Morgunblaðið - 30.11.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
20%
afsláttur
Allt að
fimmtudag, föstudag
og laugardag
Kringlunni - michelsen.is
BLACK
FRIDAY
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Jólahátíð fatlaðra verður á Hilton
Reykjavík Nordica næstkomandi
miðvikudagskvöld og er gert ráð fyr-
ir um 2.000 gestum víða að.
André Bachmann hefur staðið fyr-
ir skemmtuninni frá byrjun og í
samvinnu við hótelið undanfarin ár.
„Umfangið hefur breyst mikið frá
því ég byrjaði með fyrstu skemmt-
unina í Kassagerðinni,“ segir hann
og bendir á að hann hafi viljað gleðja
fjölfatlaðan son vinar síns með þess-
um hætti. „Þá var ég bara einn á
sviði með hljómsveit minni og 40 til
50 gestir, en undanfarin tvö ár hafa
mætt um tvö þúsund manns og ég
geri ráð fyrir svipuðum fjölda í ár.“
Margir af landsbyggðinni
Í fyrstu voru gestir einkum úr
borginni en nú koma þeir víða að
eins og til dæmis frá Sólheimum,
Selfossi, Suðurnesjum og Akranesi.
„Þetta er bara skemmtilegt,“ segir
André um þennan fasta viðburð í
desember.
Formleg dagskrá hefst klukkan
19.30 en húsið verður opnað klukku-
tíma fyrr. Jóhannes Guðjónsson
leikur á píanó í anddyri og skóla-
hljómsveit Árbæjar og Breiðholts
leikur létt lög frá klukkan 18.45.
Fram koma ýmsir skemmtikraftar
og tónlistarmenn. Þar má nefna
Ladda, Sveppa, Birgittu Haukdal,
Pál Óskar, Steinda, Heiðu Ólafs,
Maríu Ólafsdóttur, Geir Ólafs, Ingó
Veðurguð, Dimmu, Fókus-hópinn,
Jógvan og Með okkar augum. Kynn-
ar verða Sigmundur Ernir og Með
okkar augum. Dagskránni lýkur um
klukkan 21.30.
Morgunblaðið/Eggert
Skemmtun Sveppi skemmti á jólahátíð fatlaðra fyrir tveimur árum og verður á sínum stað á miðvikudagskvöld.
Gestir víða að hjá fötluðum
Framkvæmdir standa nú yfir við nýtt fjölnota
íþróttahús ÍR í Mjódd og var stálgrind þess reist á
dögunum. Nýja húsið mun bæta íþróttaaðstöðuna
í Breiðholti til muna. Húsið verður rúmir 4.300
fermetrar að stærð og samanstendur af fjölnota
íþróttasal sem er á stærð við hálfan knatt-
spyrnuvöll auk æfingasvæðis fyrir frjálsar íþrótt-
ir. Hliðarbygging verður tæpir 1.300 fermetrar.
Áætlaður kostnaður er 1,2 milljarðar króna.
Morgunblaðið/Hari
Nýtt íþróttahús ÍR tekur á sig mynd í Mjódd
Seltjarnarnesbær þarf, skv. sýknu
Héraðsdóms Reykjavíkur í gær,
ekki að greiða ríkinu 102 millj.
króna kr. vegna byggingar lækn-
ingaminjasafns á Nesinu. Lækna-
félag Íslands, Seltjarnarnesbær og
ríkið hófu framkvæmdir við safn-
hús 2007 sem lögðust af þegar ljóst
varð að kostnaður yrði meiri en
ráðgert var. Ráðgert var að Sel-
tirningar legðu 110 millj. kr. í
púkkið. Nýlega krafðist ríkið þess
að Seltirningar greiddu ríkissjóði
sitt framlag, sem var neitað enda
hefði bærinn aldrei leyst húsið til
sín. Var þá leitað til héraðsdóms og
þannig fékkst niðurstaða. Á sl. ári
auglýsti Seltjarnarnesbær safn-
húsið til sölu, sem deilt var um
hvort mætti. Af því spunnust deilur.
Seltjarnarnesbær sýknaður
Seltjarnarnes Lækningaminjasafnið
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Biðla þarf til almennings að skjóta
ekki flugeldum eða brenna blys inni í
íbúðahverfum, að sögn Gunnars
Guðmundssonar lungnalæknis.
