Morgunblaðið - 01.11.2019, Síða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2019
Leitin að hinum eina sannasannleik er áberandi leið-arstef í uppfærslu Borg-arleikhússins á Stórskáld-
inu eftir Björn Leó Brynjarsson,
sem hann skrifaði þegar hann var
leikskáld hússins veturinn 2017-
2018. Verkið fjallar um heimildar-
myndagerðarkonuna Rakel (Unnur
Ösp Stefánsdóttir) sem, ásamt kvik-
myndatökumanninum og kærasta
sínum Andra (Hilmar Guðjónsson),
heldur djúpt inn í Amazon-
frumskóginn til að leggja lokahönd á
heimildarmynd um dauðvona föður
sinn, Nóbelsskáldið Benedikt
(Jóhann Sigurðarson). Feðginin
hafa ekki hist í rúman aldarfjórð-
ung, eða frá því að Benedikt yfirgaf
Rakel og móður hennar þegar dótt-
irin var á táningsaldri.
Greinilegt er að feðginin hafa ver-
ið í einhverjum og óljósum sam-
skiptum í aðdraganda ferðalagsins,
en þau virðast þó hafa afar ólíkar
hugmyndir um hver fókus heimild-
armyndarinnar eigi að vera. Sjálfur
spyr Nóbelsskáldið hvort ætlunin sé
að taka viðtal við rithöfundinn Bene-
dikt, sjúklinginn Benedikt eða föð-
urinn Benedikt. Fljótlega verður
ljóst að Rakel sér endurfund þeirra
sem kjörið tækifæri til að gera upp
fortíðina við föður sinn. Sú þörf
ágerist ef eitthvað er þegar hún ger-
ir sér grein fyrir að faðir hennar hef-
ur skrifað skilnað sinn inn í handrit
að sápuóperu, sem hann skilgreinir
reyndar sem hámelódramatískan
fjölskylduharmleik um alþýðufólk.
Uppfærslan í leikstjórn Péturs
Ármannssonar endurspeglar leik
með ímyndarsköpun þar sem upp-
tökum af sviðinu í rauntíma er varp-
að á skjá sem staðsettur er ofan við
sviðið. Persónur eru uppteknar af
sviðsetningu viðtalanna fyrir heim-
ildarmyndina á milli þess sem þær
bresta í leik og útfæra senur úr
sápuóperunni sem sjá má sem end-
urlit fortíðar. Á einum tímapunkti
túlka þær einnig hitabeltisóráð
Andra við nokkra kæti leikhúsgesta,
enda var iðulega flissað að vand-
ræðagangi persóna og stílíseruðum
leikstíl sápunnar. Rannsókn á svið-
setningunni endurspeglast í sjón-
rænni umgjörð Ilmar Stefánsdóttur
þar sem hitabeltisgróðurinn hefur
plastkennt og gervilegt yfirbragð og
stílfærðir búningar styðja við hug-
myndir okkar um ímyndað sögusvið
hitabeltislanda.
Höfundur teflir fram margvís-
legum pælingum um sannleika og
afstæði hans, heiðarleika, sviðsetn-
ingu, ringulreið lífsins, áhrif ólíkra
frásagnarforma, sakleysi og sekt
auk þess að spyrja hvort frásögn
geti nokkurn tímann verið hlutlaus.
Ekki er hægt að segja að verkið sé
framvindudrifið í daðri sínu við
absúrdisma, en plott eða línuleg frá-
sögn er auðvitað alls ekki nauðsyn-
leg til að skapa áhugaverða leiksýn-
ingu. En þegar söguna vantar að
mestu þarf hins vegar að huga að
öðrum þáttum, svo sem eftirtektar-
verðri persónusköpun og/eða gef-
andi leik með tungumálið sem því
miður er ekki fyrir hendi hér.
Leikarar uppfærslunnar hafa
heilt yfir úr of litlu að moða í per-
sónusköpun sinni sem birtist meðal
annars í afstöðuleysi persóna hverr-
ar til annarrar með tilheyrandi
skorti á spennandi dýnamík. Leik-
ararnir reyna sitt besta til að gæða
persónur lífi, en hafa oft ekki erindi
sem erfiði. Best heppnaða senan var
sú í hengirúminu þegar Rakel tekst
með gáskafullum leik að sannfæra
Andra um að hætta við að fara heim
og klára þess í stað heimildar-
myndina.
