Morgunblaðið - 30.11.2019, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
Dalsbraut 3, 260 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Fallegar 3ja og 4ra herbergja íbúðir í nýbyggingu.
Fullbúnar íbúðir með gólfefnum og eldhústækjum
- Lyftuhús
- Klætt að utan
- Sérinngangur
- Svalagangar vindvarðir
- Stórar svalir
- Afhending vor 2020
VERÐ FRÁ AÐEINS KR. 29.900.000
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fjölmennur karlakór breytist auð-
vitað alltaf eitthvað á löngum tíma,
því söngmenn koma og fara. Mikil-
vægast er þó að halda sama hljómi
og stemningu, rétt eins og okkur
hefur tekist,“ segir Friðrik S. Krist-
insson, stjórnandi Karlakórs
Reykjavíkur. Vikulegar æfingar
kórsins í haust hófust samkvæmt
venju upp úr miðjum september og
segja má að rauði þráðurinn í starf-
inu á haustin sé undirbúningur fyrir
aðventutónleikana. Þeir eru jafnan
haldnir í Hallgrímskirkju og meðal
margra er fastur liður á aðventunni
að sækja tónleikana, sem hafa yfir
sér hátíðlegan blæ.
Forskot á sæluna
í Stykkishólmi í dag
Að þessu sinni verður tekið for-
skot á sæluna því í dag, laugardag-
inn 30. nóvember, heldur kórinn tón-
leika í Stykkishólmskirkju sem
hefjast kl. 16. Þar verða jólalögin
áberandi, en þetta er sama efnis-
skráin og flutt verður á aðventu-
tónleikum kórsins í Hallgrímskirkju
dagana 14. og 15. desember.
„Þessi þrjátíu ár mín sem stjórn-
andi kórsins hafa verið skemmtileg.
Mér finnst gaman að fara með mín-
um mönnum í Stykkishólm og halda
tónleika þar, í mínum heimabæ,“
segir Friðrik S. Kristinsson.
Ó, helga nótt
og Gleð þig, særða sál
Meðal laga sem flutt verða á tón-
leikunum eru m.a. Sjá himins opnast
hlið við ljóð Björns Halldórssonar,
Gleð þig, særða sál; ljóð Stefáns frá
Hvítadal við lag Sigvalda S. Kalda-
lóns sem einnig samdi lag við sálm-
inn Nóttin var sú ágæt ein, en það
ljóð er eftir sr. Einar Sigurðsson í
Eydölum (1539-1629). Einnig verða
flutt lögin Ó, helga nótt, Guðs kristni
í heimi, Ave María og Fögur er fold-
in. Sömuleiðis verða sungin nokkur
lög við texta eða ljóð eftir kórfélaga,
þá Vigfús M. Vigfússon, Skúla Páls-
son og Eggert Benedikt Guðmunds-
son, sem er formaður kórsins.
„Starfið og þátttakan í kórstarfinu
hefur gefið mér mikið,“ segir Egg-
ert. „Ég byrjaði í kórnum fyrir rúm-
um sex árum en tónlistaráhuginn
hefur alltaf fylgt mér. Á mínum fyrri
vinnustöðum, svo sem HB Granda
og N1, var auðvitað talið í og stofnuð
hljómsveit. Á núverandi vinnustað,
Grænvangi, sem hýstur er hjá Ís-
landsstofu, er starfandi hljómsveit
sem ég er að reyna að troða mér í,
svona til viðbótar við söng með
karlakórnum sem er mjög skemmti-
legur. Kór skipaður hátt í 80 körlum
er líka öflugt hljóðfæri og gaman að
vera hluti af þeirri stóru heild.“
Lögin sem Eggert hefur samið
texta við sem sungnir verða á tón-
leikunum nú eru Herrar glæstra
halla og Aðventuauðna; hvort
tveggja erlend lög. Sjálfur vill for-
maðurinn þó ekki gera mikið úr
þessum þætti málsins, þótt hann við-
urkenni að vera einhvers konar
skúffuskáld eins og þorri Íslendinga.
