Morgunblaðið - 01.11.2019, Page 33
hálfleik. Munar svo sannarlega um
minna í jöfnum leik. Sveiflan snerist
yfir með Aftureldingarliðinu sem
náði í tvígang tveggja marka for-
skoti á síðustu þremur mínútunum
með skipulögðum og öguðum leik og
um leið rann sigurinn Selfyssingum
úr greipum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
10 mörk Birkir Benediktsson reyndist Selfyssingum óþægur ljár í þúfu. Hér
freista Grímur Hergeirson og Haukur Þrastarson þess að stöðva hann.
ÍÞRÓTTIR 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
Í BREIÐHOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
ÍR varð í gær fyrsta liðið til að
bera sigurorð á KR í Dominos-
deild karla í körfubolta er þau
mættust í 5. umferðinni. Lokatölur
í Seljaskóla urðu 78:77 eftir æsi-
spennandi lokamínútur. Sigurinn
var eflaust bragðgóður fyrir
Borche Ilievski og lærisveina hans
eftir tap fyrir KR í lokaúrslitum á
síðustu leiktíð og þá staðreynd að
Matthías Orri Sigurðarson færði
sig yfir til KR frá ÍR í kjölfarið.
Þótt ÍR-ingar hafi misst heilt byrj-
unarlið og meira til eftir síðustu
leiktíð, hefur þeim tekist að búa til
alvörulið í Breiðholtinu. Georgi
Boyanov og Evan Singletary eru
mjög flottir og Sæþór Elmar
Kristjánsson var seigur í gær.
Collin Pryor stendur alltaf fyrir
sínu og það nægði ÍR-ingum gegn
kærulausu liði KR í gær. ÍR fékk
aðeins þrjú stig af bekknum, en
það kom ekki að sök.
KR byrjaði tímabilið af miklum
krafti og leit mjög vel út í fyrstu
leikjunum, en annað hefur verið að
sjá til meistaranna í síðustu tveim-
ur leikjum. Voru þeir stálheppnir
að vinna gegn Þór Þorlákshöfn í
síðustu umferð. Nú var heppnin
með ÍR í liði. Þú skapar þína eigin
heppni og með skynsamari leik,
hefði KR getað verið í góðri stöðu
þegar skammt var eftir. Í hvert
skipti sem KR náði fínu forskoti
slakaði liðið hins vegar á og hleypti
ÍR í leikinn og gripu heimamenn
tækifærið með báðum höndum.
Jakob Örn Sigurðarson spilaði
mjög vel fyrir KR undir lokin, en
aðrir leikmenn eiga töluvert inni.
Jón Arnór Stefánsson var að glíma
við meiðsli og Helgi Már Magn-
ússon, Matthías Orri Sigurðarson
og Michael Craion spiluðu ekki vel
þegar mest var undir. Brynjar Þór
Björnsson hefur alls ekki náð sér á
strik á tímabilinu og var hann enn
og aftur langt frá sínu besta í gær.
Hann hitti ekki úr einu einasta af
þeim þremur þriggja stiga skotum
sem hann reyndi. Það er ekkert
nýtt að KR sé í fyrsta og öðrum
gír í deildarkeppninni, en næstu
leikir eru gegn Tindastóli og
Keflavík og þarf liðið að rífa sig
upp, til að eitt tap breytist ekki í
þrjú töp í röð. ÍR er með þrjá sigra
í röð og er Borche Ilievski enn og
aftur að sanna að hann er einn
besti þjálfari deildarinnar.
Keflavík með fullt hús
Keflavík byrjar deildina með lát-
um og hefur unnið alla fimm leiki
sína. Í gær vann liðið Val 92:82 í
Keflavík. Sá óvenjulegi atburður
gerðist í leiknum Christopher Jon-
es leikmaður Vals ákvað að taka
ekki þátt í leiknum í síðari hálfleik.
Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals,
greindi frá þessu í samtali við
Körfuna.is og sagði ljóst að leik-
maðurinn hefði leikið sinn síðasta
leik fyrir Val.
Þórsarar frá Þorlákshöfn eru að
finna taktinn og unnu Hauka í gær
89:80 á heimavelli. Sneru þeir
leiknum í síðari hálfleik en Haukar
voru yfir 46:40 að loknum fyrri
hálfleik. Þór hefur nú unnið tvo
leiki af síðustu þremur.
Tindastóll mátti hafa fyrir því að
vinna neðsta liðið, Þór Akureyri, á
Króknum 89:77. Leikurinn var
nokkuð jafn lengst af og munaði
fimm stigum fyrir síðasta leik-
hluta.
ÍR-ingar komu fram hefnd-
um gegn meisturunum
Keflvíkingar á toppnum Bæði Þórsliðin eru að sækja í sig veðrið
Morgunblaðið/Hari
Í Seljaskóla Evan Singletary með boltann í gær en hann skoraði afar mikilvæga körfu á lokasekúndunum.
Seljaskóli, Dominos-deild karla,
fimmtudaginn 31. október 2019.
Gangur leiksins: 5:6, 10:12, 10:16,
16:20, 18:26, 19:31, 29:33, 33:36,
33:41, 44:43, 48:52, 55:52, 58:59,
64:64, 70:71, 78:77.
ÍR: Georgi Boyanov 26/6 fráköst, Ev-
an Christopher Singletary 25/6
stoðsendingar, Sæþór Elmar Krist-
jánsson 15, Collin Pryor 9/10 frá-
köst, Florijan Jovanov 3.
Fráköst: 16 í vörn, 6 í sókn.
ÍR – KR 78:77
KR: Jakob Örn Sigurðarson 20/5
stoðsendingar, Michael Craion 17/8
fráköst, Matthías Orri Sigurðarson
12/7 fráköst, Jón Arnór Stefánsson
12, Helgi Már Magnússon 8/4 frá-
köst, Sigurður Á. Þorvaldsson 6,
Brynjar Þór Björnsson 2.