Lýsingar höfundar á verki sínu,
bæði í leikskrá og viðtali sem birtist
í Morgunblaðinu á frumsýningar-
dag, gáfu fyrirheit um spennandi
sýningu. Vissulega birtast ýmsar
áhugaverðar pælingar í verkinu, en
þær virðast of brotakenndar og laus-
beislaðar til að skapa heilsteypta og
áhugaverða mynd. Ýmis þemu eru
kynnt til sögunnar, en ekki fylgt
nægilega vel eftir. Hvort og hvaða
þýðingu hafði til dæmis drykkja föð-
urins sem virðist angra dótturina
framan af en hættir síðan að skipta
nokkru máli? Og hvernig bar að
skilja þann mikla fókus sem bilaður
ísskápur fékk snemma í verkinu
með tilheyrandi rými í leikmyndinni
áður en persónur hættu alfarið að
gefa ísskápunum tveimur gaum?
Höfundur virðist hafa ætlað sér
að skoða fullmargar hugmyndir í
einu verki sem endar með því að
engin þeirra lendir almennilega í
fókus. Fyrir vikið fá áhorfendur
aðeins leiftur af átökum feðgina og
átökum elskenda, nasasjón af því
hvort ásökun leiði sjálfkrafa til sekt-
ar eða hvort fólk geti fengið að telj-
ast saklaust uns sekt er sönnuð og
smá skvettu af hugmyndum um
hreinræktun, skyldu kvenna til að
eignast börn og þrá mannsins eftir
að skilja eitthvað eftir sig. Yfir og
allt um kring er síðan grunn-
hugmyndin um sviðsetninguna sem
kemst varla á flug þrátt fyrir
fantasíunálgun og húmor leikstjór-
ans í umgengni sinni við leikverkið.
Hér virðist ekki skorta metnað, en
úrvinnslan hefði þurft að vera tölu-
vert markvissari.
Satt og logið
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Fókus „Höfundur virðist hafa ætlað sér að skoða fullmargar hugmyndir í einu verki sem endar með því að engin
þeirra lendir almennilega í fókus,“ segir í rýni um uppfærslu Borgarleikhússins á leikritinu Stórskáldið.
Borgarleikhúsið
Stórskáldið bbmnn
Eftir Björn Leó Brynjarsson. Leikstjórn:
Pétur Ármannsson. Leikmynd og bún-
ingar: Ilmur Stefánsdóttir. Lýsing: Pálmi
Jónsson. Myndbandshönnun: Elmar
Þórarinsson. Leikgervi: Margrét Bene-
diktsdóttir og Ilmur Stefánsdóttir.
Hljóðmynd: Þórður Gunnar Þorvalds-
son. Leikarar: Jóhann Sigurðarson,
Unnur Ösp Stefánsdóttir og Hilmar
Guðjónsson. Frumsýning á Nýja sviði
Borgarleikhússins föstudaginn 18.
október 2019, en rýnt í aðra sýningu
laugardaginn 19. október 2019.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Sýning á verkum Þórdísar Aðal-
steinsdóttur verður opnuð í dag
kl. 17 í Tveimur hröfnum listhúsi.
Sýningin ber titilinn Óáreiðanleg
vitni. „Svartur hundur drekkur
með mér morgunkaffi þar sem ég
átti að vera örugg í fjarlægðinni.
Við drekkum úr bollum ömmu
minnar vegna viðkvæmra minn-
inga og einnig heillumst við af lit-
um og mynstri sjöunda áratug-
arins. Á sama tíma opna tvær
konur og ein skjaldbaka gluggana
og slökkva ljósin einhvern desem-
bermorgun. Þær skríða um ískalt
risastórt rúmið, hvíslandi í myrkr-
inu, og reyna að finna hver aðra.
