Morgunblaðið - 01.11.2019, Síða 34
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
KEFLAVÍK
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Eftir að hafa barist um Íslandsmeist-
aratitilinn við Val í úrslitum síðasta
Íslandsmóts horfði Keflavík á eftir
fjölda sterkra leikmanna í sumar auk
þess sem liðið skipti um þjálfara. Sem
fyrr er mikill efniviður til staðar en
hve langt getur liðið náð í vetur? Eftir
tap á heimavelli gegn Skallagrími í
fyrrakvöld er Keflavík með fjögur
stig eftir fjórar umferðir.
„Þetta hefur ekki verið neitt hræði-
legt – ágætt þó að maður hefði viljað
byrja betur,“ segir Emelía Ósk
Gunnarsdóttir, ein þeirra sem fögn-
uðu Íslandsmeistaratitlinum 2017. „Á
leiðinni inn í tímabilið í haust var
maður ekkert að búast við að við yrð-
um langbestar, en við höfum samt
bullandi trú á okkur og ætlum að fara
inn í alla leiki til að vinna,“ segir
Emelía og er ljóst að í Keflavík sættir
enginn sig við minna en sæti í úr-
slitakeppninni. Þó ber að hafa í huga
hversu sterkir leikmenn kvöddu í vor:
„Við erum vissulega mjög ungt lið
en það er ekki eins og það sé í fyrsta
sinn. Þegar ég kom inn í liðið vorum
við ýkt ungar en stóðum okkur samt
vel, og liðið var mjög ungt þegar við
unnum Íslandsmeistaratitilinn síðast.
Þetta er því alls ekki hræðileg breyt-
ing. Við erum bara að styrkja okkur
núna til að við verðum framtíðin. Ég
hef bullandi trú á því að þessir ungu
leikmenn sem eru að koma upp muni
geta tekið næsta skref. Það er ekki
eins og að við höfum misst helling án
þess að hafa neitt til að bæta upp fyr-
ir það,“ segir Emelía. Helsta áskor-
unin gæti falist í því að ná stöðugleika
í leik liðsins:
„Já, það má segja það. Í þessu tapi
gegn Skallagrími byrjuðum við eigin-
lega ekki leikinn fyrr en í fjórða leik-
hluta. Við eigum þetta svolítið mikið
til. Við mætum voðalega rólegar í leik
en föttum svo allt í einu í miðjum leik
að við þurfum að fara að spila. Þetta
er ekki alltaf svona en kemur fyrir.“
Ekki eftirsjá að Dinkins
Á síðasta tímabili var Brittany
Dinkins afar áberandi í liði Keflavík-
ur og skoraði jafnvel 51 stig í einum
leik. Eftir tvö ár með hana í liðinu
þarf Keflavík nú að treysta á aðra
leikmenn.
„Mér finnst eftirsjáin ekki mikil
því liðið var farið að snúast svolítið
mikið um hana. Það er gott fyrir liðið
að við þurfum að vinna sjálfar í stað
þess að treysta á að hún geri allt.
Þetta var orðið þannig að við vildum
bara að Brittany sæi um þetta og það
þorði engin önnur að taka af skarið,“
segir Emelía. Keflavík fékk Danielu
Wallen, sem er frá Venesúela, í sum-
ar. „Munurinn á henni og Brittany er
að Daniela er alls ekki sjálfselsk. Hún
gefur boltann mjög mikið og fer ekki
að reyna að klóra sig í gegn sjálf
nema henni sé sagt að gera það,“ seg-
ir Emelía.
Höfum enn
bullandi trú
á okkur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mikilvæg Emelía getur nú beitt sér af fullum krafti með Keflavík eftir að
hafa snúið til baka úr krossbandsmeiðslum rétt fyrir úrslitakeppni í vor.
Keflavík missti marga leikmenn
„Sjálfselska“ Dinkins slæm fyrir liðið
Þjálfari: Jón Halldór Eðvaldsson
Aðstoðarþjálfari: Hörður Axel
Vilhjálmsson
Árangur 2018-19: 2. sæti, tap fyrir
Val í úrslitum, 3:0.
