Morgunblaðið - 30.11.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
Hin fullkomna þrenna
Meltingarensím tryggja góða meltingu og geta komið í veg
fyrir ýmiskonar meltingarvandamál og kvilla því tengdu.
Vel samsett boost, einu sinni á dag, eykur
orkuna, kemur meira jafnvægi á blóðsykurinn.
Candéa
Byggir upp og kemur jafnvægi
á þarmaflóruna. Öflugt fyrir
ónæmiskerfði og vinnur á
candéa sveppnum.
Betri melting
Aukin orka
Öflugra ónæmiskerfi
Meltingin og þarmaflóran er
grunnur að góðri heilsu
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tæplega 80 nýjar íbúðir hafa selst á
nokkrum miðborgarreitum síðan í
byrjun september. Miðað við að hver
íbúð kosti 50 milljónir er söluverð-
mætið um 4 milljarðar króna.
Fyrstu íbúðirnar komu í sölu á
Frakkastígsreit í árslok 2017 og
hafa síðan selst á fjórða hundrað
íbúðir á nokkrum reitum. Slíkt fram-
boð íbúða í efri verðflokkum í mið-
borginni á svo skömmum tíma er án
fordæma í sögu borgarinnar.
Á móti kemur að íbúðum hefur í
einhverjum tilvikum fækkað með
niðurrifi. Má þar nefna fjölbýlis-
húsið Hverfisgötu 42 en það hús var
við hlið Samhjálparhússins.
Fram kom í Morgunblaðinu í
fyrradag að verktakar hefðu lækkað
verð íbúða í miðborginni. Virðist það
hafa hreyft við markaðnum.
Eftir söluna í haust er búið að
selja hátt hlutfall íbúða á Hverfis-
götu 96-98, Frakkastígsreit og á
Höfðatorgi. Þá er búið að selja um
helming íbúða á Brynjureit og tæp-
an fjórðung á Hverfisgötu 85-93.
Helmingurinn verið seldur
Á Hafnartorgi við Arnarhól er
búið að selja helming íbúða en þær
eru almennt dýrari en íbúðirnar við
Hverfisgötu. Þá er búið að selja 19
íbúðir í tveimur nýjum fjölbýlis-
húsum á Kirkjusandi. Reiturinn er
skilgreindur sem miðborgarsvæði
en hann er á jaðri þess.
Uppbygging 70 íbúða á Austur-
höfn er langt komin en þar sem upp-
lýsingar um hlutfall seldra íbúða er
ekki gefið upp á söluvef verkefnisins
eru þær ekki taldar með hér.
Þær íbúðir eru markaðssettar
sem lúxusíbúðir og verðið eftir því.
Þá eru íbúðir á Hlíðarenda mark-
aðssettar sem miðborgaríbúðir en
þær eru heldur ekki taldar með hér.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í síðustu viku höfðu þá selst
um 120 íbúðir á E-reit og F-reit á
Hlíðarenda. Á reitum C, D, E og F
verða um 670 íbúðir.
Samanlagt hafa því selst 430
íbúðir í miðborginni og á Hlíðar-
enda. Við það má bæta að íbúðir í
Efstaleiti, sem einnig eru skil-
greindar sem miðborgaríbúðir, hafa
selst vel. Þar hafa selst um 300 íbúð-
ir en síðasti áfanginn kemur til af-
hendingar næsta sumar.
Milli 600 og 700 þúsund
Samanlagt hafa því selst 730 íbúð-
ir á miðborgarreitum, Hlíðarenda og
í Efstaleitinu á síðustu misserum.
Almennt eru íbúðirnar vandaðar
og húsin með bílakjallara. Rætt er
um að algengt meðalverð í Efstaleit-
inu sé um 650 þúsund á fermetra en
nær 700 þúsund krónum í miðborg-
inni. Fermetraverðið getur verið
enn hærra á minnstu íbúðunum.
Með verðið og fjölda seldra íbúða í
huga verður markaðurinn að teljast
hafa verið nokkuð líflegur.
Horfa til eiginfjárlána
Pálmar Harðarson, fram-
kvæmdastjóri Þingvangs, sem
byggir m.a. Brynjureit, segir verk-
taka bíða eftir útfærslu boðaðra
hlutdeildarlána. Ef lánin verði veitt
til kaupa á íbúðum sem þegar hafa
verið byggðar geti það haft örvandi
áhrif á markaðinn. Bankar láni nú
fyrst og fremst til smíði félagslegra
íbúða sem aftur muni koma niður á
framboði annarra íbúða eftir 1-2 ár.
Seldu 80 miðborgaríbúðir í haust
Verðlækkun á nýjum íbúðum í miðborginni virðist hafa örvað sölu verktaka á undanförnum vikum
Samtals hafa um 730 íbúðir selst á miðborgarreitum, Hlíðarenda og í Efstaleiti á síðustu misserum
3
4
13
6
8
9
10
15
16
14
11
18
19
26
25
20
22
23
27
1
7 21
2
12
Óseldar íbúðir í miðborg Reykjavíkur
Salan síðan í júní og
hlutfall seldra íbúða*
Kortagrunnur: Stamen
*Samkvæmt söluvefjum 28.11. 2019.