Anarkistinn Voltairine de Cleyre
lést árið 1912, en til er ljósmynd
af henni haldandi á kettlingnum
sem kom útúr skóginum bak við
húsið mitt árið 2018. Á myndinni
situr hún í gluggakistunni sem
þjónað hefur sem út- og inn-
gönguleið fyrir ketti og mannfólk,
kaffi og kokteila. Þrátt fyrir mikla
vinnu, þá tókst ekki að kenna mér
að haga mér,“ skrifar Þórdís m.a.
um sýninguna.
Þórdís hefur búið til fjölda ára í
New York og hefur m.a. unnið þar
með hinu virta Stux Gallery. Spil „Póker í cdmx“, málverk eftir Þórdísi.
Óáreiðanleg vitni í Tveimur hröfnum
BORGARLEIKHÚSIÐ
Sex í sveit (Stóra sviðið)
Fös 1/11 kl. 20:00 13.sýn Lau 9/11 kl. 20:00 17.sýn Sun 17/11 kl. 20:00 21.sýn
Lau 2/11 kl. 20:00 14.sýn Sun 10/11 kl. 20:00 18.sýn Fös 22/11 kl. 20:00 22.sýn
Sun 3/11 kl. 20:00 15.sýn Fös 15/11 kl. 20:00 19.sýn Lau 23/11 kl. 20:00 23.sýn
Fös 8/11 kl. 20:00 16.sýn Lau 16/11 kl. 20:00 20.sýn
Sprenghlægilegur gamanleikur!
Matthildur (Stóra sviðið)
Lau 2/11 kl. 13:00 64. s Sun 10/11 kl. 13:00 66. s Lau 23/11 kl. 13:00 68. s
Sun 3/11 kl. 13:00 65. s Sun 17/11 kl. 13:00 67. s Sun 24/11 kl. 13:00 69. s
Sýning ársins á Sögum - Verðlaunahátíð barnanna!
Stórskáldið (Nýja sviðið)
Sun 3/11 kl. 20:00 6.sýn Fös 8/11 kl. 20:00 7.sýn Sun 17/11 kl. 20:00 8.sýn
Spennandi könnunarleiðangur um hinar mörgu hliðar sannleikans.
Eitur (Litla sviðið)
Lau 2/11 kl. 20:00
frumsýning
Fim 14/11 kl. 20:00 7. s Sun 24/11 kl. 20:00 13. s
Sun 3/11 kl. 20:00 2. s Fös 15/11 kl. 20:00 8. s Fim 28/11 kl. 20:00 14. s
Fim 7/11 kl. 20:00 3. s Lau 16/11 kl. 20:00 9. s Fös 29/11 kl. 20:00 15. s
Fös 8/11 kl. 20:00 4. s Sun 17/11 kl. 20:00 10. s Sun 1/12 kl. 20:00 16. s
Lau 9/11 kl. 20:00 5. s Fim 21/11 kl. 20:00 11. s Mið 4/12 kl. 20:00 17. s
Sun 10/11 kl. 20:00 6. s Fös 22/11 kl. 20:00 12. s Fim 5/12 kl. 20:00 18. s
Hvað áttu eftir stærsta missi lífs þíns?
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 1/11 kl. 20:00 50.sýn Lau 9/11 kl. 20:00 52.sýn
Lau 2/11 kl. 20:00 51.sýn Fös 15/11 kl. 20:00 53.sýn
Aðeins örfáar sýningar í haust
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Fim 7/11 kl. 20:00 20.sýn Fim 14/11 kl. 20:00 22.sýn Fim 21/11 kl. 20:00
lokasýning
Mið 13/11 kl. 20:00 21.sýn Mið 20/11 kl. 20:00 23.sýn
Sýning ársins snýr aftur í örfá skipti!
Club Romantica (Nýja sviðið)
Mið 20/11 kl. 20:00 13.sýn Sun 24/11 kl. 20:00 15.sýn Fim 28/11 kl. 20:00 17.sýn
Fim 21/11 kl. 20:00 14.sýn Mið 27/11 kl. 20:00 16.sýn Lau 28/12 kl. 20:00 18.sýn
Allra síðustu sýningar.
Um tímann og vatnið (Stóra sviðið)
Þri 12/11 kl. 20:00 3.sýn Þri 26/11 kl. 20:00 4.sýn
Kvöldstund með listamanni.