Fráköst: 24 í vörn, 3 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herberts-
son, Rögnvaldur Hreiðarsson, Friðrik
Árnason.
Áhorfendur: 149
Sú var tíðin að á Íslandi var gef-
ið út tímarit um íþróttir sem hét
einfaldlega Íþróttablaðið. Kom
það líklega út um tíu sinnum á
ári þegar mest var.
Raunar var tímaritið gefið út í
áratugi en ég þekki ekki hvað
varð til þess að það lagðist af. Ef
til vill var það einfaldlega tilkoma
internetsins sem varð þess
valdandi.
Foreldrar mínir gáfu grænt
ljós á að ég væri áskrifandi að
þessu tímariti sem barn og ung-
lingur enda sjálfsagt margt verra
hægt að glugga í en umfjöllun
um íþróttalífið hérlendis. Dreif-
ingin hjá Fróða hefur þá alla vega
þurft að senda eitt eintak vestur
á firði.
Eftir á að hyggja var tímaritið
býsna metnaðarfullt, alla vega á
þeim tíma sem um ræðir, en Þor-
grímur Þráinsson stýrði þá efnis-
tökum. Hægt er að kynna sér
það allt saman á Þjóðarbókhlöð-
unni þar sem finna má blöðin í
möppum rétt eins og Morgun-
blaðið sem fagnar 106 ára af-
mæli á morgun.
Í flutningum fyrir nokkrum árum
rakst ég á blað sem líklega var
frá árinu 1996. Þar kallaði Þor-
grímur körfuboltaþjálfarann frá
Grenimel, Benedikt Guðmunds-
son, „hugsuð“ í ítarlegri umfjöll-
un. Benedikt virðist hafa haldið
jarðtengingunni vel eftir þessa
umfjöllun og er nú treyst fyrir A-
landsliði.
Af og til leyfir maður sér að
skrifa um hitt og þetta í þessum
dagskrárlið. Þá er gott til þess að
vita að Ágúst Jóhannsson styður
mig ávallt í því að vera með
efnistök í óvenjulegri kantinum
og sendir mér reglulega góða
rafræna strauma. Með Íslands-,
deildar- og bikarmeistara í sínu
horni eru manni allir vegir færir.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Meistaradeild kvenna
16-liða úrslit, seinni leikir:
PSG – Breiðablik.......................................3:1
PSG áfram, 7:1 samanlagt.
Glasgow City – Brøndby...........................0:2
Glasgow áfram eftir vítakeppni.
Arsenal – Slavia Prag ...............................8:0
Arsenal áfram, 13:2 samanlagt.
Búlgaría
Levski Sofia – Dunav Ruse..................... 2:0
Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
og skoraði síðara mark L.S.
Rússland
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Spartak Moskva – Rostov ....................... 2:1
Ragnar Sigurðsson var á varamanna-
bekknum hjá Rostov en Björn Bergmann
Sigurðarson lék fyrstu 71 mínútuna.
Danmörk
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
AGF – OB.................................................. 1:0
Jón Dagur Þorsteinsson var ekki í leik-
mannahópi AGF.
Spánn
Eibar – Villarreal ..................................... 2:1
Mallorca – Osasuna .................................. 2:2
Getafe – Granada...................................... 3:1
Staða efstu liða:
Barcelona 10 7 1 2 28:11 22
Real Madrid 10 6 3 1 21:9 21
Granada 11 6 2 3 18:13 20
Atlético Madrid 11 5 5 1 11:6 20
Sevilla 11 6 2 3 14:12 20
Ítalía
AC Milan – SPAL......................................1:0
Staða efstu liða:
Juventus 10 8 2 0 18:9 26
Inter Mílanó 10 8 1 1 22:10 25
Atalanta 10 6 3 1 30:16 21
Roma 10 5 4 1 18:11 19
Lazio 10 5 3 2 22:10 18
Napoli 10 5 3 2 20:13 18
Hannover-Burgdorf slakar hvergi á í
þýska handboltanum og er í efsta
sæti deildarinnar. Liðið hefur aðeins
tapað einum leik af fyrstu stigum.
Nordhorn-Lingen, sem Geir Sveins-
son stýrir, stóð þó í efsta liðinu í gær
en Burgdorf vann 30:29. Nordhorn
er í neðsta sæti með einn sigur eftir
ellefu leiki en Geir tók við liðinu að-
eins tveimur dögum áður en deildin
hófst.
THW Kiel á tvo leiki til góða og er
þremur stigum á eftir. Kiel getur því
náð efsta sætinu en burstaði
Melsungen í gær á heimavelli. Þótt
Melsungen sé í 4. sæti og með ein-
ungis tvö töp þegar liðið kom til Kiel í
gær þá átti liðið ekki möguleika gegn
THW. Úrslitin urðu 38:26 og skoraði
Gísli Kristjánsson 1 mark fyrir
heimaliðið og gaf eina stoðsendingu.
Íslendingaliðið Bergischer lenti í
spennuleik gegn Ludwigshafen á úti-
velli og lauk leiknum með jafntefli
27:27. Arnór Þór Gunnarsson skoraði
3 mörk fyrir Bergischer og Ragnar
Jóhannsson skoraði 1 mark. Liðið er
í 13. sæti með 9 stig en mótherjinn í
gær er í næstneðsta sæti deild-
arinnar. Á morgun fær Elvar Ás-
geirsson að spreyta sig gegn meist-
araliðinu Flensburg.
Burgdorf heldur þriggja
stiga forskoti á Kiel
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Þýskaland Geir Sveinsson mætti
efsta liðinu og tapaði naumlega.