Morgunblaðið - 30.11.2019, Blaðsíða 14
vatni, að sögn Sigurðar Helga
Ólafssonar, framkvæmdastjóra
Stolt Sea Farm á Íslandi.
Á Vísindavefnum kemur fram
að styrjur finnast í ám og vötnum
í Norður-Ameríku, Evrópu og As-
íu. Þær eru tannlausar og lifa því
einkum á ýmsum botnlægum dýr-
um svo sem krabbadýrum, sam-
lokum og smáfiskum. Á Reykja-
nesi fá þær fóður sem er sérstak-
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Styrjurnar i keri Stolt Sea Farm á
Reykjanesi braggast vel, reyndar
betur en menn þorðu að vona. Þær
eru núna fimm ára gamlar og er
reiknað með að þær verði komnar
á hrygningaraldur eftir um tvö ár.
Þá verður þeim slátrað og hrognin
tekin úr þeim, en styrjuhrogn eða
kavíar þykja lostæti og verð þeirra
er hátt á mörkuðum víða um heim.
Þær þyngstu 80-90 kíló
Alls eru um 150 styrjur nú í til-
raunaeldi í sérstöku styrjukeri á
Reykjanesi og eru þær stærstu
og þyngstu orðnar um 80-90 kíló
að þyngd, rúmlega metri á lengd.
Styrjur eru stórvaxnir fiskar og
geta orðið til muna stærri, mis-
jafnt eftir tegundum, en tegundir
styrju eru yfir 20. Styrjurnar á
Reykjanesi eru af tegundinni
Transmontanus. Fullorðnar í
náttúrunni geta þær orðið allt að
tveir metrar á lengd og 150 kíló
að þyngd. Þær geta lifað í um 20
ár.
Það sem gerir verkefnið á
Reykjanesi sérstakt er að styrj-
urnar eru aldar í söltu, heitu sjó-
vatni. Í fjórum eldisstöðvum Stolt
Sea Farm í Kaliforníu eru styrj-
urnar hins vegar aldar í fersk-
lega ætlað þeim og er þeim gefið
tvisvar á dag.
Áhersla á flúru á Reykjanesi
Alls er Stolt Sea Farm með
fimmtán landeldisstöðvar á Spáni,
Portúgal, Bandaríkjunum og Nor-
egi. Framleiðslugetan árlega er
5.400 tonn af sandhverfu, 850 tonn
af Senegal-flúru og um tíu tonn af
styrjuhrognum. Ekki er ákveðið
hvort framhald verður á styrjueldi
á Reykjanesi að loknu tilrauna-
verkefninu sem nú er í gangi.
Áherslan í starfseminni á
Reykjanesi liggur í Senegal-
flúrunni og þar var fyrsta slátrun í
ársbyrjun 2015. Stöðin framleiðir
um helming ársframleiðslu Stolt
Sea Farm af flúru og að sögn Sig-
urðar Helga eru ekki nema um 20
ár síðan farið var að ala þessa teg-
und. Hann segir að þekkingin á
þessari starfsemi innan fyrir-
tækisins hafi að stórum hluta verið
á Spáni, en smátt og smátt hafa
starfsmenn hérlendis náð góðum
tökum á framleiðslunni.
Hann segir að nú séu flutt út
um átta tonn af flúru á viku, um
400 tonn á ári. Fiskurinn fer heill
og ferskur með flugi til Bandaríkj-
anna og Evrópu.
Stórvaxnar styrjur í eldi á Reykjanesi
Spennandi þróunarverkefni hjá Stolt Sea Farm á Reykjanesi Árangur umfram væntingar
Hrognin eftirsótt 400 tonn af Senegal-flúru flutt út til Evrópu og Bandaríkjanna á ári
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framandi fiskar Styrjurnar hafa þrifist vel í þróunarverkefninu á Reykjanesi. Þær þyngstu eru orðnar 80-90 kíló og einhver sagði að þær minntu á blöndu af hákarli og krókódíl.
Fimm ára Styrjurnar verða komnar á hrygningaraldur eftir um tvö ár.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stolt Sea Farm Sigurðar Helgi Ólafsson og James Hall, þróunarstjóri
Ljósmynd/Sigurður Helgi Ólafsson
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
Mikil sala!
Góður sölutími framundan.
Óskum eftir öllum tegundum
eigna á skrá.
Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Halla Unnur Helgadóttir
Viðskiptafræðingur / löggiltur fasteignasali
s 659 4044 / halla@gimli.is