Morgunblaðið - 30.11.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
Hvítari tennur – bjartara bros
NuPearl®32x Advanced Teeth Whitening
er sérlega auðvelt í notkun.
Mjúkur sílikon gómur, Led ljós, hvíttunarefni og
hvíttunarpenni saman í kassa og svo er hægt að kaupa áfyllingar
Náttúruleg innihaldsefni og jurtir.
■ Getur hvíttað um allt að 8 tóna
■ Lýsir bletti á tönnum sem myndast með
árunum vegna kaffdrykkju, reykinga, víns ofl.
■ Öruggt fyrir glerunginn og extra milt vegna náttúrulegra
innihaldsefna og jurta.
■ Hentar einnig viðkvæmum tönnum
■ Mælt með af tannlæknum
■ Inniheldur ekki: latex, parabena, súlföt, natríum flúoríð,
Triclosan, PEG/PPG, Salicylate, gervi litar- eða
bragðefni og glúten.
Inniheldur ekki peroxíð og hentar því einnig vel fyrir viðkvæmar tennur.
Sölustaðir: Flest apótek & Fjarðarkaup.
Þó að rök hnígi gegn því að ráðastí svokallaða borgarlínu er henni
nuddað áfram og veruleg hætta orð-
in á að ráðist verði í framkvæmdina,
sem áætlað er að kosti óheyrilegar
fjárhæðir, og er þá ekki einu sinni
reiknað með framúrkeyrslunum sem
allar líkur eru á.
Þórarinn Hjalta-son umferðar-
verkfræðingur ritaði
um umferðar-
ástandið í Reykjavík
í vikunni og benti á
að hægt væri að fara
mun hagkvæmari
leiðir til að laga um-
ferðina. „Áætlaður
kostnaður við full-
gerða borgarlínu er
70 milljarðar kr.
Ódýrt hraðvagna-
kerfi upp á 15-25
milljarða kr. myndi
gera nánast sama gagn og valda
mun minni umferðartöfum á fram-
kvæmdatíma. Í samgönguáætlunum
fyrir borgarsvæði af svipaðri stærð
og höfuðborgarsvæðið er sjaldgæft
að gert sé ráð fyrir umfangsmiklu
sérrými fyrir hraðvagna,“ skrifar
Þórarinn.
Bæjarstjórn Seltjarnarness sam-þykkti í vikunni samkomulag
um samgöngumál á höfuðborgar-
svæðinu, þar með talda borgarlínu.
Magnús Örn Guðmundsson, forseti
bæjarstjórnar, sýndi hins vegar
ábyrga afstöðu, lagðist gegn sam-
þykktinni og benti á að áætlanir um
„heildarkostnað og fjármögnun
væru í besta falli óljósar og engin
umræða hefði farið fram um rekstr-
arforsendur og rekstrarkostnað
Borgarlínunnar.“
Hvernig ætla bæjar- og borgar-fulltrúar sem styðja þetta að
útskýra það fyrir kjósendum þegar
fjárhagsáætlanir bregðast eða ár-
angurinn af öllu saman verður hinn
sami og af viðbótarfjárveitingum til
strætó, sem sagt enginn?
Þórarinn
Hjaltason
Óábyrg samþykkt
STAKSTEINAR
Magnús Örn
Guðmundsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
mun í næsta mánuði sækja tvo við-
burði í útlöndum, þ.e. í Berlín og
Madríd, ásamt föruneyti. Fyrir-
huguð ferðalög voru kynnt á fundi
borgarráðs á fimmtudaginn og urðu
tilefni gagnrýni.
Fyrri ferð borgarstjóra er til Ber-
línar, þar sem hann mun taka þátt í
mótttöku og verðlaunaathöfn Evr-
ópsku kvikmyndaverðlaunanna 6. og
7. desember. Með í för verður Arna
Schram, sviðsstjóri menningar- og
ferðamálasviðs.
Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins,
Vigdís Hauksdóttir, lagði fram bók-
un og sagði m.a: „Reykjavíkurborg
er að verða stærsti skemmtistaður í
heimi fyrir borgarstjóra og útsvars-
greiðendur borga brúsann. Nú þeg-
ar er búið að samþykkja 135 milljóna
útgjöld frá borginni vegna þessa
verkefnis.“ Hún bætti við að nú væri
ekki verið að hafa áhyggjur af
kolefnislosun sem talað væri um af
miklum móð vegna þeirra sem not-
uðu fjölskyldubílinn á götum
Reykjavíkur.
Þá er fyrirhuguð þátttaka borgar-
stjóra í Loftslagsráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Madríd 9. til 11.
desember. Með í för verða Pétur
Krogh Ólafsson aðstoðarmaður og
Líf Magneudóttir, formaður um-
hverfis- og heilbrigðisráðs.
Vigdís var áfram í bókunarham:
„Hér birtist hræsnin í sinni tærustu
mynd. Nú stendur til að fleiri hundr-
uðum manna ef ekki þúsundum stigi
upp í flugvélar og fljúgi til Madríd á
loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna til að funda um loftslagsmál.
Þarna kristallast „við“ og „þið“.
Þessir „við“/elítan, ferðast um heim-
inn eins og enginn sé morgundagur-
inn til að ákvarða álögur á almenn-
ing sem lifa hefðbundnu lífi og leyfa
sér af og til að ferðast.“
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins,
Kolbrún Baldursdóttir, bókaði m.a-
.að henni þætti það bruðl að borg-
arbúar ættu að kosta þrjá ein-
staklinga á loftslagsráðstefnu.
sisi@mbl.is
„Hræsnin birtist í
sinni tærustu mynd“
Dagur B.
Eggertsson
Vigdís
Hauksdóttir
Utanferðir borgarstjóra gagnrýndar
Brekkuþorp í Mjóafirði var í gær
tengt við ljósleiðara og þar með eru
allir byggðarkjarnar landsins komnir
í samband við þessa mikilvægu þjóð-
braut fjarskiptanna. Mjófirðingar,
undir forystu Sigfúsar Vilhjálms-
sonar, fögnuðu þessum tímamótum
með athöfn í gær. Ljósleiðaravæðing
í dreifbýli hefur gengið mjög vel á síð-
ustu árum með verkefninu Ísland
ljóstengt, sem fjarskiptasjóður hefur
umsjón með. Með styrkjum til sveit-
arfélaga hefur verið unnið frá 2016 að
því að tengja ljósleiðara í allar byggð-
ir og sveitabýli landsins.
Verkefnið í Mjóafirði var unnið í
samstarfi fjarskiptasjóðs, Neyðar-
línunnar, Rarik, Mílu, Fjarðabyggðar
og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Ljós-
leiðarinn leysir af hólmi fjallastöð
fjarskipta og loftlínu rafmagns. „Það
var orðið tímabært að tengja ljósleið-
ara hingað og ánægjulegt að ljúka
hringnum hér,“ sagði Sigurður Ingi
Jóhannsson, ráðherra fjarskipta-
mála, í Mjóafirði í gær.
Fjarskiptasjóður og Neyðarlínan
ohf. sömdu nýlega um allt að 70 m.kr.
framlag sjóðsins til verkefna sem
miða að uppbyggingu fjarskipta-
innviða utan markaðssvæða. Lagning
ljósleiðara til Mjóafjarðar og hring-
tenging byggðarlaga eystra falla und-
ir þetta samkomulag. Undir sömu
formerkjum á svo að leggja ljósleið-
ara yfir Kjöl. sbs@mbl.is
Ljósleiðarinn kominn í Mjóafjörð
Allir byggðarkjarnar landsins nú tengdir upplýsingahraðbrautinni
Ljósið Sigfús á Brekku og Sigurður
Ingi Jóhannsson ráðherra.