Íslandsmeistari: 1988, 1989, 1990,
1992, 1993, 1994, 1996, 1998, 2000,
2003, 2004, 2005, 2008, 2011, 2013,
2017.
Bikarmeistari: 1988, 1989, 1990,
1993, 1994, 1995, 1996, 1997, 1998,
2000, 2004, 2011, 2013, 2017, 2018.
Keflavík tapaði naumlega fyrir
KR í fyrstu umferð, vann svo
Hauka og Breiðablik, en tapaði
stórt fyrir Val og svo 75:70 á
heimavelli gegn Skallagrími í
fyrrakvöld. Liðið mætir næst
Grindavík 6. nóvember.
BAKVERÐIR:
Anna Ingunn Svansdóttir
Edda Karlsdóttir
Eva María Davíðsdóttir
Eydís Eva Þórisdóttir
Hjördís Lilja Traustadóttir
Irena Sól Jónsdóttir
Kamilla Sól Viktorsdóttir
Katla Rún Garðarsdóttir
Lovísa Íris Stefánsdóttir
Sara Lind Kristjánsdóttir
FRAMHERJAR:
Daniela Wallen
Elsa Albertsdóttir
Emelía Ósk Gunnarsdóttir
Svanhvít Ósk Snorradóttir
Þóranna Kika Hodge-Carr
MIÐHERJI:
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir
Lið Keflavíkur 2019-20
KOMNAR:
Daniela Wallen frá Leonas Rio-
bamba (Ekvador)
FARNAR:
Birna Valgerður Benónýsdóttir í
Arizona-háskólann (Bandaríkin)
Brittany Dinkins í Deportivo Coleg-
io Los Leones (Síle)
Bryndís Guðmundsdóttir hætt
Embla Kristínardóttir í frí
Erna Hákonardóttir í barn-
eignaleyfi
Eva María Lúðvíksdóttir í Njarðvík
María Jónsdóttir í frí
Sara Rún Hinriksdóttir í frí
Breytingar á liði Keflavíkur
Jón Halldór er klárlega skemmtilegasti þjálfarinn
og þarf að halda í gleðina í hópnum þar sem þær
eiga það til að detta í fýlu og þá gengur ekkert upp
hjá þeim.
Það verður erfitt að fylla skarð Brittany Dinkins
enda bar hún liðið á herðum sér í fyrra og liðið vant-
ar sárlega leikstjórnanda sem er tilbúinn. Nóg er til
af efnilegum en ekki kannski tilbúnum leikmönnum í
þetta hlutverk í efstu deild.
Þær skortir stöðugleika eins og önnur ung lið en þær þurfa einnig að
læra og það fljótt hvernig á að spila og vera undir en það er bara staða
sem þær þekkja illa og gera ekki vel. Það kemur með reynslu að kunna
að klára leiki og ætti það að vera eitt af markmiðum liðsins.
Þær eru veikar inni í teig og einungis Dalla [Salbjörg] er að skila því
hlutverki og svo er ekki þessi heilaga þrenning til staðar. Hvert lið þarf
að hafa í lykilhlutverki einn leikstjórnanda, skotbakvörð og senter en
það er einhvern veginn engin ákveðin í þessum hlutverkum en ég hef
trú á að það eigi eftir að skýrast í vetur og þessar flottu stúlkur eiga eft-
ir að grípa tækifærið og eigna sér þessi mikilvægu hlutverk fyrir liðið.
Eitt það jákvæðasta er að það er engin pressa á þeim enda liðið í upp-
byggingu og Daniella Wallen er góður leikmaður en þarf ákveðið hlut-
verk innan liðsins.