„Ég bý á Seltjarnarnesi og þar
hikar fólk ekki við að fara rétt út fyr-
ir dyr og kveikja í risastórum flug-
eldum,“ sagði Gunnar. „Af þessu
verður gríðarlega mikil mengun og
fólk stendur mjög nálægt þessu. Við
vitum ekki um langtímaáhrifin af
þessari mengun, sérstaklega á lítil
börn. Það er alltaf að skýrast betur
og betur að lungun okkar vaxa og
þroskast til 20 ára aldurs. Margt get-
ur truflað þennan vöxt og þroska. Nú
eru menn að velta því fyrir sér hvort
svona gífurleg mengun, þótt hún sé í
mjög stuttan tíma, geti haft lang-
tímaáhrif. Við bara vitum það ekki.“
Hann telur mikilvægt að halda börn-
um fjarri mestu flugeldamenguninni
vegna mögulegra áhrifa hennar.
Gunnar sagði það hafa verið gott
skref hjá mörgum sveitarfélögum í
fyrra að afmarka flugeldaskotsvæði í
almenningsgörðum og á opnum
svæðum.
„Okkur langar að biðla til sveitar-
félaga að birta upplýsingar um hvar
séu góðir staðir til að skjóta flugeld-
um svo það sé ekki verið að gera
þetta alveg ofan í húsum fólks. Það
er strax betra ef þetta hverfur úr
íbúðahverfunum,“ sagði Gunnar.
Erfitt fyrir lungnasjúklinga
Hann segir að lungnasjúklingar
séu byrjaðir að undirbúa áramótin.
Þeir passi sig að eiga nóg af lyfjum
og séu farnir að kvíða því að geta
ekki notið lífsgæða eins og að fara út
og að vera með öðru fólki vegna loft-
mengunar.
Hann segir að flugeldaskothríð í
íbúðahverfum valdi því að fólk með
lungnasjúkdóma geti ekki opnað
glugga eða verið úti. Þannig einangr-
ist þetta fólk. Það flýi jafnvel þangað
sem ekki er flugeldamengun um ára-
mótin. „Flugeldamengunin verður
alveg gífurleg og við höfum sett Evr-
ópumet í mengun! Fólk finnur al-
mennt til samkenndar með lungna-
sjúklingum og hefur áhuga á að
breyta þessu,“ sagði Gunnar.
Auk mikillar loftmengunar af
völdum flugelda nefndi Gunnar að
þeim fylgdi óhemju mikið rusl, ekki
síst plastmengun sem nú er reynt að
takmarka. Hann segir að ekki megi
gleyma því að flutt séu inn um 600
tonn af flugeldum og að það brenni
ekki nærri því allt.
Halda á börnum frá flugeldamengun
Lungnalæknir segir að lungun þroskist til 20 ára aldurs Ekki er vitað um langtímaáhrif flugelda-
mengunar Sveitarfélög skilgreini flugeldaskotsvæði Lungnasjúklingar farnir að gera ráðstafanir
Morgunblaðið/Hari
Flugeldar Þeim fylgir loftmengun
sem lungnasjúkir finna mikið fyrir.
Alls 58 manns leituðu frá því klukk-
an 20 í fyrrakvöld til jafnlengdar í
gær á bráðamóttöku Landspítalans
vegna hálkuslysa. Hálka lá víða yfir
götum og gangstéttum á höfuð-
borgarsvæðinu sem varð til þess að
fólk datt; sumir fótbrotnuðu, aðrir
báru fyrir sig höndina í fallinu og
brotnuðu og einnig var nokkuð um
að fólk dytti og fengi höfuðhögg,
þung sem létt. Engin þessara
óhappa teljast þó alvarleg, sagði
Jón Magnús Kristjánsson, yfirlækn-
ir bráðalækninga, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
„Hingað á bráðamóttökuna komu
margir í morgunsárið; fólk sem
datt í hálkunni á leiðinni í vinnu eða
skóla. Þetta var mjög annasamur
dagur. Sem betur fer leituðu marg-
ir þó til heilsugæslunnar með
meiðsli sín sem kom í veg fyrir að
álagið hér yrði mjög mikið. Við
þurftum til dæmis ekki að kalla til
viðbótarmannskap eins og stundum
gefur gerst á hálkudögum, sem við
þekkjum svo vel hér á bæ,“ segir
Jón Magnús. sbs@mbl.is
Nær 60 á sjúkrahús
vegna hálkuslysa