„Stundum gerist að stjórnandinn
kemur með lög sem hann vill texta
við og leitar þá til okkar kórfélag-
anna. Og þá bara gengur maður í
verkefnið og semur texta.“
Einsöngur og blásarar
Einsöngvari með Karlakór
Reykjavíkur á aðventutónleikunum
sem nú standa fyrir dyrum er Sigrún
Pálmadóttir sópran, sem kemur úr
Bolungarvík. Orgelleikari er Lenka
Mátéová, trompetleikarar þeir Guð-
mundur Hafsteinsson og Eiríkur
Örn Pálsson, Eggert Pálsson leikur
á páku og Jóhann Björn Ævarsson á
horn. Kynnir verður Einar Örn Stef-
ánsson, þekktur sem fréttamaður og
útvarpsþulur fyrr á árum.
Karlakórinn er öflugt hljóðfæri
Aðventusöngurinn er hafinn Hljómur og stemning Karlakór Reykjavíkur verður í Stykkis-
hólmi í dag Í heimabæ stjórnandans Lög við texta eftir formann kórsins eru á efnisskránni
Árbæjarkirkja í Reykjavík stendur
á morgun, 1. desember, fyrir svo-
nefndum kirkjudegi. Fyrsta sunnu-
dag í aðventu ber upp á 1. desem-
ber þetta árið, á fullveldisdegi
Íslands. Frá því að Árbæjarsöfn-
uður var stofnaður hefur fyrsti
sunnudagur í aðventu átt stóran
sess í lífi hans. Mikið er lagt í dag-
inn bæði af leikum og lærðum innan
safnaðarins, eins og það er orðað í
tilkynningu.
„Dagurinn markar upphafið að
undirbúningi jóla. Má segja að
kirkjan fari þá í búning eftirvænt-
ingar og hátíðar,“ segir enn fremur
í tilkynningunni, en dagurinn hefst
með barna- og fjölskyldusamveru
kl. 11. Tendrað verður á fyrsta
kertinu, spádómskertinu, á
aðventukransinum. Sýnt verður
jólaleikritið Strákurinn sem týndi
jólunum. Aðgangur er ókeypis.
Klukkan 14 verður hátíðarguðs-
þjónusta. Fyrir altari þjóna sr. Þór
Hauksson og Petrína Mjöll Jó-
hannesdóttir og Kór Árbæjarkirkju
leiðir safnaðarsöng. Gestakór dags-
ins er Strætókórinn. Orgel- og kór-
stjóri er Krisztina K. Szklenár,
Matthías Stefánsson leikur á fiðlu
og Birta Rós Valsdóttir syngur.
Eftir guðsþjónustuna er kaffi-
hlaðborðssala kvenfélags Árbæjar-
sóknar í safnaðarheimilinu. Þar
verður árlegt skyndihappdrætti
líknarsjóðs kvenfélagsins. Veglegir
vinningar eru í boði sem bæði ein-
staklingar og fyrirtæki í söfn-
uðinum hafa gefið af rausnarskap.
Morgunblaðið/RAX
Kirkjudagur Séra Þór Hauksson er
sóknarprestur í Árbæjarkirkju.
Kirkjudagur hjá
Árbæjarsöfnuði
Messa, kaffi og happdrætti 1. des.
Margir af vinsælustu tónlistar-
mönnum landsins halda söng-
skemmtanir fyrir jólin. Má þar
nefna Pál Óskar, Bubba Mort-
hens, Björgvin Halldórsson,
Stefán Hilmarsson, systkinin
KK og Ellen og svo mætti lengi
áfram telja. Fólk sem tekur þátt
í kórstarfi lætur ekki sitt eftir
liggja og í flestum byggðum
landsins verða á aðventunni
tónleikar og úti á landi eru til
dæmis kirkjur og félagsheimili
notuð sem tónlistarhallir.
Þá eru jólatónleikar Fíladelfíu
í Reykjavík nú að bresta á. Þeir
verða þrennir og haldnir í kirkj-
unni í Hátúni. Hinir fyrstu verða
nk. mánudagskvöld, 2. desem-
ber, og hefjast kl. 19.
Sungið um
allt landið
TÓNLEIKAR Á AÐVENTU
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Söngur Eggert Benedikt Guðmundsson, formaður Karlakórs Reykjavíkur, t.v., og Friðrik S. Kristinsson stjórnandi.
Tónlistarmenn Þau koma fram með kórnum. Frá vinstri Jóhann Björn Æv-
arsson, horn, Guðmundur Hafsteinsson, trompet, Lenka Mátéová, orgel, Ei-
ríkur Örn Pálsson, trompet, Sigrún Pálmadóttir, sópran, Eggert Pálsson,
pákur, og Friðrik S. Kristinsson stjórnandi.