARADEILDIN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Breiðablik er úr leik í Meist-
aradeild Evrópu kvenna í knatt-
spyrnu. París SG hafði betur gegn
Breiðabliki í seinni leik liðanna í 16-
liða úrslitum í París í gærkvöldi.
PSG vann fyrri leik liðanna 4:0 í
Kópavogi og fer áfram í 8-liða úrslit
eftir 7:1 sigur samanlagt.
Styrkleikamunurinn á liðunum er
mikill og úrslitin eru í samræmi við
það en eru einnig í samræmi við töl-
urnar úr leikjunum þar sem PSG
sótti stíft í báðum tilfellum. Franska
liðið átti til að mynda 17 skottilraun-
ir í gær og enn fleiri í fyrri leiknum.
Paris SG er firnasterkt atvinnu-
mannalið sem skreytir sig með
landsliðskonum héðan og þaðan. Lið
Breiðabliks er hins vegar með til-
tölulega unga leikmenn í stórum
hlutverkum og þær komust nokkuð
vel frá rimmunni gegn PSG og þá
sérstaklega leiknum í París í gær.
Staðan að loknum fyrri hálfleik var
1:1 og þær frönsku komust ekki yfir
aftur fyrr en á 78. mínútu.
Í herbúðum Blika er vafalaust
mun meiri ánægja með frammistöð-
una í gær heldur en í fyrri leiknum.
Liðið reyndi oftar að halda bolt-
anum, taugaveiklunin horfin og öll
nálgun betri. Erfitt er að koma því
til skila hversu erfitt er að spila
svona leiki. Andstæðingurinn er að
langmestu leyti með boltann og þeg-
ar Breiðablik náði honum þá fékk
liðið lítinn sem engan tíma. Ekki er
óheppni að franska liðið skoraði í
uppbótartíma í báðum leikjunum.
Áhugamennirnir áttu þá lítið eftir á
tanknum eftir öll hlaupin.
Töpuðu með sæmd
Breiðablik úr leik í Meistaradeildinni Blikar gáfu allt sem þær áttu í París
Jafnt að loknum fyrri hálfleik Tvö mörk voru skoruð seint í leiknum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skoraði Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði sitt tíunda mark í Meistaradeildinni í ár þegar hún jafnaði 1:1 fyrir Breiðablik í París.
1:0 Jordyn Huitema 6.
1:1 Berglind Björg Þorvaldsd. 45.
2:1 Jordyn Huitema 78.
3:1 Kadidiatou Diani 90.
I Gul spjöldHildur, Fjolla, Heiðdís
(Breiðabliki)
I Rauð spjöldEngin
PSG: (4-4-2) Mark: Katarzyna Kie-
drzynek. Vörn: Hanna Glas, Irene
Paredes, Alana Cook, Perle Morroni.
PARÍS SG – BREIÐABLIK 3:1
Miðja: Karina Sævik, Aminata Diallo,
Sara Däbritz (Annahita Zamanian
72), Lea Khelifi (Kadidiatou Diani
75). Sókn: Jordyn Huitema, Lina Bo-
ussaha (Nadia Nadim 83).
Breiðablik: (4-5-1) Mark: Sonný
Lára Þráinsdóttir. Vörn: Ásta Eir
Árnadóttir, Kristín Dís Árnadóttir,
Heiðdís Lillýjardóttir, Áslaug Munda
Gunnlaugsdóttir. Miðja: Karólína Lea
Vilhjálmsdóttir, Fjolla Shala (Hildur
Þóra Hákonardóttir 75), Hildur
Antonsdóttir, Alexandra Jóhanns-
dóttir, Agla María Albertsdóttir.
Sókn: Berglind Björg Þorvaldsdóttir.
Dómari: Tess Olofsson, Svíþjóð.
Áhorfendur: Ekki gefið upp.