Margrét Sturlaugsdóttir
um Keflavík
Varnarmaðurinn efnilegi Arna Ei-
ríksdóttir er gengin til liðs við Val frá
HK/Víkingi og skrifaði undir samning
við Íslandsmeistarana sem gildir til
næstu fjögurra ára. Hjá Val hittir Arna
fyrir systur sínar, Hlín og Málfríði
Önnu. Hlín, sem er A-landsliðskona,
var algjör lykilmaður hjá Val í sumar
og skoraði 16 mörk í 18 leikjum. Guð-
rún Sæmundsdóttir móðir þeirra er
fyrrverandi leikmaður Vals og lék 168
leiki í efstu deild fyrir félagið og skor-
aði 68 mörk. Arna hefur þrátt fyrir
ungan aldur leikið tvö tímabil í efstu
deild með HK/Víkingi. Hún lék í vörn
U19-landsliðsins sem vann sér sæti í
milliriðlum EM fyrr í þessum mánuði
og á samtals að baki 20 leiki fyrir
yngri landslið Íslands.
Knattspyrnumaðurinn Sindri
Scheving hefur samið við Þrótt
Reykjavík. Kemur hann til félagsins frá
Víkingi R. Sindri var að láni hjá Þrótti
frá Víkingi á síðustu leiktíð og skoraði
þrjú mörk í 18 leikjum í 1. deildinni.
Sindri er uppalinn hjá Val, en gekk til
liðs við enska félagið Reading árið
2014. Þremur árum síðar kom hann
aftur í Val og var lánaður í Hauka, áður
en Víkingur R. samdi við hann á síð-
asta ári.
Ekki lá fyrir niðurstaða í málum
Daða Bergs Grétarssonar, leikmanns
ÍR, og Mantas Virbalas, leikmanns
Þórs Akureyri, eftir fund aga- og úr-
skurðarnefndar KKÍ í vikunni. Niður-
staða liggur því í fyrsta lagi fyrir
næsta miðvikudag. Virbalas og Daða
lenti saman í þriðja leikhluta í leik
Þórs og ÍR á Akureyri síðastliðið föstu-
dagskvöld með þeim afleiðingum að
báðum var vísað af leikvelli. Þórólfur
Heiðar Þorsteinsson, formaður aga-
og úrskurðarnefndar KKÍ, sagði í
stuttu samtali við mbl.is að málið væri
í hefðbundnum farvegi flóknari mála.
Ekki væri hægt að segja að svo stöddu
hvenær niðurstaða lægi fyrir en að
nefndin hefði nú aflað sér allra þeirra
gagna sem hún teldi nauðsynleg.
Jóhann Berg Guðmundsson verður
ekki með Burnley þegar liðið sækir
Sheffield United heim á morgun í
ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þetta
staðfesti Sean Dyche, stjóri Burnley, í
gær. Jóhann tognaði í læri í landsleik
gegn Frakklandi 11.
október og enn eru
fáeinar vikur í að
hann snúi til
baka, að
sögn
Dyche.
Burnley
gæti endurheimt Chris
Wood eftir meiðsli en
Phil Bardsley er
meiddur í baki.
Eitt
ogannað
Miðvörðurinn Hólmar Örn Eyjólfs-
son skoraði fyrir lið sitt Levski
Sofia í sigurleik í deildakeppninni í
Búlgaríu í gær. Levski Sofia sigraði
Dunav Ruse 2:0 og voru mörkin
skoruð snemma leiks. Fyrra markið
var sjálfsmark á 15. mínútu en
Hólmar skoraði á 23. mínútu. Lék
hann allan leikinn fyrir Levski sem
er í 2. sæti með 32 stig fjórum á eft-
ir efsta liðinu Ludogorets.
Hólmar Örn
skoraði
Ljósmynd/Levski Sofia
Skoraði Miðvörðurinn úr Skaga-
firðinum skoraði í Sofíu í gær.
Róbert Aron Hostert, lykilmaður í
liði Vals í Olís-deildinni í hand-
knattleik, er kominn í gifs. Haft er
eftir Snorra Guðjónssyni, þjálfara
Vals, á Vísi að Róbert sé meiddur á
fingri og málið muni skýrast nánar
næsta mánudag. Róbert leikur því
ekki með Val á næstunni en hann
meiddist í síðasta leik gegn Fjölni.
Róbert hefur orðið Íslandsmeistari
með tveimur liðum, ÍBV og Fram.
Róbert á
sjúkralistanum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Meiddur Róbert er ekki leikfær en
ekki liggur fyrir hversu lengi.