Morgunblaðið - 01.11.2019, Page 40
Með líkamann að vopni nefnist sýn-
ing sem opnuð verður í galleríinu
Midpunkt í dag kl. 18. Á henni koma
saman ólíkar listakonur sem eiga
sameiginlegt að vinna með líkam-
ann og nýta efnivið sinn á kóreó-
grafískan hátt. Listakonurnar eru
Anna Kolfinna Kuran, Eilíf Ragn-
heiður, Elísabet Birta Sveinsdóttir,
Gígja Jónsdóttir, Margrét Bjarna-
dóttir, Saga Sigurðardóttir, Sigga
Soffía og Sóley Frostadóttir.
Átta listakonur með
líkamann að vopni
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 305. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
ÍR varð í gær fyrsta liðið til að vinna
KR í Dominos-deild karla í vetur.
Sigurinn var eflaust bragðgóður
fyrir Borche Ilievski og lærisveina
hans eftir tap fyrir KR í loka-
úrslitum á síðustu leiktíð og þá
staðreynd að Matthías Orri Sigurð-
arson færði sig yfir til KR frá ÍR í
kjölfarið. Keflavík er í efsta sæti
með fullt hús stiga. »33
ÍR-ingar fyrstir til
að vinna KR-inga
ÍÞRÓTTIR MENNING
Um síðustu helgi lauk Seminci, al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Val-
ladolid á Spáni, og hlaut Rúnar
Rúnarsson verðlaun sem besti
leikstjórinn, fyrir kvikmynd sína
Bergmál. Spænskir gagnrýnendur
hafa verið jákvæðir í garð kvik-
myndarinnar, sem er samsett úr
58 ótengdum atriðum sem rýna í
íslenskan samtíma í að-
draganda jóla. Berg-
mál var heimsfrum-
sýnd í aðalkeppni al-
þjóðlegu kvikmynda-
hátíðarinnar í
Locarno í Sviss
og hefjast
sýningar á
henni á hér
á landi 20.
nóvember.
Rúnar hlaut leikstjórn-
arverðlaun í Valladolid
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ítalski rithöfundurinn Valerio Gar-
giulo sendi nýlega frá sér skáldsög-
una Back to Thule, en áður kom út
bókin The Incredible Journey of a
Neapolitan Puffin í ritröðinni Valent-
ino’s Saga. Hann stefnir á að gefa út
þriðju bókina, sem fjallar um morð í
Vesturbænum, fyrir jól, en allar bæk-
ur hans fjalla um íslensk málefni.
Unnið er að þýðingum á bókum hans
á íslensku og ráðgert að þær komi út
á næsta ári.
Mömmustrákur
Bróðir Valerios kvæntist íslenskri
konu fyrir margt löngu. Valerio og
móðir þeirra heimsóttu hann 2001 og
Valerio segist þegar hafa heillast af
landinu. „Ég hef alltaf verið hrifinn af
draugasögum og því sem er yfirnátt-
úrulegt, hefðum og siðum, og Ísland
er stöðug uppspretta hugmynda fyrir
bækur mínar,“ segir hann. „Það er
svo auðvelt að finna sambandið á milli
lífsins og náttúrunnar hérlendis, sér-
staklega á landsbyggðinni.“
Eftir að hafa komið nokkrum sinn-
um til landsins flutti Valerio hingað
2013, lauk MA-námi í lögfræði frá
Háskólanum í Reykjavík og hefur
síðan starfað sem kennari. „Ég sinni
ritstörfum á kvöldin eftir vinnu og
svo um helgar,“ segir hann.
Fyrsta heimsóknin gaf tóninn.
Hann segir að ítalskir drengir séu
gjarnan miklir mömmustrákar og
hann sé engin undantekning. Í fyrr-
nefndri heimsókn mæðginanna hafi
þau gist í sama herbergi í húsi nálægt
Hellisgerði í Hafnarfirði í nokkrar
nætur. Hann segist ekki hafa getað
sofnað fyrstu nóttina vegna hræðslu.
„Allt í einu heyrði ég söng barns-
raddar, var skelfingu lostinn og vakti
mömmu. Þá heyrði ég nafn mitt
nefnt, mamma heyrði það líka og við
ákváðum að vaka alla nóttina. Um
morguninn sögðum við húsráðanda
frá þessu og hún róaði okkur með því
að segja að raddirnar væru fyrir góð-
um fyrirboða. Þetta atvik varð mér
hugljómun og ég byrjaði að skrifa um
íslensk málefni.“
Bækur Valerios fást í Iðu Ziemsen,
hjá Máli og menningu og í Bóksölu
stúdenta auk þess sem þær má kaupa
á netinu hjá til dæmis Amazon,
Barnes and Noble og Walmart. „Ég
hef fengið mjög jákvæð viðbrögð auk
þess sem gagnrýni á það sem betur
má fara hefur gagnast mér vel,“ segir
hann.
Valerio flutti frá Ítalíu 2006 og lítur
á Ísland sem sitt annað heimili. Hann
segist kunna best við sig í kyrrlátu
umhverfi og hann þurfi ekki að fara
langt til þess að komast í snertingu
við náttúruna. Hann segist eiga ís-
lenskum skáldum margt að þakka
enda hafi bækur þeirra aukið áhuga
og ástríðu fyrir öllu sem íslenskt sé.
„Ég dýrka íslenskar bókmenntir og
eru Halldór Laxness, Sjón, Arnaldur
Indriðason og Yrsa Sigurðardóttir
uppáhaldshöfundar mínir.“
Morgunblaðið/Eggert
Rithöfundur og kennari Ítalinn Valerio Gargiulo með nýjustu bók sína, sem kemur væntanlega út á íslensku 2020.
Fyrirboði í Firðinum
Ítalski rithöfundurinn Valerio Gargiulo skrifar um ís-
lensk málefni í bókum sínum Íslenskar þýðingar í vinnslu