**Heimildir: Kynningarefni borgarstjóra,
fréttasafn Morgunblaðsins, kynnt deiliskipulag.
17
24
Væntanlegt** U.þ.b. fjöldi
14 Austurhöfn við Hörpu 70
15 Borgartún 41 30
16 Hverfi sgata 88-92 30
17 Ingólfstorg 16
Samtals 146
Dæmi um verkefni í bið eða á teikniborðinu U.þ.b. fjöldi
18 F-reitur Kirkjusandi 30 23 Héðinsreitur 330
19 Annar íb.turn á Höfðatorgi 100 24 Snorrabraut 60 49
20 Borgartún 24 65 25 Frakkastígur 1 20
21 Borgartún 34-36 86 26 Guðrúnartún 100
22 Vesturbugt 176 27 Byko-Steindórsreitur 80
Samtals 1.036
Íbúðir í söluferli Fjö
ld
i
Se
ld
ar
26
.6
. 2
01
9
Se
ld
ar
4.
9.
2
01
9
Se
ld
ar
28
.11
. 2
01
9
Se
lda
r
síð
an
4.
9.
Hl
ut
fa
ll
se
ld
ra
íb
.
Ós
el
da
r í
b.
1 Höfðatorg 94 64 67 77 10 82% 17
2 Stuðlaborg, Kirkjus. 77 6 11 12 1 16% 65
3 Frakkastígsreitur 68 37 52 59 7 87% 9
4 Hverfi sgata 85-93 70 10 17 24 7 34% 46
5 Hverfi sgata 94-96 38 16 19 24 5 63% 14
6 Hafnartorg 70 22 31 35 4 50% 35
7 Brynjureitur 70 0 0 34 34 49% 36
8 Klapparstígur 30 11 8 11 10 -1 91% 1
9 Klapparstígur 28 4 0 1 1 0 25% 3
10 Tryggvagata 13 38 25 27 27 0 71% 11
11 Borgartún 28 21 0 0 0% 21
12 Sólborg, Kirkjusandi 52 7 7 13% 45
13 Hverfi sgata 84 og 86 6 0 0 0% 6
Samtals 619 188 236 310 74 50% 309
5
Morgunblaðið/Eggert
Brynjureitur Ein af smærri íbúðunum sem eru í sölu á reitnum.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, segir hugmyndir um að hlut-
deildarlán muni bjóðast fólki sem
hafi ekki átt íbúð í nokkur ár. Með
því muni lánin bjóðast þeim sem
misstu íbúðir í hruninu.
Hlutdeildarlánin eru einnig
nefnd eiginfjárlán en með þeim lán-
ar ríkissjóður vaxtalaust lán til
fyrstu kaupenda.
Fram kom í samtali við Ásmund
Einar Daðason, félags- og barna-
málaráðherra, í Morgunblaðinu í
fyrradag að ekki sé búið að ákveða
hámarksfjárhæð lánanna. Þá hafi
ekki verið ákveðið hvort lánin renni
eingöngu til nýbygginga sem flokk-
ast sem hagkvæmt húsnæði.
Því er erfitt að meta áhrifin og
umfangið á þessari stundu.
Ríkið endurheimtir hlutann
Hugmyndin er að ríkið endur-
heimti lánsféð að tilteknum tíma
liðnum við sölu íbúðarinnar. Til
dæmis eftir aldarfjórðung.
Ragnar Þór segir til skoðunar að
eiginfjárlánin verði veitt til kaupa á
íbúðum sem komu á markað frá og
með tiltekinni dagsetningu. Með því
geti lánin nýst til kaupa á íbúðum
sem eru tilbúnar til afhendingar.
Hlutdeildar-
lánin verði víta-
mínsprauta fyrir
byggingarmark-
aðinn. Þau geti
því skapað verk-
efni fyrir iðn-
aðarmenn nú
þegar niður-
sveifla sé hafin í
hagkerfinu.
Þannig geti lánin
verið tæki til sveiflujöfnunar.
Hámark til skoðunar
Huga þurfi að því að úrræðið
þrýsti ekki upp fasteignaverði.
Það sé eitt af því sem starfshópur
ráðherra hafi til skoðunar.
„Við viljum skapa hvata fyrir
verktaka til að byggja réttar gerðir
íbúða. Við erum því að skoða að
setja hámark á hversu mikið
tveggja, þriggja og fjögurra her-
bergja íbúðir mega kosta. Þannig
megi koma í veg fyrir að lánin ýti
undir brask og sölu íbúða sem þess-
ir hópa eru ekki að kalla eftir. Ef
það væri til dæmis aðeins eitt há-
mark, segjum 45 milljónir, gæti það
skapað mikið framboð nýrra íbúða
á því verði,“ segir Ragnar Þór.
Fólk sem missti
íbúðir fái lánin
Hlutdeildarlánin mögulega útvíkkuð
Ragnar Þór
Ingólfsson