HÚH! (Nýja sviðið)
Mið 6/11 kl. 20:00
lokasýning
Allra síðasta sýning!
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 23/11 kl. 20:00 20.sýn Lau 30/11 kl. 20:00 21.sýn
Kynntu þér matseðil Leikhúsbarsins á
borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 9/11 kl. 17:00 ALLRA
SÍÐASTA SÝNING
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Shakespeare verður ástfanginn (stóra sviðið)
Lau 2/11 kl. 19:30 auka Fös 15/11 kl. 19:30 auka Fös 29/11 kl. 19:30 11. sýn
Mið 6/11 kl. 19:30 7.sýn Lau 16/11 kl. 19:30 9. sýn
Sun 10/11 kl. 19:30 8. sýn Lau 23/11 kl. 19:30 10. sýn
Hrífandi og skemmtileg stórsýning fyrir áhorfendur á öllum aldri
Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) (Kassinn)
Lau 2/11 kl. 19:30 12.sýn Lau 23/11 kl. 19:30 auka Fös 29/11 kl. 19:30 auka
Mið 6/11 kl. 19:30 auka Sun 24/11 kl. 19:30 16. sýn Fös 6/12 kl. 19:30 18. sýn
Sun 10/11 kl. 19:30 14. sýn Fim 28/11 kl. 19:30 17. sýn
Ágengt og tragíkómískt nýtt íslenskt verk sem spyr stórra spurninga
Stormfuglar (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 17/11 kl. 19:30 5. sýn Fim 21/11 kl. 19:30 6. sýn Fös 22/11 kl. 19:30 7. sýn
Hinn rómaði sögumaður Einar Kárason stígur á svið
Gilitrutt (Brúðuloftið)
Lau 2/11 kl. 15:00 10.sýn Lau 9/11 kl. 13:00 Lau 9/11 kl. 15:00
LOKASÝNING
Brúðusýning fyrir alla fjölskylduna
Atómstöðin (Stóra Sviðið)
Fös 1/11 kl. 19:30 Frums Mið 13/11 kl. 19:30 4. sýn Lau 30/11 kl. 19:30 7. sýn
Fim 7/11 kl. 19:30 2. sýn Fim 14/11 kl. 19:30 5. sýn
Fös 8/11 kl. 19:30 3. sýn Fim 21/11 kl. 19:30 6. sýn
Nýtt og framsækið leikverk byggt á skáldsögu Nóbelskáldsins Halldórs Laxness
Guðmundur Steinsson - Leiklestraveisla
(Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 3/11 kl. 16:00
Stundarfriður
Fim 7/11 kl. 19:30 Kattholt Sun 10/11 kl. 16:00 Kattholt
Leiklestraveisla til heiðurs leikskáldinu Guðmundi Steinssyni í Þjóðleikhúskjall
Engillinn (Kassinn)
Lau 21/12 kl. 19:30 Frums Lau 28/12 kl. 19:30 3. sýn
Fös 27/12 kl. 19:30 2. sýn Sun 12/1 kl. 19:30 4. sýn
Leiksýning byggð á textum og myndlist eftir Þorvald Þorsteinsson
Leitin að jólunum (Brúðuloftið)
Fös 1/11 kl. 14:30 Lau 23/11 kl. 14:30 349. sýn Lau 30/11 kl. 14:30 355. sýn
Lau 16/11 kl. 11:00 343. sýn Sun 24/11 kl. 11:00 350. sýn Sun 1/12 kl. 11:00 356. sýn
Lau 16/11 kl. 13:00 344. sýn Sun 24/11 kl. 13:00 351.
sýn
Sun 1/12 kl. 13:00 357. sýn
Sun 17/11 kl. 11:00 345. sýn Sun 24/11 kl. 14:30 352. sýn Sun 1/12 kl. 14:30 358. sýn
Lau 23/11 kl. 11:00 347. sýn Lau 30/11 kl. 11:00 353. sýn
Lau 23/11 kl. 13:00 348. sýn Lau 30/11 kl. 13:00 354. sýn
Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyr
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200